Læknaneminn - 01.10.2002, Síða 34
Idiopathic thrombocytopenic purpura:
Faraldsfræði, meðferð og afdrif íslenskra barna
á árunum 1981-2000.
Berglind Þóra Árnadóttir", Ólafur Gísli Jónsson21, Guðmundur K. Jón-
mundsson21, Jón R. Kristinsson21, Ásgeir Haraldsson21.
"Læknadeild Háskóla íslands, 2)Barnaspítala Hringsins.
Inngangur: Idiopathic thrombocytopenic purpura
(ITP) er sjúkdómur sem stafar af fækkun blóðflagna
og lýsir sér í börnum oftast með skyndilegri blæðinga-
tilhneigingu. í þessari rannsókn voru teknir saman
faraldsfræðilegir þættir ITP auk þess sem meðferð og
afdrif sjúklinga voru könnuð. Jafnframt var styrkur
gigtar- og ónæmisþátta í sermi sjúklinga athugaður og
tíðni sjálfsofnæmissjúkdóma í nánustu fjölskyldu
þeirra metin.
Sjúklingar og aðferðir: Skoðaðar voru sjúkraskrár
allra 60 barna yngri en 16 ára sem á árunum 1981-
2000 höfðu fengið greininguna ITP á sjúkrahúsunum
í Reykjavík og á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Af 43 sjúklingum sem boðaðir voru komu 33 til skoð-
unar og blóðrannsókna þar sem mæld voru, auk al-
menns blóðhags, RF, ANA, immúnóglóbúlín og undir-
flokkar IgG.
Niðurstöður: Nýgengi ITP reyndist vera 4,1/100.000
börnáári. Meðalaldur var 3,5 ár. Kynjahlutfallið var
1,1:1 í kjölfar greiningar voru 45% sjúklinga
meðhöndlaðir með IVIg, 27% fengu enga lyfjameð-
ferð og 18% fengu stera. Langvinnt form ITP (blóð-
flögufjöldi <150 þús/(l í meira en 6 mánuði samfleytt)
fengu 23% sjúklinga. Alls fóru 4 í miltistöku (7%).
Af þeim sjúklingum sem lil viðtals kornu höfðu 39%
jákvæða íjölskyldusögu um ýmsa sjálfsofnæmissjúk-
dóma og hækkanir á RF og ANA mældust í 12% til-
fella. Einn sjúklingur mældist með IgA skort.
Alyktanir: Niðurstöður okkar samræmast að mestu
erlendunr rannsóknarniðurstöðum. Athyglisvert er að
nýgengið er marktækt hærra (p=0.001) á seinni 10
árum rannsóknartímabilsins(6/100.000) en á fyrri 10
árunum (2,3/100.000) en ekki er ljóst af hverju þessi
munur stafar. Nokkur hluti sjúklinga reyndist vera
með hækkun á sjálfsofnæmisþáttum en þýðing þess er
óviss. íhugunarefni væri því að kanna tíðni hækkana
í sambærilegum viðmiðunarhóp úr almennu þýði og
tíðni jákvæðrar fjölskyldusögu um sjálfsofnæmissjúk-
dóma.
Heimaslys
Dögg Hauksdóttir11, Jón Baldursson2’, Brynjólfur Mogensen2’
'’Læknadeild Háskóla íslands,2) Slysa- og bráöadeild Landspítala
Háskólasjúkrahúss Fossvogi.
Inngangur: Slys á heimilum eru meðal algengustu
slysa á Islandi. Arið 2000 voru 12488 komur á slysa-
deild Landspítala Háskólasjúkrahúss Fossvogi vegna
slysa á heimilum. Það eru 42% af öllum komum
vegna slysa og voru flestir í aldurshópnum 1 - 4 ára.
Til að draga megi úr tíðni heimilisslysa þarf að efla
forvarnir. Það er hægt að gera með bættri slysaskrán-
ingu. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvar á
heimilinu, við hvaða aðstæður slysin verða og með
meiri nákvæmni en gert er með núverandi slysaskrán-
ingarkerfi, með það fyrir augum að efla forvarnir.
Efniviður og aðferðir: í úrtaki voru sjúklingar sent
leituðu til slysa- og bráðadeildar Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss Fossvogi vegna slys á heimilum á tímabil-
inu 4. janúar til 4. mars 2002. Alls voru 278 þátttak-
endur í rannsókninni. Þátttakendum var afhenntur
spurningalisti með fimm spurningum. Gögn voru
skráð í access-skjal byggt á NOMESCO-slysaskrán-
ingarkerfinu og unnið úr niðurstöðum í Excel. Slysa-
greiningar og innlagnir voru fengnar úr Sögu sjúkra-
skráningarlcerfinu og svörum Röntgendeildar í Foss-
vogi. Notað var áverkaskor (ISS) til að meta alvar-
leika slysanna.
Niðurstöður: Af 278 tilfellum voru 101 börn innan
við 10 ára, eða 36%. Karlmenn voru í meirihluta
framan af ævi en hlutfallið snýst við um miðjan aldur.
Algengasti áverkahátturinn var högg vegna falls
(42%) og sá næst algengasti var högg vegna árekstrar
við húsbúnað. (23%). Börn innan við 10 ára höfðu í
45% tilfella slasast vegna falls. Algengasta gólfefnið
í þessari tegund slysa var parket. Framleiðsluvörur
sem orsökuðu slysið voru oftast í flokknum húsgögn
og vefnaðarvörur (59). Averkaskor var oftast 1 en
hæst 10. Innlagnir voru tvær.
Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til þess að slys í
heimahúsum séu oftast vegna falls eða höggs. Börn
eru langstærsti hópur slysaþola og kynjaskipting inn-
an aldurshópa er í samræmi við sambærilegar rann-
sólcnir. Athygli velcur að þegar húsgögn og vefnaðar-
vörur eru slysavaldur er í 58% tilvikum um að ræða
börn innan 10 ára. Niðurstöðurnar benda til þess að
slys á börnum séu í fáum tilfellum vegna sérhannaðra
húsgagna fyrir börn eða leikfanga, heldur vegna ann-
arra húsgagna á heimilinu. Einnig velcur athygli að
flest slysin verða innan setustofu og svefnherbergis
32