Gátt - 2004, Page 81
81
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Heimildir
Aarkrog, Vibe. (1997). Samspillet mellem teori og praktik, de merkantile
erhvervsuddannelser. FoU Publikation Nr. 7 - 1997:
Undervisningsministeriet Erhvervsskoleafdelingen.
Guðmunda Kristinsdóttir og Sigrún Jóhannesdóttir. (2004a).
Verslunarfagnám: Skýrsla um fyrsta áfanga verkefnis: Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins. Óútgefið efni.
Guðmunda Kristinsdóttir og Sigrún Jóhannesdóttir. (2004b).
Verslunarfagnám: Námsskrá og gátlistar tilraunaverkefnis:
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Óútgefið efni.
Magnussen, Lisbeth. (1997). Fremtidens jobprofiler på det merkantile
område. FoU Publikation Nr. 8 - 1997: Undervisningsministeriet
Erhvervsskoleafdelingen.
Samtök verslunar og þjónustu. Fréttapóstur. Sótt 27. september 2004 af:
http://www.svth.is/user/news/view/0/153
Samstarfssamningur milli KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunar-
miðstöðva á landsbyggðinni og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Þann 12. nóvember sl. var undirritaður samstarfssamningur milli Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og símennt-
unarmiðstöðva innan Kvasis, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á landsbyggðinni, en þær eru:
Farskólinn – miðstöð símenntunar Norðurlandi Vestra, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fræþing - Fræðslumiðstöð
Þingeyinga, Fræðslunet Austurlands, Fræðslunet Suðurlands, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum,
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Viska - fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja.
Meginmarkmiðið með samstafinu er að stuðla að því að fólk á vinnumarkaði með litla grunnmenntun, fólk sem
horfið hefur frá námi án þess að ljúka prófi frá framhaldsskóla, innflytjendur og aðrir sambærilegir hópar fái
betri tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Þetta mikilvæga verkefni verður
unnið í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir með það að markmiði að styrkja samkeppnishæfni samstarfsaðilanna.
Aðrir samstarfsaðilar Fræðslumiðstöðvarinnar geta orðið þeir sem vinna að eða bjóða upp á fræðslu fyrir
markhópinn innan eða utan hefðbundinna menntastofnana. Til að árangur verði sem bestur munu aðilar
samningsins byggja upp sameiginlegt gæðakerfi með það að markmiði að votta gæði fræðsluaðila utan hins
hefðbundna skólakerfis og kennslu fullorðinna á þeirra vegum. Einnig mun verða safnað upplýsingum um þann
árangur sem næst í þessu samstarfi.