Gátt


Gátt - 2004, Síða 49

Gátt - 2004, Síða 49
49 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S ingsins, þ.e. ef hann hefur bætt við hæfni sína með þátt- töku í námskeiði, þjálfun eða á annan hátt. Færnimappan verður einstaklingnum þannig mikilvægt hjálpartæki við að gera sér grein fyrir persónlegri færni sinni, slíkt hefur gildi fyrir hann á vinnumarkaðnum, bæði í núverandi starfi, við leit að nýju starfi og við frekar nám. Margir fullorðnir hafa efasemdir um gildi þess að láta kortleggja færni sína. Þeir sjá ekki gagnsemi þess að nota Færnimöppuna, né tilgang í að taka þátt í slíku ferli og hafa ekki áhuga á að verja tíma sínum í slíka vinnu. Margir óttast trúlega að þeir afhjúpi vankunnáttu sína eða vanhæfni, þeir eru óöruggir þegar taka á þátt í ferli sem krefst virkrar þátttöku þeirra, þar sem þeir eru með sjálfa sig í brennidepli. Hlutverk ráðgjafans er að styðja og hvetja þennan hóp til þátttöku í slíkri vinnu og um leið auka skilning hans á mikilvægi þess að taka þátt í sí- og endurmenntun. Markmiðið er að einstaklingurinn taki ábyrgð á eigin hæfnisuppbyggingu. Þótt reynslan sýni að flestir séu jákvæðir og tilbúnir að taka virkan þátt í slíkri vinnu þarf ráðgjafinn að vera vakandi yfir þörfum þeirra sem eru óöruggir og verja tíma í að hvetja og styðja þá. Færnimappan hefur verið notuð í fjölmörgum námstil- boðum hjá Mími-símenntun sl. ár og hefur sá tími jafn- framt verið mjög dýrmætur í þróun hennar. Hefur hún verið notuð í þeim tilgangi að kenna þátttakendum að safna saman og halda saman gögnum sem lýsa og staðfesta færni þeirra og að þeir séu færir um að lýsa persónulegri, almennri og starfstengdri færni ásamt náms- og starfsferli. Stuðlar það jafnframt að því að hver einstaklingur átti sig á eigin ábyrgð á starfsferli og starfs- ánægju sinni og setji sér markmið varðandi sí- og endur- menntun. Þau námstilboð, sem um ræðir, eru sniðin að mismunandi hópum: Grunnmenntaskólinn – nám ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði sem ekki hefur farið í frekara nám að loknum grunnskóla; Landnemaskólinn – nám ætlað fullorðnu fólki á vinnumarkaði sem hefur ekki íslensku að móðurmáli, þar sem megináhersla er lögð á íslenskt talmál og nytsama samfélagsfræði; MFA-skólinn, Kvennasmiðjan og Karlasmiðjan – nám ætlað atvinnu- lausu fólki. Þar sem um ólíkar þarfir er að ræða í þessum hópum er áhersla lögð á að laga Færnimöppuna að þörfum hvers hóps fyrir sig. Auk þess er færnimappan í stöðugri þróun og verið er að laga hana að fleiri hópum. Má þar nefna talsmenn stéttarfélaga og verslunarmenn í fagnámi. Við slíka vinnu er lögð áhersla á að skoða hver eru meginviðfangsefni hvers hóps og hvaða þættir það eru sem verið er að leggja mat á. Í Færnimöppu talsmannsins er bætt inn sérkafla þar sem skoðuð er félagleg færni eins og samvinna, vinnulag og samningatækni. Í Færni- möppu fyrir verslunarmenn verður áherslan lögð á færniþætti sem tengjast verslun og þjónustu eins og þjónustu við viðskiptavininn, innkaup og sölu á vörum, samvinnu o.fl. Þótt færnimappan sé löguð að þörfum mis- munandi hópa verða alltaf í henni þeir fjórir meginhlutar sem áður hefur verið lýst. Reynslan af vinnu með Færnimöppuna hefur skilað miklu og ávinningurinn er augljós. Einstaklingurinn fær góða yfirsýn yfir eigin kunnáttu og færni og stuðlar það að auknu sjálfstrausti, starfánægju og starfshæfni auk þess sem færnimappan hefur reynst góður undirbúningur fyrir starfsmannaviðtöl og starfsumsóknir. Fyrir vinnuveitand- ann er ávinningurinn einnig augljós þar sem hann fær betri yfirsýn yfir þann mannauð sem fyrirtækið hefur yfir að ráða auk þess sem betri yfirsýn fæst yfir þörf fyrir sí- og endurmenntun starfsmanna. Reynsla þeirra einstakl- inga sem unnið hafa Færnimöppu er nokkuð samhljóða, þetta er mjög þarft og gott verkefni sem hjálpar einstakl- ingnum að draga upp heildarmyndina og sjá að margt smátt gerir eitt stórt. Einnig er áberandi sú tilfinning að einstaklingar uppgötva margt og fá svör við spurningum um sjálfa sig og tækifæri til að skoða hlutina út frá nýjum forsendum. Sem dæmi má nefna fimm barna móður sem sá ekkert merkilegt við hlutverk sitt sem uppalanda, hún hafði ekki gert neitt sérstakt að eigin mati. Með því að greina þá þætti, sem reynir á í uppeldishlutverkinu, sá hún marga þætti sem gætu verið henni til framdráttar á vinnumarkaði eins og samskipti, skipulag og stjórnun.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.