Gátt - 2004, Qupperneq 84
84
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
anda til þess að fá tímabundið sveigjanlegan vinnutíma
vegna námskeiðssóknar. Hvatning frá vinnuveitendum er
mikilvæg í þessu samhengi og endurmenntun starfs-
manna þarf að fá að skipa sess í starfsemi fyrirtækja,
báðum aðilum í hag.
Einstaklingsviðtölin hafa enn fremur leitt í ljós að margir
hafa takmarkaða trú á eigin námsgetu og hafa upplifað
setu á skólabekk í neikvæðu ljósi vegna ýmissa þátta í
samspili einstaklings og umhverfis. Námserfiðleikar í
tengslum við lestur, skrift og stærðfræði virðast nokkuð
algengari meðal fólks með skamma skólagöngu en um
8% viðmælenda skýrðu frá námserfiðleikum sínum að
eigin frumkvæði. Þetta hlutfall er mjög líklega aðeins
toppurinn á ísjakanum. Margir hafa náð að vinna með
þessa þætti sjálfir og komið sér upp tækni með tímanum
og þyrftu í raun einungis almennan stuðning og sveigjan-
leika í námi. Aðrir þyrftu á sértækum stuðningi að halda.
Það er mikilvægt að koma þeim skilaboðum til fólks að við
þurfum ekki öll að vera steypt í sama mótið og öll höfum við
eitthvað til brunns að bera. Kennsluaðferðir, sem leggja
áherslu á að einstaklingurinn fái að njóta sín út frá þeim
hæfileikum sem hann er gæddur, stuðla að auknu sjálfs-
trausti og námslegri virkni.
Námstilboð án prófa
Nokkuð hefur borið á því að viðmælendur lýsa yfir áhuga
sínum á námi en telja sig ekki tilbúna til þess að hefja
nám í formlega skólakerfinu. Þá hafa þeim verið kynnt
námstilboð hjá fræðsluaðilum sem bjóða upp á styttri
námskeið tengd áhugamálum eða einstaklingsmiðað
nám með áherslu á símat í stað hefðbundinna prófa.
Skipulag og umhverfi þeirra tilboða virðist höfða vel til
fólks með skamma skólagöngu. Dæmi um námstilboð
sem vekja áhuga viðmælenda er m.a. að finna hjá Mími –
símenntun, samstarfsaðila Fræðslumiðstöðvar. Þar er t.d.
boðið upp á nám samhliða starfi sem heitir Grunn-
menntaskólinn. Skólinn er fyrir þá sem hafa stutta
skólagöngu að baki, vilja auka við þekkingu sína og
undirbúa sig fyrir frekara nám. Tilgangur Grunnmennta-
skólans er einnig að efla sjálfstraust, samstarfshæfni og
þjálfa sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Í skólanum er
lögð áhersla á að skapa gott og hlýlegt andrúmsloft þar
sem nemendur taka virkan þátt í starfi.Námið er 300
stundir. Hópastærð er 18 manns. Landnemaskólinn er 120
stunda nám, hannað fyrir fólk af erlendum uppruna. Þetta
nám hefur einnig skilað góðum árangri fyrir þátttakendur.
Í gegnum það efla þeir almenna færni, kynnast íslensku
samfélagi og styrkja sitt félagslega net. Aftur í nám er 95
stunda námstilboð fyrir fólk sem glímir við lestrar- og
skriftarörðugleika. Stuðst er við aðferðir kenndar við Ron
Davis. Þar fá þátttakendur tækifæri til að efla námsfærni
og styrkja sig fyrir áframhaldandi nám. Í gegnum rýni-
hópa verkefnisins „Námsráðgjöf á vinnustað“ hefur
komið fram að þátttakendur námstilboðanna telja sig
hafa bætt sjálfstraust sitt og almenna færni. Þeir segjast
jafnframt hafa öðlast jákvæðari sýn á námsmöguleika
sína. Fræðslumiðstöðin hefur nú fengið þessi þrjú náms-
tilboð metin til eininga á framhaldsskólastigi og má ætla
að það virki hvetjandi á þá sem áhuga hafa, sem og þá
sem hafa lokið námi í þeim.
Landnemar
Málefni landnema tengjast aðallega tungumálanámi og
mati á námi frá öðrum löndum. Kennsla í íslensku fyrir
útlendinga fer nú víða fram. Í gegnum viðmælendur hafa
ráðgjafar orðið varir við að það virðist vanta samræm-
ingu í tengslum við uppbyggingu íslenskunáms.
Landnemar virðast ekki vita hvar þeir standa þrátt fyrir að
hafa tekið fleiri en eitt námskeið. Koma þarf á einhvers
konar kerfi þar sem samræmis er gætt í skilgreiningu á
námsstigum og færniviðmiðum í lok þeirra.
Mat á raunfærni
Meðal viðmælenda er hópur af einstaklingum sem gæti
öðlast nýja sýn á námsmöguleika sína ef þeir fengju
metna þá færni sem þeir hafa byggt upp í gegnum störf
sín og einkalíf. Slíkt mat gæti stytt framhaldsskólanám
þeirra og virkað sem hvati fyrir áframhaldandi uppbygg-
ingu á færni. Almennt mat á færni innan fyrirtækja og
staðfesting hennar gæti einnig verið liður í að gefa