Læknaneminn - 01.10.2002, Side 30
fresta innleiðingu nýrra prófa þar til í júní 2003.
Clausus verður haldinn með nýju sniði nlc. desember.
Einnig var fjallað um endurskipulagningu námskeiða
á preklínísku árunum. Þær breytingar sem gerðar
voru eru stórt skref í rétta átt að vel skipulögðu lækna-
námi.
Lesstofumál læknanema voru endurtekið verið tek-
in fyrir á þessum fundum, en lítið verið um svör frá
Læknadeild. Loforð þó veitt fyrir því að unnið verði
að því að skapa fleiri lespláss og stöðugleika í les-
stofumálum, sem hefur skort á.
Deildarráð, 1 J'ulltrúi:
Formaður nefndarinnar sat í deildarráði, ásamt for-
manni FL. Fjallað var um ýmis mál í vetur, starfs-
mannamál, stöðuveitingar og margt fleira. Fjallað
hefur verið talsvert um samning Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss og Læknadeildar. Haldnir hafa verið tveir
langir vinnufundir þar sem farið var yfir framtíðar-
stefnu Læknadeildar næstu árin. Lesstofumál bar á
górna en verið vísað aftur til föðurhúsanna, kennslu-
ráðs.
Deildarfundir:
5 fulltrúar frá nemendum sátu á deildarráðsfundum,
þar af einn frá nefndinni.
Seta í stjórn FL:
Mikill tími fór í kandídatsmál sl. vetur. Stefnt var að
því að halda málþing um kandídatsárið, með þátttak-
endum beggja fylkinga (stúdenta og Landspítala),
með tilheyrandi tjölmiðlaumfjöllun.
Seta í framhaldsmenntunarráði:
Enn og aftur aðallega kandídatsárið!
Skipulagning háskólakvnningar.
Háskóladagur var haldinn í mars og var mjög fjölsótt-
ur. Þar var kynnt fyrirkomulag inntökuprófa og
claususfyrirkomulag í des 2002. Þótti þetta takast vel
og básinn okkar hefur sjaldan verið jafn lekker :)
Bókakostur og fræðabúr FL.
Síðastliðinn vetur var engin aðstaða fyrir stúdenta á
þessu sviði en þetta stendur allt til bóta og fræðabúrið
er að koma sterkt til leiks aftur. Komin er þó sam-
keppni í þessum málum, www.studmed.com.
Ýmsar hugmyndir voru í burðarliðnum t.d. forvarnar-
starf læknanema gegn reykingum. Þetta er hugmynd
sem bæði hefur komið upp í Alþjóðanefnd og í
Kennslu- og fræðslunefnd. Þetta vakti mikla jákvæða
athygli í deildarráði og verður gæluverkefni Lælcna-
deildar þegar að framkvæmd kemur. Einnig var hug-
mynd uppi um að halda streitustjórnunarnámskeið
fyrir læknanema, fá sérfræðinga til að kenna okkur
streitustjórnun og slökun.
íþróttaráð
íþróttaráð stóð fyrir þáttöku FL í Háskóladeildinni,
keppni milli skora HI, auk þess sem haldin voru þrenn
innandeildarmót.
Háskóladeildin
Riðlakeppni fór fram á haustmisseri og tryggði Iækna-
deild sér sæti í úrslitakepninni og sæti í úrslitaleik.
Þar bar læknadeild sigurorð af lögfræðideild og er Há-
skóladeildarmeistari 2002.
Innandeildarmót
Á haustmisseri fór fram á gervigrasinu í laugardal
knattspyrnumót FL og var þar vel mætt. Þar bar þriðja
árið verðskuldaðan sigur úr býtum.
Á vormisseri fóru svo fram innanhúsmót í knatt-
spyrnu og körfuknattleik. Vann fyrsta árið bæði mót-
in í karlaflokki en í kvennaflokki knattspyrnumótsins
báru annars árs hnátur sigur úr býtum fyrsta ársins.
Samantekt
Vegna mikillar óvissu um embættisskipan í íþrótta-
nefnd hóf hún störf það seint að ekki var komið við að
halda hið árlega golfmót, sem haldið er á haustmisseri
ár hvert. Vonandi verður gerð bragarbót á á næsta
starfsári. Annars fóru öll mót vel fram og var gleðin
ávallt höfð í fyrirrúmi. íþróttanefnd næsta árs er kvött
til dáða og dugs.
Hagsmunaráð
Hagsmunaráð hittist einu sinni á haustönn. Þá var rætt
um lesstofumál, lengingu kandídatsársins og kjara-
mál. Afráðið var að einbeita sér að launamálum og
eins og áður sagði endaði það með því að nú stendur
til að funda með Félagi unglækna varðandi einhvers
konar aukaaðild að félaginu. Þrátt fyrir þessa vinnu
hefur hagsmunaráð verið lítt starfandi síðasta starfsár
svo og öll önnur starfsár frá stofnun þess. Ástæðan
hingað til hefur líklega verið sú að formaður FL. á
einnig að gegna formennsku ráðsins, boða fundi og
stjórna þeim. I bígerð eru nú tillögur um að breyta
því, færa formennskuna í hendur annars aðila og
fjölga í ráðinu í von um að hægt verði að virkja ráðið
betur.
Að lokum
Síðasta starfsár var óhefðbundið að því leyti hversu
mörg þungavigtarmál kornu upp eins og kandídatsár-
ið, inntökupróf, launakjör og aðbúnaðarmál og tóku
margir emþættismenn félagsins höndum saman og
tóku á þessum málum svo sómi hlaust af. Góð sam-
vinna var milli stjórnar og annarra nefnda og ráða inn-
an félagsins. Um Ieið og ég óska nýrri stjórn velfarn-
aðar í komandi baráttu vil ég nota tækifærið og þakka
þeim sem áttu hlut að máli undanfarinn starfsvetur
fyrir góða samvinnu á liðnu starfsári
28
Fh. fráfarandi stjórnar
Gísli Engilbert Haraldsson
formaður F.L.