Læknaneminn - 01.10.2002, Síða 35
flokksins í NOMESCO, sem í þessari rannsókn var
sundurliðaður.
Ljósabekkir og áhættan á sortuæxlum
Elín Anna Helgadóttir", Bárður Sigurgeirsson121, Jón Hjaltalfn
Ólafsson1’21, Viihjálmur Rafnsson3’
" Læknadeild Háskóla íslands,21 Húðdeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss,31 Rannsóknarstofu i heilbrigðisfræði Háskóla íslands.
Inngangur: Undanfarin ár hefur tíðni sortuæxla auk-
ist jafnt og þétt. Hérlendis hefur þessi aukning verið
mest hjá ungu fólki, sérstaklega ungum konum og er
sortuæxli nú algengasta krabbameinið í þessum aid-
urshóp. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna
ljósabekkjanotkun almennings og bera saman við
sjúklinga með sortuæxli.
Efniviður og aðferðir: Sjúklingahópurinn saman-
stendur af 551 einstakling, 164 körlum og 387 konum.
Samanburðarhópurinn samanstendur af 1653 einstak-
lingum, valdir af handahófi í sama aldurs- og kynja-
hlutfalli og sjúklingahópurinn. Útiloka þurfti 6 karla
og 18 konur úr samanburðarhópnum. Spurningalistar
voru sendir til samanburðarhópsins og hafa 841 svar-
að skriflega en 138 símleiðis, 282 karlar(59%) og 697
konur(62%).
Niðurstöður: Enn hefur ekki tekist að afla upplýsinga
frá nægilega mörgum sjúklingum og því er eingöngu
skýrt frá hegðunarmynstri viðmiðunarhópsins varð-
andi ljósabekkjanotkun. Um 70% kvenna hafa notað
ljósabekki en 35% karla. Notkunarmynstur kynjanna
er þó svipað. Ljósabekkjanotkunin er mikil meðal
ungs fólks, 54% karla og 94% kvenna 20 til 29 ára fór
í ljós fyrir tvítugt. Notkunin minnkar með aldrinum,
39% karla og 70% kvenna 20 til 29 ára hafa farið í ljós
síðustu 12 mánuði á móti 15% karla og 50% kvenna
40 til 49 ára. Yngri konur fara að auki í fleiri ljósa-
tíma en eldri konur. 30% karla og 42% kvenna sem
farið hafa í ljós hafa brunnið í ljósabekk. 37% kvenna
af húðgerðum I og II hafa notað ljósabekki síðustu 12
mánuði.
Alyktun: Ljósabekkjanotkun íslendinga er mikil, að-
allega meðal ungs fólks og þá sérstalega kvenna.
Þetta samræmist aukinni tíðni sortuæxla í þessum
hópum en ekki er hægt að fuliyrða endanlega um þessi
tengsl fyrr en viðmiðunarhópurinn hefur verið borinn
saman við sortuæxlissjúklingana.
Hefur þú kynnt þér
Lífeyrissjóð lækna?
■ Lífeyrisgreiöslur til æviloka
■ Góö makalífeyrisréttindi
■ Örorkutrygging við starfsorkumissi
■ Góö ávöxtun og hagkvæmur rekstur
■ Hagstæö lán til sjóðfélaga
■ Fjölmargar leiöir fyrir séreignasparnaö
■ Dagleg yfirlit um innborganir og inneign
■ Ráögjöf
... og margt fleira
Nánari upplýsingar eru á:
www.llaekna.is
LÍFEYRISSJÓÐUR LÆKNA
ÍSLANDSBANKI
Rekstraraðili: íslandsbanki - Eignastýring, Kirkjusandi,
sími: 560 8900. myndsendir: 560 8910,
netfang: verdbref@isb.is, veffang: www.isb.is
Kirkjusandi, 155 Reykjavík
Sími: 560 8970, Myndsendir: 560 8910
Netfang: ll@llaekna.is, Veffang: www.llaekna.is