Læknaneminn - 01.10.2002, Page 9
algjör snillingur, faglega sem fé-
lagslega. Maður var fyrst óneit-
anlega smeykur um Danina, ný-
skriðnir úr prófum í útlimaanató-
míunni. Það var ótrúlegt livað sat
eftir í kollinum á manni, auk þess
kom það rnanni mikið til góðs að
vera búinn með haus og háls sem
og iðraanatómíuna. Þar var hægt
að láta Ijós sitt skína umfram
danskinn sem átti þá kúrsa eftir.
Það var hreint ótrúlegt hvað
okkur tókst að kryfja hann Pésa
okkar til mergjar á fimmtán dög-
um. Nánrskeiðið var lika byggt
þannig upp að ekki var einvörð-
ungu um útlimaanatómíu að
ræða. Höfuð og háls voru krufin
sem og iðrin, það er úr brjóst- og
kviðarholi. Pési reyndist okkur ó-
metanleg uppspretta fróðleiks
enda uppfullur af anatómískum
frávikum og stendur deilan um m. palmaris longus
enn. Er fólk enn klofið í andstæðar fylkingar. Aðauki
voru skemmtileg æðafrávik, þar má helst nefna að a.
splenica og arcus palmaris superficialis í manus dext-
er reyndust ekki vera til staðar.
Plzen (boriö fram pilsen)
í Plzen búa um eitthundraðogsjötíuþúsund manns ef
minnið bregst ekki. Borgin var stofnuð 1295 í V-Bæ-
heimi. Borgin liggur um 80 km vestan við Prag.
Plzen er sögufræg borg. Hún var lengi vel öflugri
en Prag. Eftir Húttítta stríðið mátti borgin muna fífil
sinn fegurri og hnignunarskeið rann í garð. Eitt helsta
afrek borgarinnar fyrir heimsmenninguna er fæðing
gullna bjórsins. Saga bjórsins er löng og mikil.
Drukku Egyptar til forna meðal annarra bjór, en þó
ekki þennan gullna mjöð sem er algengastur í dag.
Plzen er ekki að ósekju tengd bjór. Plzen er borið
frarn pilsen og ekki þarf snilling til tengslamyndunar.
Pilsen ... pilsner. Plzen er heimaborg Pilsner Urquell
verksmiðjanna og er vinnslusvæði hennar ívið stærra
en Skoda verksnriðjanna í borginni. Nánari upplýsing-
ar um bjórmenningu heimsins sem og staðarins var að
finna í stórmerku bjórsafni og ennfremur er tilvalið að
heimsækja Pilsner Urquell verksmiðjuna og hitta bjór-
meistarann.
í miðbænum er ógrynni veit-
ingahúsa og ekki þarf að ganga
langt til að finna sér knæpu.
Mæli ég með stað sem stendur
við Palackého stræti, það er
Zach’s pub. Staður sem gefur sig
út sem skoskan bar en afgreiðir
mexíkóskan nrat og er salernisað-
staðan með eindæmum þar. A
Zach’s voru reglulega haldnir
tónleikar. Allir tónlcikarnir þrír
sem við sóttum þangað voru
mjög góðir. Bönd eins og Got-
hart, Traband og Susanna Navar-
rova eru nú ódauðleg í minning-
unni.
Innan borgarmarkanna eru
nokkur vötn sem vert er að heim-
sækja á góðviðrisdögum, til að
kæla sig niður í vatninu eða flat-
maga í sólinni. Nærri vatninu
sem við heimsóttum var lítill bar
og stórskemmtilegt fótboltaspil, fyrir þá sem ekki
hugnast húðkrabbamein.
Vika í Prag
Námskeiðið í Plzen var þriggja vikna langt en ferðin
tók fjórar vikur. í pakkanum var nefnilega innifalin
vikuferð til Prag. Það er lítið um Prag að segja annað
en að í stuttu máli er þar á ferð stórkostleg borg og var
hún hin fullkomna rúsína í pylsuendanum.
Fyrir þá sem áhuga hafa
Frekari upplýsingar um ferðina og kúrsinn má fá hjá
okkur, sem fórum í ferðina. Það má finna upplýsing-
ar um krufningaferðir á heimasíðu danskra lækna-
nema, http://www.imcc.dk, en þar rná einnig finna
upplýsingar um hverjir eru í forsvari fyrir dönsku
nernana. Þeir sem stunda nám sitt í Odense fara til
Plzen og í svipinn man ég ekki hvert Aarhus nemarn-
ir fara. Upplýsingar um tengiliðina má finna beint á
slóðinni: http://www.imcc.dk/subgroups/-
kontakt.php?gruppeID=IO. Ég mæli með því við
hvern sem er að leggja í svona ferðalag. Ekki er þetta
bara ótrúlega skenrmtilegt heldur fær maður líka skír-
teini upp á að hafa lokið krufningakúrs við Karlshá-
skólann.
Einstaklingsmiðuð kennsla
7