Gátt


Gátt - 2004, Síða 47

Gátt - 2004, Síða 47
47 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S endur. Vorið 2005 verður allri grunnvinnu við færnigrein- ingu og innskráningu starfsmanna lokið og stjórnendur og starfsmenn komnir með vefaðgang að kerfinu. Þá mun hver og einn stjórnandi hafa betri yfirsýn yfir mannauð sinn og starfsmaðurinn yfir sjálfan sig, fræðslusögu sína og allt framboð námskeiða. Það er bjargföst trú okkar, þrátt fyrir að hægar hafi gengið en upphaflega var ætlað, að við séum á góðri leið með að ná stórmerkum áfanga í mannauðsmálum fyrirtækisins. Ragnhildur Vigfúsdóttir, deildarstjóri starfsþróunar hjá Landsvirkjun. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastóri starfsmannasviðs hjá Landsvirkjun. Færnimappa er afrakstur norræns samstarfsverkefnis sem unnið var af aðilum í fullorðinsfræðslu frá Danmörku, Eistlandi, Íslandi og Noregi. Fulltrúi frá Mími- símenntun tók þátt í þessu starfi og hefur færnimappan verið þróuð og notuð í námstilboðum á vegum Mímis- símenntunar sl. þrjú ár. Auk þess hefur verið boðið upp á sérstök námskeið í gerð Færnimöppu. Vinna við gerð Færnimöppu er í umsjón náms- og starfsráðgjafa og fær hver einstaklingur aðstoð og ráðgjöf þar sem áherslan er á að aðstoða þá við að draga fram styrkleika sína og færni. Í Færnimöppu skráir hver einstaklingur alla reynslu sína tengda námi, starfi og frístundum og fær leiðsögn við að setja upp eigin ferilskrá. Á árunum 1999–2000 tóku fulltrúar frá Danmörku, Eistlandi, Íslandi og Noregi þátt í norrænu samstarfs- verkefni sem fjallaði um samstarf vinnuveitenda og starfsmanna þar sem áherslan var lögð á að auka færni starfsmanna. Niðurstaða þess verkefnis var að mikil þörf væri á að þróa tæki sem komið gæti að notum við að meta færni starfsmanna. Árið 2001 fékkst styrkur í nýtt verkefni þar sem markmiðið var að útbúa verkfæri sem komið gæti að notum við vinnu með starfsmönnum í litlum og meðalstórum fyrirtækjum við mat og markvissa uppbygg- ingu á færni þeirra. Auk þess var miðað við að verkfærið gæti komið að notum í vinnu með atvinnulausu fólki í starfsleit. Skoðuð voru þau verkfæri sem til voru fyrir við mat á raunfærni og auk þess mis- munandi aðferðir og leiðir í þess konar mati. Út frá því var færnimapp- an þróuð og í framhaldi af því prófuð í mismunandi hópum. Verkefninu lauk formlega haustið 2002 með ráðstefnu í Eistlandi. Allir búa yfir færni og þekkingu sem af mörgum ástæðum er ókunn bæði okkur sjálfum, samstarfsmönnum og vinnuveitendum. Í þeim fjölmörgu námstilboðum sem Mímir-símenntun hefur verið með í fullorðinsfræðslu sl. ár hefur komið í ljós að þetta er einn af þeim þáttum sem einstaklingar eiga í erfiðleikum með að takast á við og gera sér grein fyrir. Merking orðins færni (á norsku realkompetanse) er í hugum margra óljós og yfir- gripsmikil. Með færni er átt við alla þá kunnáttu, þekkingu og hæfni sem einstaklingur hefur náð tökum á í gegnum launað eða ólaunað starf, grunnmenntun, sí- og endur- menntun, frístundir og annað. Þó að einstaklingur hafi ekki lokið langri formlegri skólagöngu þá hefur hann stöðugt F Æ R N I M A P P A - T Æ K I T I L S J Á L F S Þ E K K I N G A R ? Gunnlaug Hartmannsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.