Læknaneminn - 01.10.2002, Page 27
deildarráði. í umræðum á framhaldsmenntunarráði
var afráðið að þau skilaboð, að kandídatsárið ætti að
vera 12 mánuðir, ættu að fara til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis og var deildarráði úthlutað það
verkefni að bera þau áfram. En ákveðið var að bera
ekki fram tillögu um að fella héraðsskylduna út. Þeg-
ar þessi skýrsla er gerð bíður tillagan því umfjöllunar
deildarráðs og e.t.v. deildarfundar áður en hún fer til
ráðherra.
Um miðjan aprílmánuð þessa árs barst síðan tillaga
. frá sviðsstjórum LSH um að lengja kandídatsárið.
Um mitt sumar fór að bera á óróa meðal læknanema
um að verið væri að breyta reglugerðinni í samræmi
við þá tillögu án vitundar læknanema cn í Ijós kom að
þessi ótti var á misskilningi byggður. I kjölfar þeirrar
umræðu sem skapaðist þá var komið á fót nefnd
læknanenta um breytingar á kandídatsári og mun sú
nefnd án efa verða öflugt vopn stjórnar í komandi bar-
áttu um legningu kandídatsársins. Nú bíður tillaga
sviðstjóranna á LSH umræðu á framhaldsmenntunar-
ráðsfundi.
Inntökufyrirkomulag í læknadeild
í kjölfar nýrrar námsskrár framhaldsskólanna og til-
skipunar um að sýna ætti gömul klásuspróf í lækna-
deild fyrir 4 árum ákvað læknadeild að breytingar
yrðu gerðar á inntökufyrirkomulaginu í læknadeild.
Það hefur verið skoðun F.L. að núverandi fyrirkomu-
lag sé óheppilegt þar sem að hjá þeim sem þreyta nu-
merus clausus próf um áramótin hafa sótt strangt nám
í heila önn án þess að fá það metið nokkursstaðar.
Einnig hafa verið á lofti efasemdarraddir um það
hvort numerus claususpróf sé rétta leiðin til að velja
nemendur inn í læknadeild.
Stjórn F.L. lýsti því yfir mikilli ánægju yfir því þeg-
ar í ljós kom vorið 2001 að breytingar á inntöku
læknanema í deildina mundu ganga í gegn sumarið
2002. Læknanemar höfðu tekið þátt í breytingunum í
gegnum fulltrúa sent sátu á fundum Kennsluráðs. Við
lokaundirbúning þessara breytinga lögðu læknanemar
áherslu á að búið yrði að ákveða og birta námsefni til
prófs fyrir áramót, að tilvonandi læknanemar þurftu
ekki að greiða hærri gjöld fyrir sitt nám en aðrir há-
skólanemar í formi próftökugjalds og að grundvallar-
réttindi þeirra sem prófin þreyta væri að eiga rétt á
sjúkraprófi. Einnig var í umræðunni hvort hafa ætti
öðruvísi fyrirkomulag fyrir gamla claususnema en á-
kveðið að svo skyldi ekki vera. Gengið var frá öllum
helstu þáttum breytingar og hún samþykkt í háskóla-
ráði 8. nóvember.
Þegar niðurstöður claususprófa lágu fyrir í janúar
létu margir af þeim claususnemum, sem ekki voru
valdir inn í deildina, til sín heyra og lýstu yfir óánægju
og bentu á ýmsa vankanta varðandi það að breyta fyr-
irkomulaginu varðandi inntöku. Meðal þeirra atriða
sem þeir komu fram með var að breytingin hafi ekki
verið nægilega kynnt. Þrátt fyrir að forsvarsmenn
breytinganna hafi reynt að sýna fram á að kynning
hafi farið fram kom allt fyrir ekkert og ákveðið var að
fresta breytingum á inntökuprófum og munu þær
ganga í gegn sumarið 2003. Enn á eftir að ákveða
hvort halda eigi sjúkrapróf eða ekki.
Húsnæðismál læknadeildar
Enn urðu tafir á því að stjórnin fengi aðstöðu undir
starfsemi sína og annarra embættismanna félagsins.
Þó byrjaði kjallarinn í Læknagarði, sem var rýmdur
með tveggja daga fyrirvara haustið 1997, loksins að
taka á sig mynd og fyrir áramót var búið að koma upp
kaffi- og veitingasölu sem rekin var af Félagsstofnun
stúdenta. Einnig var tölvuver, sem áður hafði verið
staðsett á 3. hæð í læknagarði fært niður í kjallara og
Problem based learning herbergi spruttu upp eins og
gorkúlur á hinum ýmsu stöðum í Læknagarði. En enn
lét stjórnarherbergið ekki á sér kræla, ekki fyrr en þeg-
ar upplestur fyrir vorpróf var hafinn og hefur því ný-
skipuð stjórn nú splunkunýtt herbergi til afnota og
umráða. Aðstöðuleysi hefur háð stjórninni umtalsvert
undanfarin 5 ár og m.a. hefur hið öfluga fræðabúr
glatast á þeim tíma. Nú tekur því við mikil vinna við
að byggja það upp aftur.
Það lá í loftinu og á göngum Landspítala, háskóla-
sjúkrahúss við Hringbraut að læknanemar myndu
missa næstsíðustu lesstofu sína fyrir vorpróf, þ.e. les-
stofuna á 4. hæð við heilsuverndarstöðina við Baróns-
stíg og enn höfðu nemendur ekki fengið aðra aðstöðu
í stað þeirrar sem rýmd var með tveggja daga fyrirvara
haustið 1997. í ljós kom þó að læknanemar munu
halda lesstofunni við Barónsstíg um ókomna framtíð
og eftir að kaffistofu nemenda á 3. hæð í Læknagarði
var lokað í vor, stendur nú til að læknanemar endur-
heimti 3. lesstofuna sína aftur.
Deildarráðsfundir
Mörg mál voru tekin fyrir á deildarráðsfundum á síð-
asta starfsári. M.a. var auk áðurnefndra umræðna um
kandídatsár og inntökupróf mikið rætt um samninga
milli læknadeildar og Landspítala háskólasjúkrahúss.
Þar var tekið á mörgum málum og þar voru ýmis mál
sem vörðuðu læknanema. Hclst má þar nefna að-
stöðumál fyrir nemendur eins og búnings-, les- og
svefnaðstöðu auk fyrirlestrarsala.
Einnig var lögð lokahönd á þróunaráætlun lækna-
deildar
Deildafundir
Deildarfundir voru haldnir með reglulegu millibili sl.
vetur. Þar má helst nefna að kynntar voru breytingar
á inntökuprófum og kandídatsmál rædd lauslega. Ein-
kennandi var léleg mæting hjá fulltrúum nemenda og
er þar bótar þörf. Eru fulltrúar komandi starfsveturs
hvattir til að ganga úr skugga um að heimilisfong
þeirra séu rétt hjá skrifstofu læknadeildar og að mæta
vel deildarfundi þar sem deildarfundir eru æðsta
ákvörðunarvald læknadeildar.
Samskipti við önnur félög innan Háskólans
Að venju var haldið jólaball með hjúkrunarfræði, tölv-
unarfræði og sálfræði. Nokkur misskilningur var á
milli staðahaldara og deildanna sem olli því að ballið
25