Læknaneminn - 01.10.2002, Page 26
Embætti
Á aðalfundi sem var haldinn vorið 2001 var kosið eft-
irfarandi í stjórn félagssins samkvæmt lögum F.L.:
Formaður: Gísli Engilbert Haraldsson
Gjaldkeri : Þorgeir Gestsson
Ritari: Jens Kristján Guðmundsson
Meðstjórnandi 6. árs fram að áramótum : Bjarni Þór
Eyvindsson
Meðstjórnandi 2. árs: Kristbjörg Olsen
Formaður kennslumála og fræðslunefndar: Helga
Eyjólfsdóttir
Formaður Alþjóðanefndar: Steinunn Þórðardóttir
Formaður Fulltrúaráðs: Agnar Bjarnason
Formaður Iþróttaráðs: Elías Þór Guðbrandsson
1 byrjun vetrar tilkynnti Bjarni að hann gæti ekki
sinnt stöðu 6. árs fulltrúa þar sent hann væri í árs fríi
frá námi. Því voru þau Jórunn Atladóttir og Bergþór
Björnsson fenginn til að skipta með sér stöðunni.
Eftir niðurstöður claususprófa í janúar var Sæmund-
ur Oddsson valinn af 1. árs nemum sent fulltrúi þeirra
í stjórn.
Stjórnin kom saman að minnsta kosti einu sinni í
mánuði og oftar ef þörf krafði en þess á rnilli sá fram-
kvæmdastjórnin um almennan rekstur. Starfsemin var
með fremur hefðbundnu sniði.
Formannafundur
Formaður og gjaldkeri F.L. fóru á fund NMSA (nordic
medical students association) í byrjun vetrar. Hann
var að þessu sinni haldirtn í Helsinki í Finnlandi. Á
fundinum var kláruð ályktun varðandi innihald
kandídatsárs á Norðurlöndum. Fyrstu drög að þessari
ályktun voru samin á fundi samtakanna í fyrra sent
haldinn var á Islandi. Aðalumræöuefni þessa fúndar
var að ræða hvernig læknanemar gætu komið skoðun-
um síðnum á framfæri við stjórnendur deilda og
hvernig hægt væri að hafa áhrif um ákvarðanatökur
varðandi námið í læknadeildum. Einnig vaknaði um-
ræða um kandídatsár á Norðurlöndunum og aðferðir
sem hvert land fyrir sig notar til að velja nemendur inn
í deildirnar. Á daginn kom að þessar umræður voru
þarfar fyrir íslendingana og voru ntjög viðkontandi
þeint málum sem stjórnin þurfti að fjalla urn á starfs-
vetrinum.
Kandídatsárið
Tillögur varðandi kandídatsárið hafa oft tekið mikinn
tíma og var það einnig þannig þetta árið.
I byrjun vetrar lýsti deildarforseti yfir vilja sínum
um að lengja kandídatsáriö úr 12 mánuðum í 15 mán-
uði.
I lok október lá síðan fyrir framhaldsmenntunarráði
tillaga, komin frá sviði kennslu og fræða LSH, um
framlengingu kandídatsarsins í 18 mánuði. í þeirri til-
lögu voru einnig hugmyndir um að setja frjálsu vali
kandídata á kandídatsári skilyrði. Þessu mótmæltu
læknanemar harðlega með fulltingi unglækna.
Stjórn F.L. tók á málinu með því að skipa nefnd
innan stjórnarinnar sem samanstóð af Bergþóri
Björnssyni, 6. árs fulltrúa í stjórn; Magnúsi Konráðs-
syni fulltrúa í kennslu- og fræðsluráði; Jórunni Atla-
dóttur, 6. árs nema í stjórn og formanni F.L. Útbjuggu
Magnús og Bergþór greinargerð frá læknanemum
varðandi kandídatsárið. Þar voru útlistuð mótrök
læknanenta sem gengu m.al út á að breytingin væri
komin til af manneklu en ekki út af vilja manna til að
bæta gæði kandídatsársins og að kjaraskerðing yrði
hjá unglæknum, skerðingu á atvinnufrelsi. Fullyrt í
skýrslunni að lenging kandídatsársins myndi einnig
lengja námið og tefja utanfor unglækna. Þar sem að
gæðum og innihaldi kandídatsársins á LSH væri stór-
lega ábótavant ættu forsvarsmenn sjúkrahússins frekar
að einbeita sér að því að bæta kandídatsárið en að
lengja það og að ef lengja á kandídatsárið væri það
ekki forsvaranlegt fyrr en búið væri að stytta námið á
móti. Stjórnin fór að útbúa sína eigin breytingartil-
lögu varðandi kandídatsárið sem gekk út á það að fella
út héraðsskyldu kandídata á kandídatsári og að
kandídatsárið yrði fastsett við 12 ntánuði. Auk þess
hélt nefndin fundi með landlækni, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti, sviðsstjóra kennslu- fræða-
og rannsókna á LSH og Stúdentaráði Háskóla Islands.
Út úr þeirn viðræðunt kont m.a. á daginn að reglugerð-
arbreyting yrði ekki gerð vegna manneklu á sjúkra-
húsum og læknanemar fullvissaðir um ráðherra myndi
ekki taka breytinguna til greina nenta að útræddu máli
hjá læknadeild. Auk þess bauðst Stúdentaráð til að
vera læknanemum innan handar í baráttu um óbreytt
kandídatsár. Einnig var haft samband við félög
læknanema á hinum Norðurlöndunum og þaðan feng-
ust frekari upplýsingar um lengd og innihald
kandídatsáranna þar. Norðmenn tóku sérstaklega vel í
aðstoðarbeiðni F.L. og bauðst félag læknanema í Nor-
egi m.a. til að senda starfsmann, vanan málefnum
kandídata í Noregi, til íslands til að aðstoða F.L. í
kandídatsmálinu ef umræður færu á alvarlegri stig.
Eftir þetta var haldið á deildarráðsfundi þar sem
miklar rökræður fóru í gang varðandi kandídatsárið.
Um miðjan nóvembermánuð var síðan blásið til
félagsfundar F.L. þar sem rætt var um kandídatsárið.
Þá voru félagsmenn fræddir um reglugerðarbreyting-
una og ræddar voru mögulegar aðgerðir til að sporna
við tillögunni að lengdu kandídatsári. Upp komu hug-
myndir urn að ráða lögmann og að vekja athygli al-
mennings á umræðunni nteð því að halda málþing um
málefnið og bjóða viðkomandi aðilum, ráðherra og
fjölmiðlum á þingið. Fór í kjölfar fúndarins í gang
skipulagning á málþinginu sem var fyrirhugað eftir
áramót og leitað var til Stúdentaráðs sem bað um álit
laganema á tillögunni að lengdu kandídatsári.
Rétt fyrir jól urðu óformlegar viðræður við svið
kennslu- fræða og rannsókna við LSH lil þess að til-
lagan varð tekin til endurskoðunar hjá þeim og upp úr
áramótum kom á daginn að tillagan var dregin til
baka. Af þeim forsendum var fyrirhuguðu málþingi
frestað. Þess í stað hófust umræður á deildarráðsfund-
um unt lengingu kandídatsársins í 15 mánuði. Um
svipað leyti leit fyrrnefnd breytingartillaga F.L. um
kandídatsárið dagsins ljós og hlaut mikinn meðbyr í
24