Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Blaðsíða 68

Læknaneminn - 01.12.1980, Blaðsíða 68
klístur. Voru skellur af þessu á veggjunum öllum og leit út fyrir að Saxi mundi verða freknóttur af að vera mánuð þarna inni. Nú leið að því að Hjalti Kristjáns tæki að sér að- alhlutverkið í myndinni. Þannig var að sum herberg- in voru læst og þurfti Pearson að fara út af örkinni og ræsa sérstakan þartilgerðan mann sem kunni að opna. Sá hafði starfsheitið Porter og var aumingi til lífs og sálar sem talaði óskiljanlegt mál. Hann var ekki nokkur maður til að laliba upp stigana en gerði það þó, og pústaði í hverri tröppu. Og þegar hann var kominn upp á þriðju hæð gekk hann svoleiðis upp og niður af mæði að því verður ekki með orð- um lýst. Þarna uppi varð Hjalti á vegi hans. „Ert þú Porterinn?“ spurði hann frekjulega. „Jhhá,“ svar- aði hinn. „Ætlar þú að bera töskurnar mínar hing- að upp?“ Hinn svaraði ekki, en af öllu fasi hans og augnatilliti mátti ráða akút myocardial infarct. Varð hann þeirri stundu fegnastur þegar hann slapp og gat flúið út í bælið sitt. Um svipað leyti, eða meðan verið var að bíða eft- ir Porternum, voru fáeinir glaðir menn saman komnir úti á stétt. Reikna má með að þeir hafi verið með hávaða. Nema hvað: skyndilega opnast gluggi á 4. hæð og birtist þríbreitt skrímsl af þýskri gerð í bleikri peysu. Var þarna komið gelgjuskeiðskvendið Tanja frá Berlín. Hellti hún úr sér óstjórnlegum orð- flaumi og skömmum á móðurmáli sínu yfir hópinn og var allt hennar fas viðbjóðslegt. Allir kiknuðu undan þessu nema Hjalti. Hann stóð teinréttur með krepptan hnefa á lofti og svaraði nákvæmlega í sömu mynt á brennandi Heidelberg-þýsku, svo hroll- ur fór um áheyrendur. Fallegasta orðið sem hann sagði var „Schweinhund“, við nefnum ekki hin. En við þetta féll bleika skrímslið í glugganum alveg sam- an og fór þrefalt flikk flakk upp í rúm sitt. Var hún ofurliði borin, með taugaáfall og diuresur og bærði aldrei á sér eftir þessa nótt. Fyrsti dagurinn rann upp þungbúinn og erfiður fyrir þunna íslendinga, sem höfðu lognast út af síðla. Herbergin höfðu verið köld um nóttina, en ekki höfðu þau hitnað undir morgun nema síður væri. Og kom nú í ljós að Karl Kristjánsson var frosinn á rúmi sínu. Hafði hann ekki skriðið undir teppin mörgu, sem hann átti að hafa ofan á sér, heldur lagst nakinn undir þunnu pjötluna sem lá efst. 66 Kalli var snarla þýddur upp með kemiskum aðferð- um og varð honum þá að orði: „Mikil er nú skramb- ans kuldatíðin hérna strákar.“ Allir samsinntu þessu og svo tók Kalli gleði sína á ný. Þennan dag átti ekkert að kryfja. Einhver fann út að strætó 1 gengi í bæinn, og svo fóru allir í bæinn. I miðbænum, sem er í engu frábrugðinn öðrum miðbæjum, fengum við fyrst að sannreyna hið stór- merkilega fyrirbæri vinstri umferð. Þannig var að þegar menn gengu út á göturnar litu þeir ævinlega ósj álfrátt í vitlausa átt og fengu þá gjarna brumm- andi bíla aftan í knésbæturnar. Mátti oft litlu muna að skaði hlytist af, en enginn var þó keyrður í neina verulega klessu. Þarna i miðbænum gerðu flestir það sama: fóru á Tourist Information og keyptu kort af borginni, röltu um og skoðuðu búðir og prófuðu veitingahús með misjöfnum árangri. Um kvöldið datt einhverjum í hug að bjóða þýsk- urunum í partý og var það gert. Skriðu þeir þá út úr hýði sínu einn og einn nema Tanja, sem aldrei kom. Þetta reyndist vera allra sæmilegasta lið, miklu skárra en týpiskir þýskir túristar sem allir þekkja. í hópi þessum kynntist Kóli stúlku sem Irina hét og var svo falleg að ekki var hægt að snerta hana, bara horfa. Myndaðist með þeim sterkt Platónskt sam- band, sem endaði í hápunkti, klimax, þegar þau skiptust á adressum. Fyrir kurteisi sakir sagðisl stúlka þessi hafa áhuga á að læra læknisfræði. Daginn eftir var fyrsti krufningadagur. Einhverjir velviljaðir menn höfðu falið strætó í trjáþykkninu neðan við höllina og eftir stuttan en snarpan ratleik fannst hann og allir læknanemar settust inn. Þegar við komum í læknisfræðibygginguna, sem er ný, villtumst við eftir tiltölulega mikla leiðsögn inn í stóran fyrirlestrasal. Þar settust allir á rassgat- ið. Þarna voru ekki bara íslendingar og ekki bara hvítir menn heldur fullt af öðru fólki. Skyndilega birtist dr. Lagopoulos og fór að halda ræðu. Þessi maður var grískur að þjóðerni, svartur á hár og skeggrót eins og Jón Hreggviðsson, en hvít- ur á slopp eins og Ésú. Seinna var hann kallaður Menos. Ég man nú ekki ræðuna, enda var hún á ensku. En hann hótaði að þetta yrði erfitt og ef mæting væri léleg yrðu engin vottorð gefin og engin grið gefin. Allir skulfu í salnum, utan hinn danski LÆKNANEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.