Læknaneminn - 01.10.2002, Síða 32
Verkefni 4. árs læknanema
Ónæmisfræöi miöeyrnasýkinga í rottum
-áhrif bólusetningar á sýkingarmynd.
Arnfríöur Henrýsdóttir", Hávard Jakobsen2’, Hannes Petersen3),
Karl G. Kristinsson41
Anna Björk Magnúsdóttir51, Ann Hermanson51, Ingileif Jónsdóttir2),
"Læknadeild Háskóla íslands, "Ónæmisfræðideild-, 3)Háls-, nef og
eyrnadeild-, "'Sýklafræöideild-, Landspítala Háskólasjúkrahúsi,
5)Háls-, nef og eyrnadeild, Háskólasjúkrahúsið í Lundi, Svfþjóö.
Jnngangur: Eyrnabólgur eru algengar og ein helsta
ástæða sýklalyfjagjafar hjá börnum. Ein algengasta
bakterían sem veldur eyrnabólgum er Streptococcus
Pneumoniae. Vaxandi sýklalyfjaónæmi m.a. hér á
landi hefur aukið þörfina á fyrirbyggjandi aðgerðum
eins og bólusetningum. Fjölsykrubóluefni er gagnlegt
gegn pneumókokkasýkingum í fullorðnum, en vekur
ekki ónæmissvar i aldurshópnum ( 2 ára. Prótein-
tengd-pneumókokkabóluefni vekja verndandi ónæmi í
ungbörnum, og veita nokkra vernd gegn eyrnabólg-
um. Markmiðið var að kanna mótefnamyndun gegn
slíkum bóluefnum og áhrif á miðeyrnabólgu í rottum.
Efniviður og aðferðir: 18 Sprague-Dawley rottur
voru bólusettar undir húð með Prevenar (7 hjúpgerðir
pneumókokkafjölsykra bundnar Diptheria-próteininu
CRM197), 1/4 af barnaskammti á degi 1 og 14; 18
voru óbólusett viðrnið, 4 voru hyperbólusettar með
bóluefni auk ónæmisglæðis. Á degi 28 voru rotturnar
sýktar með Streptococcus pneumoniae, hjúpgerð 6B, í
vinstra miðeyrað. Bláæðablóð var dregið úr hala fyrir
bólusetningu, dag 14, 28 og 39. IgG-mótefni gegn
hjúpgerðunum 7 voru mæld með ELISA. Niðurstöð-
ur: í bólusetta hópnum varð marktæk aukning á IgG
mótefnastyrk gegn öllum 7 hjúpgerðum frá degi 1 til
28. Var styrkur mótefna mismunandi og reyndist 6B
hlutfallslega veikur ónæmisvaki. Munur á mótefna-
styrk bólusetta hópsins og viðmiðunarhóps var einnig
marktækur á degi 28. Allar rotturnar fengu miðeyrna-
sýkingu, eftir inngjöf hjúpgerðar 6B á degi 29. Bólu-
setti hópurinn féldc vægari sýkingu og reyndist mark-
tækt fljótari að ná bata. Ein rotta úr viðmiðahóp fékk
ífarandi sýkingu og lést fyrir lok tilraunar. Ályktun: 7-
gilda pneumókokkabóluefnið Prevenar, vekur
mótefnasvar í rottum gegn öllum hjúpgerðunum. Það
kom ekki í veg fyrir miðeyrnasýkingu pneumókokka
af hjúpgerð 6B við þessar tilraunaaðstæður, en virtist
stuðla að vægari sýkingu og hraðari bata.
Dauðsföll af slysförum 1999 - 2001:
Orsakir og áhættuþættir
Ágúst Ingi Ágústsson", Jón Baldursson2’, Brynjólfur Mogensen3’,
Gunnlaugur Geirsson4', Sigurður Guðmundsson51
1)Háskóli íslands,21 Landspítali háskólasjúkrahús, Slysa- og bráöa-
deild,31 Landspílali háskólasjúkrahús, Slysa- og bráðasviö,41 Rann-
sóknastofa Háskóla íslands f réttarlæknisfræði,
51 Landlæknisembættið
Inngangur: Tíðni banaslysa er hér nteð því lægsta á
Norðurlöndum. Tíðni banaslysa lækkaði um 42% á
árunum 1971-1985. Aftur á móti er tíðni banaslysa
hjá börnum á íslandi sú hæsta á Norðurlöndunum.
Þrátt fyrir lága tíðni banaslysa þykir mönnum nóg um
og ástæða til að gera enn betur. Ekki er full ljóst hvað
ræður tíðni banaslysa eða hvort orsakavalda eða
áhættuþætti megi auðveldlega koma í veg fyrir. Mark-
mið þessarar rannsóknar er að kanna hvort skráning
banaslysa í NOMESCO-slysaskráningarkerfinu sé
gagnleg við rannsóknir á þeim og að leita að orsökum
og áhættuþáttum banaslysanna sem leitt getur til
bættra forvarna gegn þeim svo fælcka megi banaslys-
um á íslandi. Ef gagn reynist að rannsókninni er ætl-
unin að hefja vinnu að framtíðar gagnagrunni um
dauðaslys á Islandi.
Efniviður og aðferðir: Búinn var til gagnagrunnur í
Microsoft Access forritinu og í hann safnað upplýs-
ingum úr krufningaskýrslum. Eftir er að fara í gegn-
um lögregluskýrslur, sjúkraskýrslur, gögn Hagstof-
unnar og Neyðarlínunnar. Skráðar voru ýmsar per-
sónuupplýsingar, NOMESCO-breytur í samræmi við
30