Læknaneminn - 01.10.2002, Qupperneq 7
Tékkland krufið í tætlur
Elías Þ Guðbrandsson
stud. med
Inngangur
Ég er staddur í stórmarkaði TESCO í Tékklandi að
kaupa mér buxur, einar af þeim sem ég tók með mér í
förina önduðust og tími kominn á þvott hjá hinum.
Þar sem ég stend sveittur og reyni að ráða fram úr ó-
skiljanlegu fatanúmerakerfi hringir síminn. Ég kipp-
ist til af gleði, þetta kailar á stig í vinsældakeppninni.
Mín fyrstu mistök voru að svara. í símanum er knár
bekkjarbróðir minn í ritstjórn Læknanemans og spyr
hvort ég sé ekki til í að skrifa um þetta ferðalag.
Ferðalag til Tékklands, að flensa í innfædda. Seinni
mistökin fólust í svarinu: “Já, ekki málið!” Nu sit ég
sveittur, dæmdur fyrir framan tölvuna, rif seinasta hár-
ið úr höfði mér og rembist sem rjúpan við staurinn að
berja einhvern texta saman.
En í upphafi skal endinn skoða, er sú speki sem ég
hefi lært af móður minni. Hvert má rekja upptökin?
Krufningar á íslandi
Á íslandi eru engar anatómískar krufningar í námi
okkar læknanema. Margt kemur þar til; framboð af
líkömum til að kryíja, landið er fámennt og allir,
meira en minna, skyldir hver öðrum. Því var á árum
áður farið í kennsluferðir til Bretlandseyja, til hinna
ýmsu borga, hvort sem það var í landi Engla eða
Skota. Þessar námsferðir lögðust af á endanum og
verða ástæður þess ekki tíundaðar hér.
Áherslur í kennslu læknanema hafa tekið breyting-
um í gegnum tíðina og er sífellt verið að draga úr mik-
ilvægi líffærafræðinnar í námskránni. En ekki má
gleyma að mikilvægt er að þekkja gerð og byggingu
mannslíkamans. Krufningin er því mjög hjálpleg því
hún gerir fræðin áþreifanleg. Sem dæmi má nefna, að
það að finna n. og a. radialis og kryija leiðir þeirra
fram í handlegg skilur mun rneira eftir sig en að lesa
það í bók eða sjá af myndum.
Einu kynni læknanema á stórsærri byggingu manns-
líkamans fást nú með því að skoða myndaatlasa,
tölvuforrit og svo nokkur lífsýni sem dregin eru fram
í dagsljósið á vordögum til handa fyrsta árs lækna-
nemum, sem læra þá útlimaanatómíuna sína,
topographia membri superioris et inferioris. Að átta
sig á legu strúktúra og afstöðu þeirra innbyrðis ein-
göngu af myndum og texta reynist stundum þrautin
þyngri. Eins og góður maður orðaði það: “Sko, þetta
er allt önnur þrívídd.”
Af hverju var farið
Það er ekki að ég hafi strax hugsað með sjálfum mér,
þegar ég hóf skólun í læknisfræðinni, að leggja land
undir fót og
stúdera frekar
I íffærafræði
mannslíkam-
ans. Fyrst í
vetur fór mér
að koma það
til hugar að
gera eitthvað
slíkt. Var það
í samtölum
við ferðafé-
laga mína,
sem voru
þegar búnir
að ígrunda
þetta mál vel
og vandlega.
Varð úr að ég
skellti mér
með þeim í
för. Alls fór-
um við sex til
Þetta eralltönnur þrívídd.
5