Læknaneminn - 01.10.2002, Blaðsíða 8
Assoc. Prof. Dr. Pavel Fiala, Pli.D.
hafði yfirumsjón með námskeiðinu. Kúr-
sinn við Karlsháskólann í Plzen á sér ríf-
lega 30 ára sögu og hefur Assoc. Prof. Dr.
Pavel Fiala, Ph.D. meira og minna verið
viðloðandi námskeiðið þann tíma. Hann
byrjaði sem aðstoðarmaður, og sem fyrr
sagði fer hann nú með yfirumsjón kúrs-
Séö inn í kviðarhol. Vinstra nýra.
Tékklands, fimm bekkjarbræður og ein kærasta. I
réttri stafrófsröð vorum við Elías, Flelgi, Hermann,
Ottar, Þóra og Þórður.
Eg viðurkenni það fúslega að ég hafði enga hug-
mynd um við hverju ætti að búast af námskeiðinu úti
og var fyrst ekki
viss hvort eitthvað
yrði úr þessum fyr-
irætlunum að
leggja land undir
fót og kryfja ein-
hverja Tékka í tætl-
ur. Það var svo
Hermann sem kom
sér í samband við
Dani og hlutirnir
komust á skrið!
Staðfestingargjald-
ið var greitt, dóm-
urinn felldur. Ut
skal ek.
Námskeiðið
í Tékklandi
Kennslan hófst strax á fyrsta deginum úti. Það er
sama hversu langt er síðan maður var í grunn- og
menntaskóla. Það situr enn í manni að fyrsti dagurinn
eigi bara að vera léttur. Eins og segir í bókmennta-
fræðunum, kynning á persónum. Eftir menntaskólann
er skólabyrjunin eintóm vonbrigði. Maður á von á
náðugum degi en alltaf er byrjað á fullu.
Krufningarsalurinn
Námskeiðið var þannig skipulagt að
dagurinn hófst á fyrirlestrum um þau
svæði sem kryíja átti þann daginn. Fyrir-
lestrar Assoc. Prof. Dr. Pavel Fiala, Ph.D,
voru yfirleitt mjög góðir. Það var heill-
andi að vera í þessum tímum, því Dr.Fiala
var mjög áþekkur Heiðari snyrti og Guð-
jóni Þórðarsyni í útliti. Ef fyrir kom að
manni leiddist, lét maður hugann reika og
maður fílaði sig í búningsklefa. Guðjón væri að berja
ofan í mann hálfleiksræðuna eða Heiðar væri að upp-
lýsa mann að ljósir litir færu hausti ekki vel.
Fyrirlestrarnir hófust klukkan átta, krufningarnar
hófust tveim tímum seinna og þeim lauk ekki seinna
en á hádegi klukk-
an tólf. Krufningin
fór þannig fram, að
hópnum var skipt á
þrjú lík og tók hver
fyrir eitt svæði
þann daginn og
fólk róteraði á milli
svæða. Með orðum
Assoc. Prof. Dr.
Pavel Fiala, Ph.D:
“You must rotate,
we want to make
experts of you but
not experts of one
system but experts
of the whole human
body, so you nuist
rotate. Take one
day the hand and the next day the head. So you will
become experts of the whole body.”
Hópurinn sem tók þátt í kúrsinum taldi tuttuguogs-
jö stykki, sem þýddi níu hausa á skrokk, hverjum
skrokk fylgdu tveir leiðbeinendur. Okkar ná, Pésa,
fylgdu Omed og Marketa okkur til leiðsagnar. An
þess að það verði útskýrt frekar þá reyndist Omed-inn
6