Gátt


Gátt - 2004, Side 89

Gátt - 2004, Side 89
89 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S starfsnámskeið eða gagnfræðaskólanám. 65% starfandi, um 102.300 manns, eru á aldrinum 25-54 ára. Um 68% þeirra sem eru í starfi vinna 35 stundir eða lengur á viku. Af skýrslunni „Símenntun í ljósi fyrri skólagöngu” má ráða að af þeim sem höfðu grunnskólamenntun eða minna og tóku þátt í námi utan skóla á 12 mánaða tíma- bili bjuggu 37% utan höfuðborgarsvæðisins. 42% kvenn- anna og 41% karlanna höfðu tekið þátt í námi utan skóla. Aldurshópurinn 25 ára og yngri var fjölmennastur en 77% þeirra sem svöruðu voru yngri en 55 ára. Rúmlega 10.000 manns eða 3,5% landsmanna eru með erlendan ríkisborgararétt. Af þeim koma 68% frá Evrópulandi en 18% frá Asíulandi. Pólverjar eru 18% - langfjölmennastir. Hlutfallslega búa flestir erlendir ríkisborgarar, 6,2%, á Vestfjörðum en flestir, 63%, búa á höfuðborgarsvæðinu. 70% erlendra ríkisborgara eru á aldrinum 20-49 ára. Símenntun í l jós i fyrr i skólagöngu Í skýrslunni „Símenntun í ljósi fyrri skólagöngu“ er gerð sérstök athugun á tengslum formlegrar menntunar svarenda innan skólakerfisins og ástundunar náms innan og utan skólakerfisins. Einnig er gerð grein fyrir bak- grunni þeirra og afstöðu sem sækja síst starfstengd námskeið eða tómstundanámskeið. Könnun á símenntun á Íslandi var gerð dagana 16. apríl til 18. maí 1998. Tekið var 1.800 manna úrtak meðal fólks á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu, svarhlutfall var 75%. Tilgangurinn var meðal annars að fá heildaryfirlit yfir eðli og einkenni símenntunar hér á landi, einkum náms utan skólakerfisins og gera rannsókn á þróun hennar í íslensku samfélagi. Í rannsókninni kemur m.a. eftirfar- andi í ljós: Um 42% kvenna og 41% karla með grunnskólanám eða minna sóttu nám utan skólakerfisins á 12 mánaða tíma- bili. Meðal svarenda sem höfðu lokið grunnskólanámi eða minna var mun- ur eftir aldri þar sem um 43-50% svarenda 54 ára og yngri sóttu nám utan skóla en aðeins um 29% svar- enda 55-64 ára og um 24% svarenda 65 ára og eldri. Um 48% svarenda á aldrinum 35-44 ára sem höfðu lokið grunnskólaprófi eða minna sóttu nám utan skóla. Einnig má sjá marktækan mun á þátttöku í námi utan skóla meðal svarenda 55-64 ára eftir menntun þar sem um 29%, sem höfðu lokið grunnskólanámi eða minna, sóttu nám utan skóla. Þegar nám utan skóla er metið eftir búsetu og menntun svarenda sést að meðal svarenda á höfuðborgarsvæðinu er þátttaka þeirra sem höfðu lokið grunnskólanámi eða minna um 45% en um 37% meðal þeirra sem bjuggu utan höfuðborgarsvæðisins. Sé litið á starfssvið þátttakenda sést að meðal hærri yfir- manna er þátttaka í námi utan skóla minnst hjá þeim sem aðeins höfðu lokið grunnskólaprófi eða bóklegu framhaldsskólanámi. Þátttakan virðist vera mest meðal millistjórnenda (einnig hjá þeim sem minnsta menntun hafa); almennt starfsfólk kemur þar á eftir en hærri yfir- menn og atvinnurekendur virðast síður sækja nám utan skóla. Til þess að meta áhrif menntunar á nám utan skóla eftir atvinnugreinum, var þeim skipt annars vegar í landbún- að, fiskvinnslu, fiskveiðar og iðnað og hins vegar í opin- bera þjónustu, fjármálastofnanir og verslun eða aðra þjónustu. Munur er á þátttöku starfsfólks í þessum atvinnugreinum meðal þeirra sem höfðu lokið grunn- skólanámi eða minna, starfsnámi og verklegu framhaldsskólanámi. Eftirfarandi tafla úr skýrslunni sýnir þátttöku í námi utan skóla á 12 mánaða tímabili eftir menntun og bakgrunni svarenda (aðeins eru sýndar tölur um þá sem sóttu námið): Ásmundur Hilmarsson

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.