Læknaneminn - 01.10.2002, Síða 17
Mynd 5: Abrams nál sem notuð er til að taka sýni úr fleiðru.
Mynd: Þórdís Ágústsdóttir
Amýlasi getur verið hækkaður við brisbólgu, vél-
indarof og illkynja vöxt og er þá miðað við eðlilegt
blóðgildi.
Sýrustig er oft lækkað við ýmsa kvilla og er þá mið-
að við pH 7,2 en það sem helst er um að ræða þar er
holsígerð (empyema) af hvaða orsök sem er, lungna-
bólgu, iktsýki í fleiðru, berkla, illkynja vöxt, blóðsýr-
ingu og vélindarof. Fleiri sjaldgæfari orsakir geta
einnig valdið lækkuðu sýrustigi (14).
Eins og komið hefur fram er LDH notað til að meta
hvort um sé að ræða vilsu eða útvessa en LDH er
einnig góður mælikvarði á hversu mikil bólgan í
fleiðruholinu er. Því hærra sem gildið er því meiri
bólga og er því hægt að nota þessa mælingu til að
fylgjast með framgangi sjúkdóma í fleiðru yfir tíma
(3). Ef um er að ræða vilsu og LDH er hækkað en
ekki próteinmagnið þá er orsökin mjög líklega
lungnabólga eða illkynja vöxtur (8).
Hægt er að mæla fleiri þætti í fleiðruvökva eins og
ýmsa æxlisþætti og gera margvísleg próf á honum en
taka verður mið af klínískum einkennum við þá á-
kvarðanatöku.
Myndgreiningaraöferðir á fleiðruvökva
Röntgenmynd af lungum er ekki mjög næm aðferð til
að greina vökvasöfnun í fleiðruhol því talið er að allt
að 300-500 ml þurfi að vera komnir í fleiðruholið til
að það komi fram á standandi mynd með því að fylla
út í fleiðruflóann. Hliðarlegumynd hjálpar til við að
greina hvort vökvinn rennur frítt um fleiðruholið. Al-
mennt er talið rétt að gera ekki blinda ástungu á
fleiðruvökva ef vökvaborðið sem myndast er minna
en einn sentimetri á hliðarlegumyndinni
Omskoðun af fleiðru er mun næmari rannsókn og er
talið að ekki þurfi nema 30 ml til að greina vökvasöfn-
un með slíkri rannsókn. Að auki er hægt að nota óm-
skoðun til að staðsetja vökvann nákvæmlega og ef um
lítið magn er að ræða þá má framkvæma vökvasýna-
töku með aðstoð ómsjár og minnka þannig líkur á
fylgikvillum.
Tölvusneiðmynd greinir fleiðruvökva og getur að
auki greint þykkt vökvans eða hvort frekar sé um
bandvefsmyndun að ræða eða vökvasöfnun. Þá getur
tölvusneiðmynd fært okkur nær orsökum vökvasöfn-
unar, td. með því að sýna fram á fyrirferðaraukningu í
brjóstholi sem gæti verið vegna æxlisvaxtar eða eitla-
stækkana í miðmæti.
Frumurannsókn á fleiðruvökva
Frumurannsókn á vökva er mikilvæg í greiningu á ill-
kynja orsökum og ætti að vera gerð þegar grunur er
um slíkt. Illkynja frumur í fleiðruvökva eru greindar
af útliti sínu sem getur verið margvíslegt hvað varðar
stærð og lögun (pleomorphism). Þær geta verið mjög
stórar og með stóran kjarna og stórt kjarnakorn (3).
Næmi frumurannsóknar er mismunandi eftir rann-
sóknum og er allt frá 40 - 87% (15,17-20). Nokkrar á-
stæður geta verið fyrir þessum mun og má þar nefna
að þótt einstaklingur sé með illkynja vöxt er ekki úti-
lokað að vökvasöfnun í fleiðru sé af öðrunt orsökum.
Einnig er það raunin að mismunandi gerðir illkynja
vaxtar greinast misvel með frumurannsókn á vökva
(3, 7). Þekjufrumukrabbamein greinist t.d. sjaldan við
frumurannsókn á fleiðruvökva þar sem vökvasöfnun-
in er yfirleitt vegna samfalls á lunga eftir lokun á
berkju (15), en við eitilfrumukrababmein er næmið
hærra eða allt að 75% við „diffuse histiocytic
lymphoma” en getur þó orðið um 25% við Hodgkin's
eitilfrumukrabbamein (21).
Lokuð fleiðrusýnataka
Á síðari hluta 6. áratugar síðustu aldar var farið að
framkvæma lokaða fleiðrusýnatöku með svokallaðri
Abrams nál og Cope's nál (mynd 5 og 6) (14, 22).
Lokuð sýnataka úr fleiðru með þessum nálum er mik-
ilvæg til greiningar á sjúkdónnim í fleiðru og á það
sérstaklega við þegar um er að ræða berkla og illkynja
vöxt en aðrir sjúkdómar eins og t.d iktsýki í fleiðru,
sveppasýking eða frumdýrasýking geta einnig greinst
með þessari aðferð (3, 7).
Ef um er að ræða berkla er næmi fyrsta lokaðs
fleiðrusýnis frá 49 - 80% en það er mjög örugg grein-
ing ef hnúðótt (granulomatous) bólga sést í fleiðru-
sýni (17, 18, 23-25).
Við illkynja vöxt er fyrsta fleiðrusýni greinandi í 29
- 54% tilfella en við að taka annað fleiðrusýni má
auka næmið enn frekar (17-19, 23-27). Falskt jákvætt
sýni er mjög sjaldgæft en það sem helst ber að varast
15