Læknaneminn - 01.10.2002, Blaðsíða 25
lyktandi bæjarrónanum út af stofunni með skömm-
urn... Lækningaleyfið mitt verður því sennilega endur-
nýjað í vetur. Einstaka sinnum fanii ég fyrir völdum
mínum sem læknir, t.d. þegar ég setti þyrlu Landhelg-
isgæslunnar í viðbragðsstöðu með einu símtali eða
þegar ég skipaði sjúkrabílstjóranum að lceyra yfir
stærstu gatnamót Islands á rauðu ljósi. Launaseðlarn-
ir týndust fljótt inn og voru hærri en ég hef nokkurn
tíma áður fengið. Eg gat splæst utanlandsferð á fjöl-
skylduna og lifað !mun hærra en á Stúdentagarðaárun-
um. Keypti líka minkapels fyrir konuna til að verð-
launa hana fyrir þolinmæðina. Mikið meira var það nú
ekki. Þrátt fyrir þessu ágætis laun finnst mér ég hafa
verið undirlaunaður og ég tek undir kjarabaráttu heim-
ilislækna í dag. Hvaða verkamaður sem er hefði getað
fengið sömu laun með því að vera við vinnu allan sól-
arhringinn, alla vikuna, allan mánuðinn. Það hefur
ekki liðið sá dagur í þrjá mánuði að ég hef ekki verið
með vaktsímann fastan í beltinu. Heilsugæslulaun
voru kannski góð í gamla daga en þau eru ekki lengur
eftirsóknarverð frekar en að stinga á Ijótan og illa lykt-
andi abscess.
Ég tel mig ekki vera koniinn i guðatölu eftir þetta
sumar, en að minnsta kosti hef ég gert mörgum lífið
bærilegra og hlotið bros og þakkir fyrir. Ég hef öðlast
trú á sjálfan mig sem verðandi lækni og ég er nú full-
viss um að ég hafi valið mér gott nám, góðan lífsstíl
og eigi flott stethoscope. Að sjálfsögðu held ég goð-
sögninni áfrant og segi komandi Clausus nemum
stórýktar sögur af sumrinu. Ég verð hvort eð er löngu
farinn út í sérnám þegar þau komast að bitrunr sann-
leikanum...
Félag Læknanema
Arsskýrsla Félags Læknanema
2001- 2002
Skýrsla stjórnar
Gisli E. Haraldsson
Efnisyf'irlit
Efnisyfirlit 23 Alþjóðanefnd 27
Embætti 24 Stúdentaskipti 27
Formannafundur 24 Nafnabreytingar 27
Kandídatsárið 24 Afmælisráðstefna IFMSA 2001 27
Inntökufyrirkomulag í læknadeild 25 Marsfundur IFMSA 2002 27
Húsnæðismál læknadeildar 25 Sjálfstæðismál 27
Deildarráðsfundir 25 Samstarf við Forvarnarstarfið 27
Deildafundir 25 Framtíðaráform 27
Samskipti við önnur félög innan Háskólans 25 Fulltrúaráð 27
Skemmtanir 26 Kennslti- og fræðsluráð 27
Kjaramál 26 Fræðslufundir. 27
Tölvumál 26 Seta á fundum. 27
Læknaneminn 26 Skipulagning háskólakynningar. 28
Símphysis 26 Bókakostur og fræðabúr FL. 28
Mcinvörp 26 íþróttaráð 28
Ljósritunarmál 26 Háskóladeildin 28
Önnur mál 26 Innandeildarmót 28
Hepatitis B bólusetningar 26 Samantekt 28
Læknanemar til Malaví 27 Hagsmunaráð 28
Að lokum 28
23