Gátt


Gátt - 2004, Page 63

Gátt - 2004, Page 63
63 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S tengslum þeirra við ýmis starfssvið. Rétt er að taka það fram að þetta eru einungis dæmi, af mörgu er að taka og því alltaf álitamál hvað verður fyrir valinu. Lýsingarnar eru sóttar til Armstrongs (2000) og til Julie Viens og Silju Kallenbach (2004). Málgreind. Hæfileiki til að hafa áhrif með orðum, bæði munnlega (eins og sagnaþulir, ræðumenn eða stjórn- málamenn) og skriflega (eins og ljóðskáld, leikrita- höfundar, ritstjórar eða blaðamenn). Þessi greind felur í sér hæfni til að færa sér í nyt (1) setningafræði eða form- gerð tungumáls, (2) hljóðfræði eða hljóm máls, (3) merkingarfræði eða þýðingu tungumáls og (4) möguleika málsins til tjáningar og hafa vald á hagnýtum atriðum í málnotkun. Sum þessara notagilda fela í sér mælskulist (það er að nota málið til að sannfæra aðra um að taka ákveðna afstöðu), minnishjálp (að nota málið til að muna upplýsingar), útskýringar (að nota málið til að upplýsa) og stoðmál (að nota tungumál til að hugsa og tala um tungumál). (Armstrong, 2000:14) Er ekki ...að vera tvítyngdur (getur þó falið í sér hæfni til að læra erlent mál). ...að vera skrafhreifinn, hafa gaman af að tala. Lykilfærni að skynja eða mynda talað eða ritað mál skýr tjáskipti og skilningur næmi fyrir hárfínni merkingu í máli Undirfærni: Að beita máli: á tjáningarríkan hátt, segja frá, segja sögur á lýsandi hátt, í kennslu, í skýrslugerð á skáldlegan hátt, í orðaleikjum Hlutverk/starfssvið Rithöfundur Blaðamaður Skáld Uppistandari Prestur Sölumaður Lögfræðingur Þjálfari Kennari Aðferðir/afurðir Leiðbeiningar /handbækur Skáldsögur Kappræður/ræður Handrit Dagblöð Leikrit Orðaleikir Umræður Söng- og óperutextar Dagleg notkun lesa dagblöð skrifa bréf sækja fundi Er ekki eingöngu bundin tölum Lykilfærni að nota og meta óhlutstæð tengsl að nota tölur og rökhugsun Undirfærni: talnarök (útreikningur, áætlun, magn- mæling) rökleg lausnaleit (beina athygli að heildarformgerð og tengslum, draga röklegar ályktanir) Hlutverk/starfssvið Stærðfræðikennari Arkitekt Fjármálastjóri Vísindamaður Tölvuforritari Endurskoðandi Verkfræðingur Byggingarverktaki Prjónaskapur Aðferðir/afurðir Línurit Tímalína Tölvuforrit Töflureiknir Jöfnur/ stærðfræðileg sönnun Viðskiptaáætlun Flæðirit Uppfinning Rökþraut Dagleg notkun lesa áætlun strætisvagna leysa ráðgátur sjá um heimilis- bókhaldið Rök- og stærðfræðigreind er hæfileiki til að nota tölur á árangursríkan hátt og hugsa rökrétt. Þessi greind felur í sér næmi fyrir röklegum mynstrum og tengslum, staðhæfingum og yrðingum (ef – þá, orsök og afleiðing), föllum í stærðfræði og öðrum skyldum óhlutstæðum hugtökum. Rök- og stærðfræðigreindin notar aðferðir eins og frumflokkun, flokkun, ályktun, alhæfingu, útreikn- ing og tilgátuprófun. (Armstrong, 2000:14)

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.