Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Page 31

Læknaneminn - 01.12.1980, Page 31
I Rofi FókuS’lKammer & sverta Vinnuáætlun: borö, lampi I | Myndatökutakki 1 I I Mælar og handföng MA-mælir, úrog handfang til still- ingar á MA viö gegnlýsingu KV-stillir og takkar fyrir gegnlýsingu og úr Val á föstum rörstraumi Mynd 1. Auk áðurnefndra takka á stjórnborðinu er að sjálfsögðu rofi til að kveikja og slökkva á tækinu, handföng til að stilla KV, MA og tíma með MAS- tölu, og fleiri en einn lampi geta verið stilltir inn á sama stjórnborð. Er þannig lampi, sem tilheyrir að- alskoðunarborði og annar tillölulega frjáls lampi á röri, sem færa má til eftir rennibrautum í loftinu og notaður er til að taka lungnamyndir upp við stand- inn eða af sjúklingi í rúmi og hliðarlegumyndir á aðalborði, auk skámynda á ýmsa vegu, en hann er með gráðumæli til að sjá halla hans og þar með geislastefnuna. Stjórnborðinu er skipt niður í afmarkaða reiti eða bása til að gera vinnuna einfalda og örugga. Til frekari glöggvunar set ég hér mynd af stjórnljorði (sjá mynd 1). Þá koma önnur atriði, er að myndatökunni lúta. Sjúklingurinn er jafnan látinn standa með framhlið- ina upp að lungnastandinum, en hann samanstendur af lóðréttri súlu, sem borðplata er tengd við og má renna henni til upp og niður eftir súlunni og stilla þannig í rétta hæð fyrir sjúklinginn. Hún er með skúffu fyrir kassettuna og innbyggðri hreyfanlegri síu, dreifisíu fsekundersía, Bucky, Bucky-Potter- blenna eða einfaldlega bucky eða potter) og á milli þeirra eru kammerin, en framhlið hennar er merkt eins og áður greinir (sjá rnyndir 2 og 3). Fjarlægðin er höfð X^-2 m, þ. e. fókus-filmu- fjarlægðin, FFF (eða FFA). Ef sjúklingurinn er mjög veikburða getur jrurft að taka myndina af hon- um í rúminu, s. k. bedside-mynd eða rekkjumynd. Best er að gera það á röntgendeildinni með sömu tækjunum og þar eru notuð við lungnamyndatök- urnar, þau eru fullkomnari og afkastameiri heldur en hinir s. k. mobilar, sem eru færanleg röntgentæki á hjólum til að taka myndir af rúmliggjandi sjúkling- um á sjúkrahúsinu, sem einhverra hluta vegna má ekki flytja á röntgendeildina (mjög veikir, í öndun- arvél, á gjörgæslu o. fl.j. Filmukasettan er þá sett undir sjúklinginn og laus sía ofan á hana, en kasett- ur með innbyggðum síum eru líka til. Þessar síur minnka dreifigeislunina (dreifisíur, sekundersíur) einnig blennan frá eða upp við röntgenlampann (geislablennan, primerblennan, collimator, lichtvis- ier) sem beinir geislunum saman í þéttan vönd (keilu). LÆKNANEMINN 29

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.