Læknaneminn - 01.10.2002, Qupperneq 5
í yfir 5000 metra hæð í Andesfjöllum.
ingar nokkrum sinnum á ári á torgum og í leikhúsum
Sucre og víðar í Bólivíu. Tvisvar í viku spila sjúkling-
arnir fótbolta og einu sinni í viku eru bíóferðir. Þeir
geta nokkrum sinnum í mánuði unnið dagvinnu á bú-
garði í eigu sjúkrahússins, en einnig rekur það kaffi-
hús sem vistmenn vinna á. Auk alls þessa byggðist
meðferð sjúklinganna á samtölum og lyfjum. Lyfin
sýndust mér í stórum dráttum vera þau sömu og hér á
landi þótt skammtar geti hafa verið aðrir.
Almennt gekk mér vel að skilja sjúklingana en þó
kom það oft fyrir að ég hafði ekki hugmynd um hvað
þeir voru að segja. Það stafaði oft af takmarkaðri
spænskukunnáttu minni, en einnig töluðu sumir þeirra
óskýrt og samhengislaust. Þegar einn sjúklingur var
t.d. spurður að því hvernig hann hefði það, snerist svar
hans alltaf um það að einhver hefði dáið eða þá að
hann langaði í sígarettur og chicha (s-amerískur
drykkur, bruggaður úr maís). Það að vinna á sjúkra-
húsinu var oft sorglegt en gat líka verið mjög broslegt.
Eitt sinn þegar ég var að aðstoða sjúklingana við að
læra að lesa og skrifa gekk ungur maður rólega til mín
og rétti mér samanbrotinn pappírssnepil án þess að
segja orð. A pappírinn var búið að pára hitt og þetta
sem tengdist síðari heimsstyrjöldinni ásamt skamm-
stöfunum stofnana eins og bandarísku alríkislögregl-
unnar og bandarísku leyniþjónustunnar. Jafnframt var
búið að skrifa á niiðann að útlendingurinn (væntan-
lega ég) yrði að gefa viðkomandi sjúklingi smámynt
eða sígarettur, annars myndi jörðin farast í kjarnorku-
sprengingu daginn eftir. Ég brosti bara, rétti honum
aftur miðann og þakkaði honum kurteislega fyrir.
Mér fannst erfiðast að vinna á lokaðri deild þar sem
þyngstu sjúklingarnir eru hafðir saman. Þrír starfs-
menn vinna á deildinni og sjá um 45 sjúklinga seni
sunia hverja þarf að mata og eru að mestu ósjálfbjarga.
Ég tók eftir því þegar ég aðstoðaði í fyrsta skipti á
deildinni að margir sjúklinganna voru bundnir við
matarborðin á matmálstímum og að fáeinir þeirra voru
I spennitreyjum. Mér var sagt að þetta væri gert svo
þeir hlypu ekki um þegar þeir ættu að borða og einnig
gætu sumir þeirra átt það til að ráðast á aðra sjúklinga.
Annað sem mér kom á óvart á deildinni var það að
þarna voru saman geðsjúkir einstaklingar og þroska-
heftir. Mikill minnihluti sjúklinganna virtist geta talað
og þeir gerðu lítið annað allan daginn en að ganga í
hringi í lokuðum húsagarði sem fylltist af alls kyns ó-
hljóðum. Þó gátu sumir þeirra hjálpað við að ná í mat-
inn, leggja á borð og þrífa og fengu þannig ákveðna á-
byrgð. Lítill hluti sjúklinga þessarar deildar háfði getu
til að taka þátt í þeim tómstundum sem sjúklingum af
öðrum deildum stóð til boða.
Meðlimir munkareglunnar og starfsfólk hugsa vel
um sjúklingana og þeinr þykir cinnig mjög vænt um
munkana. A sjúkrahúsinu hafa sjúklingarnir öruggt
húsaskjól, máltíðir og félagsskap. Mikið er um að vera
og reynt að virkja sjúklingana á ýmsum sviðum.
Vandamálið er því það að þeir sjúklingar sem gætu út-
skrifast vilja það ekki. Þeir vita að mun verra líf bíður
þeirra utan veggja stofnunarinnar þar sem enginn mun
vilja ráða þá í vinnu og fólk er hrætt við þá. í framtíð-
inni stefna stjórnendur spítalans að því að koma upp
sambýli í tengslum við sjúkrahúsið þar sem sjúkling-
ar fái nauðsynlegan stuðning en verði þó ekki eins
háðir stofnuninni. I Bólivíu ríkir meðal almennings þó
nokkur vanþekking á geðsjúkdómum og lengi hefur
fólk forðast sjúkrahúsið af hræðslu við að smitast.
Hægt og rólega virðist þó viðhorf almennings vera að
breytast og fólk byrjað að umgangast þá geðsjúku á
upplýstari hátt.
Ég á ógleymanlegar minningar frá dvöl minni í
Bólivíu í sumar og starfinu á geðsjúkrahúsinu.
Reynslan sem ég öðlaðist mun eflaust verða mér mik-
ils virði í framtíðinni í mínu persónulega lífi sem og í
læknisstarfinu. Það sem mér kom annars mest á óvart
við vinnuna á geðsjúkrahúsinu í Sucre er það hve vel
er búið að sjúklingum þar, í þessu annars fátæka landi.
tíma voru haldnar á geðsjúkrahúsinu plat-kosningar fyrir sjúklingana.
Allír sem kusu fengu kexkökur og sígarettur.
3