Læknaneminn - 01.10.2002, Qupperneq 29
an kom í ljós að þar var um samskiptaörðugleika milli
læknanema og starfsfólks Landspítala að ræða.
Læknanemar eiga enn kost á bólusetningum og stjórn
mælir eindregið með því að þeir nýti sér það til að
bólusetningarnar falli ekki niður.
Læknaneniar til Malaví
Það kom inn á borð deildarforseta á haustönn að til
boða stóð að senda 2 læknanema til Malaví vatns í
rannsóknartengt verknám við sjúkrahús sem Sam-
vinnuþróunarstofnun Islands er að smíða þar. Viðræð-
ur hófúst við Samvinnuþróunarstofnun og íslenskan
lækni sem starfar við sjúkrahúsið og varð úr að næsta
sumar munu 2 læknanemar sem lokið hafa 4. ári lík-
lega eiga kost á að fara þangað næsta sumar og fá
vinnu sína þar metna sem 4. árs verkefni. Islenska rík-
ið mun greiða kostnað við uppihald, bólusetningar og
ferðakostnað auk lágmarkslauna.
Alþjóðanefnd
Stúdentaskipti
Fjórtán íslenskir læknanemar fóru utan á vegum
nefndarinnar sumarið 2001. Farið var til Slóvakíu,
Spánar, Grikklands og Tyrklands. Við tókum síðan á
móti yfir 20 erlendum stúdentum í júlí og ágúst og
sáum þeim fyrir fæði, húsnæði, kennslu og ferðalög-
um út úr bænurn um helgar. Sumarstarfið var sem fyrr
í samstarfi við alþjóðafélög annarra deilda, þ.e. AIES-
EC (viðskiptafræði), ELSA (lögfræði) og IAESTE
(verkfræði- og raunvísindadeild).
Nafnabreytingar
Vegna þess marghliða hlutverks sem nefndin gegnir í
samskiptum við Alþjóðasamtök Læknanenta (-
IFMSA) var ákveðið að réttara væri að kalla hana Al-
þjóðanefnd en Stúdentaskiptanefnd (eins og gert hef-
ur verið hingað til). Var þetta samþykkt á aðalfundi
Félags Læknanema vorið 2001.
Afmælisráðstefna IFMSA 2001
Nefndin sendi 6 fulltrúa á ráðstefnu sem haldin var í
Alaborg í Danmörku í ágúst s.l. í tilefni af 50 ára af-
mæli IFMSA. Þessir fulltrúar voru: Helga Eyjólfsdótt-
ir, Ólöf Viktorsdóttir, Steinunn Þórðardóttir, Sigur-
björg Sigurjónsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Þorgerður
Guðmundsdóttir. Var ráðstefnan einstaklega vel
heppnuð og gagnleg fyrir íslensku sendinefndina.
Marsfundur IFMSA 2002
Sendir voru tveir fulltrúar á ráðstefnu IFMSA í Kopa-
onik í Júgóslavíu nú í mars. Þeir voru Hulda Rósa Þór-
arinsdóttir og Sigurbjörg Sigurjónsdóttir. í Júgóslavíu
var gcngið frá stúdentaskiptasamningum fyrir næsta
sumar og ætla fjórir Islendingar út og yfir 20 útlend-
ingar koma hingað.
Sjálfstæðismál
Nú hefur verið stefnt að því í nokkurn tíma að nefnd-
in verði sjálfstætt félag, óháð Félagi Læknanema. A-
stæða þessa er sú að sem sjálfstætt félag hefur nefnd-
in rétt á meiri fjárveitingum en ella, m.a. úr Stúdenta-
sjóði, og framlög til hennar skerðast ekki lengur í réttu
hlutfalli við þá styrki sem FL hlýtur til annarrar starf-
semi. Nefndin mun að sjálfsögðu vera áfram í nánu
samstarfi við FL eftir breytinguna. Þessi tillaga mun
verða lögð fyrir aðalfund FL þann 23. apríl 2002 og ný
lög nefndarinnar kynnt.
Samstarf við Forvarnarstarfið
Náðst hefur ágætis samstarf við Forvarnarstarf lækna-
nema og er það von okkar að það muni eflast í fram-
tíðinni. Hugmyndin að forvarnarstarfinu varð til á
norrænni IFMSA ráðstefnu og eru svipuð verkefni í
gangi víðs vegar um heim sem gott er að deila reynslu
sinni með. Fulltrúar Forvarnarstarfsins sóttu ráðstefnu
IFMSA í Júgóslavíu í mars og norrænu ráðstefnuna í
apríl.
Framtíðaráform
Aðaláherslan verður lögð á að efla fleiri þætti alþjóða-
samstarfsins en stúdentaskiptin. Á ráðstefnum IFMSA
er unnið í mörgum undirnefndum sem taka á ýmsum
áhuga- og baráttumálum læknanema um allan heim.
Vonir standa til að íslenskir læknanemar geti verið
virkir og haft áhrif á sem flestum sviðum þessa starfs.
Til þess að þetta geti orðið að veruleika er nauðsynlegt
að fá sem flesta áhugamenn um alþjóðasamstarf til
Iiðs við okkur.
Fulltrúaráð
Síðastliðinn vetur hafa verið haldnar þónokkrar
skemmtanir á vegum Félags læknanema. Samtals var
farið í 6 vísindaferðir í boði ýmissa fyrirtækja. Auk
þess var sú hefð að fara í haustferð á vegum félagsins
tekin upp á ný eftir nokkurra ára hlé. Læknanemar
þáðu tvisvar boð um bjórkvöld frá öðrum deildum og
héldu í jólaball í desember í samvinnu við önnur nem-
endafélög. Annað árið stóð svo fyrir glæsilegu
jólaglöggi í upphitunarskyni fyrir ballið. í febrúar var
svo árshátíð félagsins haldin. Fulltrúaráð varð fyrir
smávægilegum bókunarvandræðum og neyddist til að
flytja árshátíöina á Hótel sögu með aðeins nokkurra
daga fyrirvara. Engu að síður fór allt vel fram og
skemmtunin tókst framar vonum. Fulltrúaráð þakkar
samnemendum fyrir góðar samverustundir á árinu.
Kennslu- og fræðsluráð
Fræðslufundir.
Haldnir voru nokkrir fræðslufundir sl. vetur, m.a. um
áfallahjálp eftir atburðina í NY 11. september, sam-
kynhneigð, HIV og alnæmi (í samstarfi við forvarnar-
starO og fleira.
Seta á fundum.
Fulltrúar frá nefndinni sátu í hinum ýmsu ráðum á
vegum Læknadeildar og nemenda:
Kennsluráð, 2 fiulltrúar:
Umræðan hefurað mestu snúist um inntökupróf, mik-
il orka fór í þetta mál sl. vetur og að lokum ákveðið að
27