Læknaneminn - 01.12.1980, Qupperneq 31
I Rofi FókuS’lKammer
& sverta
Vinnuáætlun: borö, lampi
I | Myndatökutakki
1 I
I
Mælar og handföng
MA-mælir, úrog
handfang til still-
ingar á MA viö
gegnlýsingu
KV-stillir og takkar
fyrir gegnlýsingu
og úr
Val á föstum rörstraumi
Mynd 1.
Auk áðurnefndra takka á stjórnborðinu er að
sjálfsögðu rofi til að kveikja og slökkva á tækinu,
handföng til að stilla KV, MA og tíma með MAS-
tölu, og fleiri en einn lampi geta verið stilltir inn á
sama stjórnborð. Er þannig lampi, sem tilheyrir að-
alskoðunarborði og annar tillölulega frjáls lampi á
röri, sem færa má til eftir rennibrautum í loftinu og
notaður er til að taka lungnamyndir upp við stand-
inn eða af sjúklingi í rúmi og hliðarlegumyndir á
aðalborði, auk skámynda á ýmsa vegu, en hann er
með gráðumæli til að sjá halla hans og þar með
geislastefnuna.
Stjórnborðinu er skipt niður í afmarkaða reiti
eða bása til að gera vinnuna einfalda og örugga. Til
frekari glöggvunar set ég hér mynd af stjórnljorði
(sjá mynd 1).
Þá koma önnur atriði, er að myndatökunni lúta.
Sjúklingurinn er jafnan látinn standa með framhlið-
ina upp að lungnastandinum, en hann samanstendur
af lóðréttri súlu, sem borðplata er tengd við og má
renna henni til upp og niður eftir súlunni og stilla
þannig í rétta hæð fyrir sjúklinginn. Hún er með
skúffu fyrir kassettuna og innbyggðri hreyfanlegri
síu, dreifisíu fsekundersía, Bucky, Bucky-Potter-
blenna eða einfaldlega bucky eða potter) og á milli
þeirra eru kammerin, en framhlið hennar er merkt
eins og áður greinir (sjá rnyndir 2 og 3).
Fjarlægðin er höfð X^-2 m, þ. e. fókus-filmu-
fjarlægðin, FFF (eða FFA). Ef sjúklingurinn er
mjög veikburða getur jrurft að taka myndina af hon-
um í rúminu, s. k. bedside-mynd eða rekkjumynd.
Best er að gera það á röntgendeildinni með sömu
tækjunum og þar eru notuð við lungnamyndatök-
urnar, þau eru fullkomnari og afkastameiri heldur en
hinir s. k. mobilar, sem eru færanleg röntgentæki á
hjólum til að taka myndir af rúmliggjandi sjúkling-
um á sjúkrahúsinu, sem einhverra hluta vegna má
ekki flytja á röntgendeildina (mjög veikir, í öndun-
arvél, á gjörgæslu o. fl.j. Filmukasettan er þá sett
undir sjúklinginn og laus sía ofan á hana, en kasett-
ur með innbyggðum síum eru líka til. Þessar síur
minnka dreifigeislunina (dreifisíur, sekundersíur)
einnig blennan frá eða upp við röntgenlampann
(geislablennan, primerblennan, collimator, lichtvis-
ier) sem beinir geislunum saman í þéttan vönd
(keilu).
LÆKNANEMINN
29