Læknaneminn - 01.10.2002, Page 28
var illa sótt. Á síðustu stundu tókst að ganga frá hnút-
unum þannig að ekki hlaust tap af jólaballinu sent þó
var frekar illa sótt. Einnig sóttu læknanemar 2 bjór-
kvöld með öðrum deildum Háskólans.
Skemmtanir
Árshátíð FL. var með glæsilegasta móti á síðasta
starfsvetri. Eftir væg bókunarvandamál var hún hald-
in í Súlnasal Hótel Sögu og var Halldór Jóhannesson
heiðursgestur að þessu sinni. Engilbert Sigurðsson
hlaut kennsluverðlaun læknanema að þessu sinni fyrir
að bylta kennslufyrirkomulaginu í geðlæknisfræði svo
að þessi áður lítt vinsæli hluti námsins er nú orðinn
aðlaðandi fyrir margann læknanemann.
Einnig voru 1. árs nemar boðnir velkomnir í deild-
ina að fornum sið í byrjun vorannar. Var uppákoman
haldin á Kaffi Reykjavík þar sem eldri nemum gafst
kostur á að kynnast 1. árs nemum og að venju var á
boðstólnum spiritus fortis bolla. Til allrar hamingju
skiluðu læknanemar sér aftur til náms að helginni lið-
inni óskemmdir. Frekari skemmtanir verður fjallað
um hér á eftir í hluta fulltrúaráðs.
Kjaramál
í byrjun haustannar voru samningar lækna og ríkisins
lausir og til stóð að um áramót myndu samningavið-
ræður byrja. Þar sem laun læknanema eru miðuð við
laun lækna voru þessir samningar mál sem kom
læknanemum við og bauðst Félag unglækna til að
ganga að samningsborðum fyrir okkar hönd. F.L. þáði
það nieð því skilyrði að læknanemi fengi að sitja
kjarafundi unglækna. Þegar stðan kom að umræðum
neitaði Læknafélag Islands unglæknum umboði til að
semja fyrir læknanema. í kjölfar þess fóru Ragnar
Freyr Ingvarsson og Jóhann Páll Ingimarsson, fulltrú-
ar úr hagsmunaráði að skoða möguleikann á að lækna-
nemar fengju einhvers konar aðild að Læknafélaginu.
Tekið var vel í þær fyrirspurnir en í Ijós kom að marg-
ar hliðar eru á því máli og var hagsmunaráði falið að
hefja viðræður við Félag unglækna varðandi einhvers
konar aukaaðild. Stuttu seinna slitnaði uppúr sam-
starfi mili unglækna og Læknafélagsins og ekkert hef-
ur orðið úr þeim viðræðum enn.
Þegar læknanemar tóka að heíja störf við LSH síð-
asta vor kom í Ijós að stjórnendur sjúkrahússins ætl-
uðu að svíkja þá um áður gefin loforð varðandi laun.
Þá tók KolSrún Pálsdóttir sig til fyrir hönd verðandi
stjórnar og tók á því máli með stakri prýði. Því verð-
ur það í verkahring komandi stjórnar að greina frá því.
Tölvumál
Undir lok síðasta vetrar var stjórn bent á kosti þess að
setja upp heimasíðu á svokölluðum asp-grunni. Kost-
ir asp-grunns eru mjög margir umfram þann grunn
sem fyrri heimasíða var á. Sem dæmi má nefna
möguleikann á lokuðu svæði fyrir nemendur þannig
að hægt sé að geyma ýmsar upplýsingar og að breyta
eigin upplýsingum í símphysis. Einnig má nefna
möguleikann á betri stjórnun pósthópa og umræðu-
hópa á heimasíðunni. Eina vandamálið hefur verið
það að netþjónn Háskólans býður elcki upp á asp-
grunn og því þyrfti F.L. að leigja aðgang grunni utan
Háskólans. í ljós kom að kostnaðurinn við leigu á
asp-aðgangi var vel viðráðanlegur og ákveðið var sl.
sumar að setja upp nýja heimasíðu F.L. Leit hún síðan
dagsins ljós síðla sumars og er að matri flestra mun
betri og aðgengilegri en fyrri heimasíða og í ljós hef-
ur komið að læknanemar hafa verið duglegir að nýta
sér þær nýjungar sem hún hefur upp á að bjóða.
Læknaneminn
Læknaneminn kom út í vor eftir þónokkuð hlé. Var út-
gáfa hans til fyrirmyndar og þar er til staðar öflugt og
fræðilegt málgagn fyrir læknanema svo og aðra. Út-
gáfa hans að þessu sinni kom út á sléttu og til stendur
að gefa út annað blað nú á haustmánuðum.
Einnig má geta þess að fjárhagur FL. hefur nú loks-
ins rétt sig við eftir fyrri skuldir læknanemans.
Símphysis
Símphysis kom út á vorönn eins og hún hefur gert
undanfarin ár þrátt fyrir stór loforð um að gefa hana út
á haustönn. Vegna anna varðandi kandídatsmál og
hversu hægt gekk að útvega auglýsingar í blaðið.
Vegna þess hve seint símphysis hefur komið út og nú
þegar heimasíðan er orðin betri hafa vaknað spurning-
ar um það hvort hætta eigi að gefa símphysis út og
kemur það í hönd verðandi stjórnar að ákvarða það.
Meinvörp
Meinvörp komu út reglulega á þessum starfsvetri að
venju. Meinvörp eiga nú einnig á hallan að sækja
vegna netvæðingar læknanema. Þau eru þrátt fyrir það
öflugt niálgagn læknanenta og eru þeir hvattir til að
skrifa meira þangað.
Ljósritunarmál
I byrjun starfsárs áttu lænkanemar 2 ljósritunarvélar.
Eina staðsetta á 3. hæð í læknagarði og aðra eldri á 4.
hæð í heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Síðar-
ncfnda vélin tók upp á því að bila strax í byrjun starfs-
árs og svaraði ekki kostnaði að gera við hana. Þar sem
vélin á Læknagarði hafði skilað tapi síðan hún var
keypt ákvað stjórn að ekki skyldi farið í að kaupa nýja,
heldur að hagræða rekstri hinnar vélarinnar. Gekk það
vel og á ljósritunarstjóri á Læknagarði, Kristján
Dereksson, hrós skilið fyrir góðan rekstur vélarinnar.
Þess má geta að eftir ár munu læknanemar fá vélina til
eigna og mun rekstrarkostnaður við hana þá lækka
umtalsvert. Eftir að þeirri aðstöðu þar sem ljósritun-
arvélin var lokað í sumar er nú verið að leita að nýrri
staðsetningu fyrir vélina á læknagarði.
Önnur mál
Hepatitis B bólusetningar
Undanfarin ár hafa læknanemar átt kost á bólusetn-
ingu við lifrarbólgu B. veirunni. I lok október kom
það mál inn á borð til stjórnar að hætt væri að bjóða
upp á þessar bólusetningar og margir læknanemar hafi
misst úr sprautur þess vegna. Við frekari eftirgrennsl-
26