Læknaneminn - 01.10.2002, Page 14
Vökvasöfnun í fleiðruhol
Orsakir og greining
Gunnar Guömundsson
Læknadeild Háskóla íslands
Lyflækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss
Inngangur
Vökvasöfnun í fleiðru er algengt klínískt vandamál
sem getur verið af mörgum orsökum. Algengasta or-
sökin er hjartabilun, lungnabólga og krabbamein (1). I
rannsókn sem gerð var á Borgarspítalanum og greint
var frá í Læknablaðinu 1992 kom fram að hjartabilun
er algengasta orsökin, þá lungnabólga, vökvi eftir að-
gerð og svo áverki en illkynja vöxtur var nokkuð neð-
ar á listanum (2).
Líffærafræöi fleiðru
Fleiðran (pleura) er hálhimna (serous) sem hylur
lungnavef, miðmæti, þind og innanverðan brjóstkassa.
Henni er skipt upp í veggfleiðru (pleura parietalis) og
lungnafleiðru (pleura visceralis) sem mætast við
lungnarætur en miðmæti skilur fullkomlega á milli
fleiðru vinstra megin og hægra megin. Lungnafleiðr-
an þekur lungnavefinn og fylgir honum mjög náið inn
um lungnaskorur á milli lungnablaða. Veggfleiðran
hylur brjóstkassan að innan og er skipt upp eftir stað-
setningu í rifja-, miðmætis- og þindarfleiðru. Fleiðran
er uppbyggð af bandvef og einfoldu lagi af þekjufrum-
um (mesothel frumum) en aðgreinanlegur vefjafræði-
Mynd 1: Fleiðruholsástungubakki en í honum er allt sem til þarf til aö
framkvæma ástungu og fjarlægja fleiðruvökva.
Mynd: Þórdís Ágústsdóttir.
legur munur er á lungna- og veggfleiðru. Á milli
lungna- og veggfleiðru er bil, svokallað mögulegt
(potential) bil sem inniheldur þunnt vökvalag. Þetta
vökvalag gerir þessum tveimur himnum mögulegt að
hreyfast gagnvart hvor annarri við öndunarhreyfingar
og verkar því sem einskonar olía (3).
Lífeðlisfræöi vökvamyndunar
Hjá kindum hefur verið sýnt fram á að myndunarhraði
fleiðruvökva er 0,01 ml/kg/klst og virðist sem fleiðru-
vökvi verði að mestu til frá veggfleiðru hjá heilbrigð-
um einstaklingum og eigi upptök sín frá kerfisblóðrás
en ekki lungnablóðrás (4). Fleiðruvökvi er tekinn upp
af vessakerfinu og þá í gegnum raufar (stomas) sem
eingöngu er að finna á veggfleiðru en það jafnvægi
sem er á milli myndunar og upptöku vökva veldur því
að ekki verður uppsöfnun á vökva í heilbrigðum ein-
staklingi (5).
Sjúkleg vökvamyndun
Við sjúklegar aðstæður verður ójafnvægi á myndun og
upptöku vökva sem getur annaðhvort orsakast af auk-
inni myndun vökva eða minnkaðri upptöku (tafla 1).
Vessakerfið hefur nokkra aðlögunarhæfni og getur
tekið 20 sinnum meira magn upp en myndast við eðli-
legar aðstæður. Vökvinn getur komið frá lungum,
æðum í fleiðru, vessaæðum brjósthols eða frá vökva í
kviðarholi (3).
Vökvasöfnun í lungum er algengasta orsök fyrir
vökvasöfnun í fleiðru og getur ástæðan verið hjartabil-
un, lungnabólga og fleira en sýnt hefur verið fram á að
því meira sem vökvamagn í lungum er því meiri er
fleiðruvökvinn (6).
Aukið próteinmagn í fleiðru og minnkað prótein-
magn í blóði getur leitt til þess að vökvasöfnun verði í
fleiðruholi fyrir tilstuðlan osmótískra áhrifa. Þetta get-
ur gerst við aukið gegndræpi frá lungum við sjúklegar
aðstæður eins og lungnabólgu og ef lifrarsjúkdómar
eru til staðar getur magn albúmíns í blóði minnkað og
leitt til sömu áhrifa. Vökvasöfnun getur einnig orðið
12