Gátt

Ataaseq assigiiaat ilaat

Gátt - 2004, Qupperneq 56

Gátt - 2004, Qupperneq 56
56 Við lifum á öld símenntunar. Það þýðir að nú er talið sjálfsagt að bæta stöðugt við menntun sína alla ævi, læra eitthvað nýtt, aflæra eitthvað gamalt! Með hverju ári fjölgar full- orðnu fólki í hvers konar skipulögðu námi. Ekki bara í formlegu námi í menntakerfinu heldur einnig í hvers konar óformlegu námi. Við erum sem óðast að tileinka okkur þau viðhorf að slíkt sé nauðsynlegt bæði til að efla starfsfærni okkar og einnig til lífs- fyllingar. Þegar talað er um nám leiðir það hugann einnig að kennslu, nám og kennsla fylgjast gjarnan að. En hvernig fer nám fullorðinna fram? Hvers konar aðstoð þurfa þeir og vilja við námið? Hvernig eiga leiðbeinendur að umgangast fullorðna nemendur? Eru þarfir fullorðinna aðrar en barna og unglinga? Hvaða kennsluaðferðir henta þeim? Hverjar eiga áherslurnar að vera? Við þessum spurningum er ekkert einfalt svar. Nám og kennsla eru margþætt og flókin samskiptaferli, ekki síst í fullorðins- fræðslu. Í þessari grein verður fjallað um nokkur grund- vallaratriði sem skilgreind hafa verið um nám fullorðinna og kennslufræði sem byggist á þeim. Áður en reynt verður að gera þeim skil skulum við skoða eftirfarandi tvö dæmi. Dæmi 1. - Ekki kennari heldur leiðbeinandi! Malcolm var alinn upp í því viðhorfi að kennarinn væri ábyrgur fyrir því hvað nemendur lærðu, hvernig þeir lærðu, hvenær og hvort þeir hefðu lært. Hlutverk kennara ætti að vera að miðla fyrir fram ákveðnu efni, stýra því hvernig nemendur meðtaka efnið, hvernig þeir vinna úr því og prófa síðan hvort þeir hafa náð því! Þannig kenndi hann og gerði það mjög vel, að honum fannst. Hann lýsir því síðar hve ánægður hann var alltaf með kennslu sína þegar nemendur gerðu það sem þeim var sagt; glósuðu nákvæmlega í tímum, lásu vel heima og endurtóku á prófi það sem hann hafði kennt þeim. Hann fann að hann var góður efnismiðlari og hugsanastjórnandi hjá nemendum sínum. En þessi viðhorf hans til kennslu breyttust þegar hann fór í meistaranám í sálfræði og sótti tíma hjá kennara sem hann kallar Art. Fyrsti tíminn var honum hálfgert áfall. Þegar hann kom í kennslustofuna sátu fimmtán einstakl- ingar saman við borð og spjölluðu um allt og ekkert. Tíminn leið og eftir drykklanga stund spurði loks einn nemandinn úr hópnum hvar kennarinn væri eiginlega. Annar úr hópnum við borðið svaraði þá að nafn sitt væri Art og hann væri ráðinn til að hitta þennan hóp. Aftur var spurt hvort hann væri þá ekki með einhverja kennsluáætlun og gögn. Art spurði þá á móti: „Nú, viljið þið kennsluáætlun?“ Þá var aftur spurt úr nemendahópn- um: „Hvað komuð þið hin til að læra hér?“ Þannig hófst svo tíminn með því að nemendur lýstu, hver á eftir öðrum, áhugamálum sínum, væntingum og hvað þeir vildu læra þarna. Þegar röðin kom að Art, sem enn sat eins og einn úr hópnum, sagði hann: „Ég vænti þess að þið viljið hjálpa mér að verða betri leiðbeinandi.“ Á þessa lund lýsir Malcolm Knowles, sem stundum hefur verið nefndur faðir nútímahugmynda um fullorðinsfræðslu, fyrsta tímanum af mörgum þar sem nemendur stjórnuðu innihaldi og áherslum (Knowles o.fl., 1998, s. 198-201). Hann lýsir því hvernig það, að vera gerður ábyrgur fyrir eigin námi, tendraði eldlegan námsáhuga og vinnusemi og hvernig nemendur fylltust ákafa og smituðu hver annan af honum. Þarna breytti hann viðhorfi sínu til kennslu. Í stað þess að líta á kennarann sem einráðan stjórnanda og miðlara sem tæki allar ákvarðanir varðandi nám nemend- anna fór hann að líta svo á að hlutverk hans væri fyrst og fremst að vera leiðbeinandi eða aðstoðarmaður nemend- anna við nám þeirra en þekkingarmiðlun væri aukahlutverk. Í stað þess að skipuleggja efni og fyrir- lestra hannaði hann og stýrði verkferli sem gerði þær kröfur til hans að mynda tengsl, greina þarfir, virkja nemendur í skipulagningu, vísa þeim á námsleiðir og gögn og hvetja þá til frumkvæðis og sjálfstæðrar hugsun- ar. Aldrei hvarflaði að honum eftir þetta að snúa sér aftur að gömlu kennsluaðferðinni. K E N N S L U F R Æ Ð I F I N N S T F U L L O R Ð N U M L Í K A L E I K U R A Ð L Æ R A ? Sigrún Jóhannesdóttir F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Gátt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.