Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Side 61

Læknaneminn - 01.12.1980, Side 61
Hypothalamus Taugaboð Þéttni cortisols í blóði Verkun í frumum Sterar eru fituleysanlegir og komast því yfir frumuhimnur. Þeir geta flœtt frítt yfir himnurnar, en ekki er fyllilega ljóst hvort einhver orkukræfur flutn- ingsmáti kemur þar við sögu. I frymi flestra frumna líkamans eru viðtakar sem glucocorticoíðar bindast. Viðtaka-stera-komplexinn ferðast síðan inn að kjarna frumunnar og binst þar krómatíni. Þetta leið- ir af sér vakningu (activation) gena sem valda mynd- un á mRNA. Þetta mRNA gefur fyrirmæli um ný- myndun próteina sem endanlega gefa sterasvarið. Prótein þessi eru af ýmsum gerðum. Þau geta t. d. verið ensím sem viðkoma efnaskiptum frumunnar, prótein sem viðkoma frumuskiptingu, byggingarpró- tein eða prótein sem fruman notar til útflutnings (secretion). Sem sjá má er hið endanlega sterasvar afrakstur margra efnabreytinga sem allar þurfa tíma til þess að gerast. Því er skiljanlegt að nokkur bið verði á svarinu eftir gjöf sterans. Þessi bið varir yfirleitt í nokkrar klukkustundir. Hemingunartími sterans í blóði segir ekki nema að hluta til um lengd verkunar. Þar ræður helming- unartími nýmynduðu próteinanna einnig miklu. Helmingunartími cortisols er 80-100 mín, en verkun þess stendur í 6-12 klukkustundir. Verkun á líkamann Glucocorticoíðar. 1. Orva nýmyndun glúkósa í lifur. 2. Auka glycogensöfnun í lifur. 3. Minnka upptöku glúkósa í frumur. 4. Örva niðurbrot fituvefs. 5. Örva niðurbrot próteina. 6. Draga úr bólgu- og ofnæmissvörun. 7. Bæla ónæmiskerfið. Við sterameðferð sést aukið niðurbrot fituvefs greinilegast á útlimum, þeir megrast. Með aukinni nýmyndun glúkósa og minnkaðri upptöku hans í frumur hækkar blóðsykur. Honum er svarað með aukinni losun insúlíns. Glúkósinn fer þá inn í frum- urnar og magni umfram þörf er breytt í fitu. Fita þessi sest á herðar, báls og andlit, öðrum stöðum fremur. Margir útlimir og „buffalo humps“ einkenna útlit sjúklinga sem hljóta langa sterameðferð. Glucocorticoíðar í lyfjafræðilegum skömmtum draga úr bólgu- og ofnæmissvörun. Þeir hafa áhrif á mörgum stöðum í svöruninni. Þeir hefta för hvítra blóðkorna úr æðum (diapedesis) og hafa þau áhrif á lysosom að þau losa síður innihald sitt (proteo- lytísk ensím) út til eyðileggingar á nærliggjandi frumum. Einnig fækkar eosinophil blóðkornum í blóðrás. I lyfjafræðilegum skömmtum bæla glucocortico- íðar ónæmiskerfið. Þeir hafa til þess lympholytísk áhrif, þ. e. lymphuvefur, eitlar, thymus og milta skreppa saman. Sama gildir um æxli af lymphuveH uppruna. Sterarnir hafa áhrif á mörg skref ónæmis- svörunar: framgöngu mótefnavakans, mótefnamynd- un, störf gleypifrumna (macrophaga) og loks á bólguna sjálfa. Auk þessa eru sterar notaðir til þess að ná belur fram (potensera) verkun annarra lyfja, t. d. í með- ferð á asthma bronchiale. Virkni nokkurra stera I töflu 1 má finna helstu stera sem notaðir eru. Þar sést samanburður á virkni þeirra. Miðað er við 59 læknaneminn

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.