Gátt


Gátt - 2004, Síða 73

Gátt - 2004, Síða 73
73 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Námskeiðið Aftur í nám hófst í lok janúar og lauk í byrj- un maí. Kennslustundir voru 90. Af þeim voru einstakl- ingstímar 24–30, eilítið mismunandi eftir þörfum hvers og eins. Tilgangur þess var að bjóða fólki sem glímir við lestrar- og skriftarörðugleika upp á nám. Verkefnið var samstarfsverkefni Mímis - símenntunar, Eflingar - stéttar- félags, Starfsgreinasambands Íslands og Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur. Verkefnið hlaut styrk frá Starfsmenntasjóði, Starfsafli og sjóðum Eflingar og ríkisins og hjúkrunarheimila og Eflingar og Reykjavíkur- borgar. Mikil ánægja var með námskeiðið og ljóst að þörfin er mikil. Úrræðið er dýrt og því nauðsynlegt að opinberir aðilar styrki verkefnið. Námsskráin er fáanleg hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Ellefu nemendur, 7 konur og 4 karlmenn, sóttu um og sátu allt námskeiðið. Fimm voru félagar í Eflingu - stéttarfélagi, fjórir í VR, einn í Hlíf og einn sjálfstæður verktaki. Námskeiðið byrjaði á sjálfsstyrkingu þar sem mikil áhersla var lögð á samstöðu og traust manna í milli. Fyrir marga var það stórt skref enda miklir fordómar verið ríkjandi í garð lesblindra og því flestir með það í farteskinu að les- blinda hafi eitthvað með hina stöðluðu hugmynd um greind að gera. Eftir sjálfsstyrkingu tóku við einstaklingstímar þar sem leiðbeint var eftir aðferðafræði Ron Davis. Um þennan þátt sáu fimm tilvonandi Davis-leiðbeinendur en þeir eru að ljúka námi á þessu ári. Í tölvutímunum var fyrst og fremst farið í undirstöðuatriði tölvunnar, ritvinnslu og unnið með stafsetningarforritið Púka. Jafnframt skoðuðu nemendur mismunandi stafa- gerð og liti þar sem þeiri þættir geta haft mikil áhrif á vellíðan við lestur. Kennslan í íslensku miðaðist við að efla öryggi í að tileinka sér málfræði- og stafsetningarreglur en um leið að vinna með texta úr daglegu umhverfi. Nemendur unnu saman í hópum, gerðu útdrátt, lásu upp og skrifuðu eftir upplestri. Aðalatriðið var ekki að fara yfir tiltekinn fjölda málfræði- og stafsetningarreglna heldur að námsmenn fengju ákveðna innsýn í málnotkun/reglur og litu á það sem fyrstu skrefin í nýrri göngu í menntun. Leiðbeinendur upplifðu mikinn sigur þegar heyrðist að námsmönnum þætti skemmtilegt að leysa tiltekin málfræðiverkefni, það hefði ekki verið erfitt að skrifa eftir upplestri og gamla örvæntingin frá því í gamla daga ekki gert vart við sig. Skrefin voru ekki stór á mælikvarða margra en þau voru fram á við og verða stærri og styrkari með tímanum. Í lok námskeiðs var boðið upp á einkatíma í námsráðgjöf. Námsráðgjafi aðstoðaði nemendur við að draga saman aðaláherslur tímabilsins og hvað mætti sjá fyrir sér í framtíðinni. Námskeiðið, sem hér er lýst, er ný nálgun fyrir lesblinda og miðað við móttökur lofar aðferðin góðu. Hópurinn var jákvæður og samstilltur, ákveðinn í að ná settum mark- miðum. Það var sérlega ánægjulegt að vinna að þessu verkefni og hafa leiðbeinendur sjaldan reynt annan eins áhuga og elju eins og skapaðist á þessu námskeiði. Samstaðan innan hópsins var einstök, hlýhugur og hvatning ríkti í tímum þar sem hver og einn fékk að vera hann sjálfur. A F T U R Í N Á M Úr umsögnum nemenda: „Mér finnst frábært að svona námskeið sé í boði. Þetta er það sem við erum búin að bíða eftir.“ „Ég get núna hugsað mér að fara í nám sem ég gat ekki hugsað mér áður.“ „Mér finnst frábært að hafa fengið tækifæri til að fara á þetta námskeið. Og að vita að ég get alveg lært eins og allir aðrir. Ég myndi gjarnan vilja sjá þetta inni í skólakerfinu því það er fullt af litlum snillingum sem bara með smá hjálp og skilningi eiga góða samleið með öðrum nemum og ég er fullviss um að fallið úr skóla yrði miklu minna.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.