Gátt


Gátt - 2004, Síða 72

Gátt - 2004, Síða 72
72 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S kostnaði við framkvæmd. Fjölbreyttara mat á gildi stefnumótunar fyrir nám fullorðinna er því miður ekki að finna í mörgum löndum. - Rannsóknir eru nauðsynlegar til að bæta stefnumörkun. Viðleitni til að safna tölfræðilegum upplýsingum um þátttöku, kostnað, rannsóknir og skipti á upplýsingum innanlands og milli landa getur hjálpað til þess að bæta gæði stefnumótunar og áætlana. Með samstilltum aðgerðum allra, sem málið varðar, er hægt að ná betri árangri. Með því að samræma starfsemi aðila er hægt að fara betur með naumt skammtaða fjár- muni og opinber framlög. Sameignarfélög eru gagnleg í þessu skyni, einnig vel skilgreind verkefni. Víða er reynt að þróa yfirgripsmikla og samþætta stefnumótun fyrir nám fullorðinna. Andstætt brotakenndri nálgun gerir heild- stæð aðferð, sem felur í sér alls konar nám og þjálfun, kröfu til samræmingar. Lykilatriði samræmdrar stefnu eru: - Samræma aðferðir í kerfi hins opinbera fyrir nám full- orðinna. Framboð hefur verið aukið á ýmsum stigum, tilboðum hagrætt og sett í samhengi og hlutverk þeirra sem koma að málum verið samstillt. Í flestum tilvika er um að ræða ókeypis eða nánast ókeypis nám fyrir full- orðna. Þetta er árangur af umbótum sem hafa verið kynntar í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð og tilraunum á Spáni og í Portúgal. - Samræma innanríkis sem og milli ríkja starfsemi annarra eins og atvinnurekenda, verkalýðsfélaga, opinberra fræðslustofnanna og annarra fræðslustofnanna auk sjálfseignarstofnanna. Dæmi um stofnanir sem aðstoða við að samræma stefnu fyrir nám fullorðinna eru ANEFA í Portúgal og Learning and Skills Council á Bretlandi. - Jafna áhrif milli annars vegar þeirra sem skipuleggja, þegar ríkisvald skilgreinir uppbyggingu og fjármagnar, og hins vegar þeirra sem framkvæma þegar þeir koma auga á vankanta og hafa tillögur til úrbóta. Kunskaps- lyftet, átak í námi fyrir fullorðna í Svíþjóð, er ágætt dæmi um þetta. Eftirlit með framkvæmd er einnig afar mikil- vægt. - Kynna sameignarfélög. Sameignarfélög eru sett á lagg- irnar í mörgum löndum til að efla samvinnu og samhæfa starfsemi aðila. Dæmi af þessu tagi er að finna í Kanada og í La Rioja á Spáni. Í sameignarfélögum er fjármögnun, húsnæði og framlög betur nýtt til þess að ná árangri. - Stefnumörkun, sem samstillir milli atvinnugreina krafta þeirra mörgu sem eiga hlut að máli, skynsamlegar fjár- mögnunarleiðir, innbyggt eftirlit og endurskoðun, er til bóta. Þessi eru markmiðin í nýlegri umbótastefnu fyrir nám og þjálfun fullorðinna í Danmörku. Einstaklingur og fyrirtæki verða að vera í öndvegi samþættra aðgerða. Samþætt stefnumótun af þessu tagi þarf einnig að hafa einstaklinginn og atvinnureksturinn í brennidepli þegar kemur að því að móta hvata til þátt- töku, fjármögnunarleiðir, námsframboð og markmið. Í stefnumótun verða að vera skýrar skyldur einstaklinga, atvinnureksturs og ríkisvalds. Eins og á við um grunn- menntunina verður að gæta jafnvægis milli markmiða um efnahagsþróun og jafnan rétt, samfélagslega þróun og persónulegan þroska. Í samþættri stefnumótun verður að viðurkenna þá staðreynd að fjöldi fullorðinna í OECD- löndunum hefur aðeins grunnmenntun, vinnur ósérhæfð störf og hefur ekki verið í formlegu námi í allmörg ár. Þegar á heildina er litið hefur þokast í rétta átt þótt enn sé mikið verk að vinna. Ásmundur Hilmarsson, sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.