Gátt - 2004, Side 44
44
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Skráning á raunfærni hjá
Landsvirkjun
Hvað þarftu að kunna og geta til að geta sinnt starfinu
þínu? Hvað eru mörg störf í þessari einingu? Þessar
spurningar eru lagðar fyrir starfsmenn og stjórnendur
Landsvirkjunar og út frá því er þekkingargrunnur
fyrirtækisins lagður.
Landsvirkjun er í hópi stærstu fyrirtækja landsins.
Fyrirtækið rekur tólf vatnsafls- og gufuaflsstöðvar víða
um land auk spennustöðva og háspennulína fyrir flutning
raforku. Starfsmenn eru um 320 talsins. Landsvirkjun
skiptist í sex svið, orkusvið, verkfræði- og framkvæmda-
svið, fjármálasvið, upplýsingasvið, starfsmannasvið og
flutningssvið sem verður skilið frá fyrirtækinu áramótin
2004 til 2005 með nýju raforkulögunum. Hlutverk Lands-
virkjunar er að bjóða viðskiptavinum sínum bestu lausnir í
orkumálum og tryggja með því grundvöll nútímalífsgæða.1
Fram undan er mikill uppbyggingar- og breytingartími.
Forgangsverkefni fyrirtækisins eru meðal annarra að taka
þátt í breytingum á skipulagi orkumála, þróa vörur og
þjónustu til að tryggja stöðu Landsvirkjunar á orkumark-
aði og efla gæða- og umhverfisstjórnun. Mikil áhersla er
lögð á nútímalega mannauðsstjórnun með áherslu á
þekkingarstjórnun, fjölskylduvænt starfsumhverfi, jafnrétti
og tækifæri til starfsþróunar. Fyrirtækið var stofnað árið
1965 og er í opinberri eigu. Einkenni fyrirtækjabragsins er
mikil fyrirtækjatryggð, lítil starfsmannavelta, mikil starfs-
ánægja, langur starfsaldur (meðaltal 15 ár) og hár meðal-
aldur (tæp 50 ár). „Áhugavert starf“ er mikilvægast í
augum starfsmanna, þá góð laun og loks starfsöryggi.2
Fyrir nokkru keypti Landsvirkjun sænskt mannauðskerfi,
IFS. Kerfið mun auðvelda stjórnendum og starfsmönnum
að ná settum markmiðum og er stuðningur við starfs-
mannasamtöl. Annað markmið með innleiðingu kerfisins
er markvissari þarfagreining fræðslu og allt utanumhald
hennar verður einnig betra og þægilegra. Tilgangurinn er
einnig að auðvelda ferlið við ráðningar og halda
viðeigandi skrár yfir menntun, þjálfun, kunnáttu, réttindi
og reynslu starfsmanna.
Þekkingartré Landsvirkjunar ber þrjár greinar: Lands-
virkjun, persónuleg hæfni og starfssviðsþættir. Á fyrstu
grein er sú þekking á fyrirtækinu sem nauðsynleg er til að
menn geti sinnt starfi sínu og óvíst er hvort sú þekking
nýtist hjá öðrum fyrirtækjum. Á annarri grein er þekking
sem menn búa jafnvel yfir þegar þeir ráðast til fyrirtækis-
ins, nýtist þeim þar og annars staðar kjósi þeir að hverfa
til annarra starfa. Á þriðju grein hanga allir starfs-
sviðsþættirnir, þekking sem er nauðsynleg vegna þess
starfs sem viðkomandi gegnir á hverri stundu innan
fyrirtækisins.
Skilgreina þarf öll störf og hvað menn þurfa að kunna til
að geta sinnt þeim. Síðan skrifa kunnáttumenn eða þeir
starfsmenn, sem búa yfir sérþekkingu, lýsingu á viðkom-
andi færniþáttum. Notaður er fjögurra stiga þekkingar-
kvarði:
Grunnþekking = Ég get unnið einföld verkefni með
leiðsögn.
Nokkur þekking = Ég get unnið venjuleg verkefni undir
umsjón.
Mikil þekking = Ég get unnið sjálfstætt og leiðbeint
öðrum.
Sérfræðiþekking = Ég vinn algerlega sjálfstætt, stjórna
verkum, breyti verklagi og get leiðbeint
í faginu.
H V A Ð Þ A R F T U A Ð K U N N A O G G E T A T I L A Ð
G E T A S I N N T S T A R F I Þ Í N U ?
1 www.lv.is
2 Þáttum raðað í mikilvægisröð, heimild: Vinnustaðagreiningu Gallups, nóvember 2002.
Sigþrúður Guðmundsdóttir, Ragnhildur Vigfúsdóttir,