Gátt


Gátt - 2004, Page 71

Gátt - 2004, Page 71
71 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S rætur að rekja til) hefur verið reynt hjá vinnumiðlunum í Noregi með góðum árangri. - Forðast ber að fjármagna þjálfun fyrir atvinnulausa eingöngu á magnsmælingu. Gæði verður einnig að leggja til grundvallar fjármögnun. Fjárhagsleg örvun til að fjárfesta í mannauði, sem fólg- inn er í fullorðnu fólki, getur fjölgað þátttakendum. Með því að leggja áherslu á fjárhagslegan stuðning við ein- staklinga og fyrirtæki, sem fjárfesta í menntun fullorðinna, kann að vera hægt að auka þátttöku fullorðinna í námi. Fjármögnun náms fyrir fullorðna er margslungið viðfangsefni. Í öllum löndunum, sem athuguð voru, kemur fé bæði frá opinberum aðilum og einkaaðilum. Góð sátt virðist vera um að allir, sem málið varðar, beri ábyrgð á fjármögnun þegar á annað borð er ástæða til að hafa samvinnu um fjármögnun. Stundum er eðlilegt að ein- staklingar, sem hafa efni á því, borgi fyrir þann hag sem þeir hafa af námi. Ýmsar leiðir eru færar til að örva frumkvæði til að leggja fram fé: - Kynna lán, styrki eða menntareikninga og aðra kosti sem einstaklingar geta valið. Í Kanada hafa sumar þessara leiða verið notaðar til að hvetja fullorðið fólk til að taka námstilboðum. Á Bretlandi er víða boðið fjöl- breytt úrval fjárhagsaðstoðar til að örva einstaklinga til náms. Í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð fá einstaklingar stuðning ef þeir eru innan ákveðinna tekjumarka. - Réttur til námsleyfis. Í Finnlandi þekkist að þegar starfs- menn eru í námsleyfi koma atvinnulausir til starfa og öðlast þannig starfsreynslu. - Kynna niðurgreiðslur. Uppbót sem greidd er vegna tiltekins kostnaðar getur ýtt undir þjálfun. Danska skatt- kerfið er dæmi. Skattafrádráttur og niðurgreiðslur fást vegna þjálfunar sem atvinnurekandi kostar. Fjármögnun er einnig hægt að örva með því að skattaleg meðferð fjár, sem rennur til starfsþjálfunar, sé eins og um sé að ræða fjárfestingu fremur en útgjöld. - Skattleggja fyrirtæki til að standa undir starfsþjálfun eða setja á laggirnar landssjóð eða, við vissar kringum- stæður, atvinnugreinasjóð til að standa undir þjálfun vinnuafls. Labour Promotion Act í Quebec í Kanada hefur þann tilgang að bæta hæfni, færni og frammi- stöðu starfsmanna með stöðugri þjálfun. Þetta fyrir- komulag í Kanada er af því tagi sem kalla má „þjála eða greiða“ aðferð. Fyrirtæki sem hafa launakostnað yfir ákveðnu marki eiga að fjárfesta sem svarar til 1% af launakostnaði í þjálfun starfsmanna. Fyrirtæki, sem hafa minni launakostnað, greiða í fræðslusjóð. Ráðstafanir til að bæta gæði náms fullorðinna bæta væntanlega árangurinn. Ráðstafanir, sem gerðar eru til að bæta gæði náms fyrir fullorðna, geta átt mikinn þátt í að auðvelda aðgang og fjölga þátttakendum. Mörgum þessara ráðstafana er hægt að beina að gæðastjórnun og árangursmælingu. Endurbætur er hægt að gera til dæmis með því að fylgjast betur með námsframvindu og mati, með því að endurbæta söfnun tölfræðigagna, með betri vottunarkerfum, með því að bæta mat á frammi- stöðu stofnana og með því að fylgjast betur með árangri námsmanna og áformum þeirra. Rannsóknir á þessu sviði eru afar aðkallandi. Vert er að vekja sérstaka athygli á nokkrum þáttum: - Innleiða gæðatryggingu. Fyrirkomulag EduQua í Sviss og Certification of Training Institutions (QUALFOR) í Portúgal eru áhugaverð dæmi um umsjón með námi. Mörg ríki hafa einnig sett á laggirnar stofnanir sem eiga að fylgjast með gæðum menntunar og þjálfunar fullorð- inna eingöngu (eins og Vox í Noregi) eða (eins og Danmarks Evaluerings Institut - EVA) sem nær til alls konar náms. - Ákveða staðla fyrir þjónustu og áberandi viðurkenningu á því að þeim sé fylgt. Investors in People (IiP) merki fá fyrirtæki á Bretlandi sem leggja sig fram um að þjálfa starfsfólk sitt. - Mat á gildi náms verði sjálfsagður liður stefnumótunar. Því miður hefur mat á árangri af stefnumörkun fyrir nám fullorðinna aðeins byggst á talningu námsmanna og

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.