Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Síða 14

Læknaneminn - 01.12.1980, Síða 14
er því mikilvægt að einhver sem barnið þekkir sé hjá því. Nefdropar bæta öndun gegnum nefið og loftflæði nálgast að vera það sama og við eðlilegar aðstæður. Gufa losar secretionir úr öndunarvegunum og bæt- ir þannig loftflæði. Ef börnin eru í heimahúsum má Jjví fara með Jjau fram á bað og skrúfa frá heita krananum. A sjúkrahúsi eru Jjau meðhöndluð í raka- tjaldi og gefið súrefni. Hiti veldur auknum efnaskiptum og eykur súrefn- isþörf. Hafi börnin hita yfir 38 skyldi lækka hann með hitastillandi lyfjum t. d. magnyl. (Tafla 9.) Alvarleg tilfelli af pseudocroup eru sj aldgæf. Geta þá komið fram öll einkenni hypoxiu, sem áður er lýst. Venjulega dugir meðhöndlun i súrefnistjaldi og þarf mjög sjaldan að grípa til intubationar. Stera- meðhöndlun við pseudocroup er umdeild. Sænskar heimildir telja sterameðhöndlun sjálfsagða í öllum alvarlegri tilfellum,0’8’13 en bandarsískar heimildir fara varlegar í sakirnar og er þar yfirleitt ekki mælt með notkun stera. Sterameðhöndlun á alvarlegri til- fellum pseudocroup veldur yfirleitt skjótri minnkun á stridor. Sterameðhöndlun er þó aðeins indiceruð í alvarlegri tilfellum og þegar önnur meðferð hef- ur ekki haft áhrif. I flestum tilfellum er nægilegt að gefa stera per os. Börnum sem vega minna en 10 kg má þá gefa 8 Betapred töflur (vatnsleysanlegur steri) á 0,5 g, en þyngri börnum 12 töflur. Sjaldan er Jjörf á að gefa stera parenteralt. Corpus ulienum tracti respiratorii ALMENNT Stridor sem ber hrátt að getur orsakast af aðskota- hlut í loftvegum. Börn stinga oft smáhlutum upp í sig sem hrökkva ofan í þau. Oft er saga um slíkt en ekki alltaf. Einnig er oft saga um að börnin hafi skyndilega blánað eða fengið hósta. Sé minnsti grun- ur um að aðskotahlutur hafi hafnað í öndunarveg- um, skal gefa slíku fullan gaum. Bronchoscopia er 12 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.