Gátt


Gátt - 2004, Page 53

Gátt - 2004, Page 53
53 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S A F S J Ó N A R H Ó L I S A M K E P P N I , M A N N A U Ð U R O G S T R F S M A Ð U R I N N Ég hef unnið í tæp 20 ár hjá virtu, traustu og framsæknu fjármálafyrirtæki sem á sér rúmlega 118 ára sögu. Hér á ég auðvitað við Landsbanka Íslands hf. Þótt starfsaldur minn sé ekki langur miðað við aldur bankans hef ég orðið vitni að nánast lygilegum breytingum á fjármálamarkaði. Sérstaklega hin síðari ár. Umhverfisþættir, s.s. pólitískar ákvarðanir, efnahagslegt umhverfi og samkeppni, hafa þar verið mestu áhrifavaldarnir. Breytingarnar eru komnar til að vera. Það er því spennandi fyrir alla sem starfa á þess- um markaði sem og öðrum, að líta yfir landslagið í dag og reyna að ímynda sér hvernig það muni þróast til framtíðar. Ekki síður að reyna að sjá fyrir sér stöðu sína í þessu umróti sem hlýtur að skipta okkur sem einstaklinga mestu máli. Aukin samkeppni á sér ekki einungis stað á milli fyrirtækja á fjármálamörkuðum heldur teygir hún anga sína inn í fyrirtækin, störfin breytast, kröfur aukast og þolinmæði gagnvart slakri frammistöðu er ekki lengur fyrir hendi. Út á við er þetta samkeppni um viðskiptavininn, inn á við um störfin. Hvert og eitt þurfum við að tryggja samkeppnis- hæfni okkar með því að þróa og auka færni okkar í takt við umhverfið sem við störfum í. Þrátt fyrir mikla samkeppni á fjármálamarkaði er nokkur einsleitni á markaðnum. Vöruframboð, þjónusta og verð eru sambærileg þannig að skipulagsheildirnar eiga erfitt með að aðgreina sig hver frá annarri í augum neytand- ans. Þegar svo er komið skiptir þekking starfsfólks, reynsla og færni mestu máli ásamt persónulegum eigin- leikum, þ.e.a.s mannauður þeirra. Mannauðskenningin, sem svo hefur verið nefnd, tekur til öflunar færni og að hægt sé að öðlast færni á margan hátt. Formleg menntun er eflaust aðalleiðin til að öðlast mannauð en meira er fjárfest í mannauði gegnum form- lega menntun en á nokkurn annan hátt. Önnur mikilvæg- asta fjárfestingin í mannauði er vinnutengd þjálfun. Jafnvel þótt hún sé í öðru sæti á eftir formlegri menntun í umfangi og eyðslu þá hefur vinnutengd þjálfun mest áhrif á viðskiptahætti. Mannauð má þróa og þar liggja tæki- færin. Markviss ráðningarstefna er mikilvægur þáttur í mannauðsstefnu skipulagsheilda en hafa verður í huga að þekking fyrnist. Árangursmiðuð þjálfun og fræðsla ásamt annarri starfsþróun eru því lykilþættir í að viðhalda og auka við mannauð þeirra. Hagsmunir starfsmanna og fyrirtækja fara víða saman þegar kemur að árangursmiðaðri þjálfun og fræðslu. Niðurstöður úr nýlegri rannsókn „National Center on Education Quality of the Workforce“ sýna t.d. að 10% aukning í menntun starfsfólks skilar meiri framleiðniaukningu en 10% aukning á vinnutíma eða hlutafé. Þær skipu- lagsheildir, sem hvetja til náms/menntunar starfsfólks, sjá því fram á meiri framleiðni og fjárhagslegan ávinning. Þjálfun leiðir oft til hækkunar launa fyrir þá starfsmenn sem taka þátt í henni. Þrátt fyrir að þjálfun starfsmanna leiði oft til aukins launakostnaðar sýna rannsóknir að aukinn hagnaður, sem rekja má til þjálfunarinnar, sé meiri en sá launakostnaður sem af henni hlýst. Ávinningur starfsmanna af þjálfun er þó ekki eingöngu bundinn mögulegum starfsframa og bættum kjörum heldur einnig þáttum eins og auknu starfsöryggi og meiri starfsánægju. Það er gaman frá því að segja að Landsbankinn hlaut Starfsmenntaverðlaunin árið 2004 í flokki fyrirtækja en Starfsmenntaráð og Mennt veita verðlaunin fyrir framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar á Íslandi. Í Landsbankanum má skipta fræðslustarfsemi í þrjá þætti: vinnutengda þjálfun og fræðslu sem er umfangsmest, formlega menntun og að síðustu námskeið sem lúta að því að efla einstaklinginn eða búa hann undir ákveðin tímabil í lífi hans, oft kölluð „sjálfstyrkingarnámskeið“. Þótt vinnutengda þjálfunin sé umfangsmest í okkar starf- semi þá teljum við annað fræðslustarf ekki síður mikil- vægt. Ásókn starfsmanna í formlegt nám samhliða vinnu hefur aukist mikið undanfarin ár með auknu framboði og Pétur Ó. Einarsson

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.