Læknaneminn - 01.10.2002, Side 37
arstofu Háskóla íslands í lyfjafræði hefur nýlega ver-
ið sýnt fram á að thrombín, histamín og lysofos-
fatidylkólín hindra Akt fosfórun, örvaða af „epidermal
growth factor” (EGF), í æðaþelsfrumum. Thrombín
og histamín hindra fosfórun í gegnum prótein kínasa
C (PK.C) en hvað miðlar hindrun lysofosfatidylkóiíns
er ekki Ijóst. Fleiri efni koma að stjórnun Akt og var
markmið þessa rannsóknarverkefnis að kanna áhrif
ceramíðs, 1-bútanóls og efna sem auka styrk cyclic-
AMP (cAMP) á Akt virkni í æðaþelsfrumum.
Efniviður og aðferðir: Ræktaðar voru æðaþeisfrum-
ur úr bláæðum naflastrengja og þær meðhöndlaðar
með efnum sem talin eru hafa áhrif á Akt. Fosfórun á
Akt var greind með „Western blotting”.
Niðurstöður: 1-bútanól og ceramíð virðast hindra
EGF örvaða Akt fosfórun. Hindrun 1-bútanóls og
ceramíðs virðist ekki minni við „downregulation” á
PKC með TPA (hliðstæða diacylglyseróls). Hindrun á
PKC dregur úr áhrifum ceramíðs og 1-bútanóls. 3-
isobutyl-l-methylxanthine (IBMX) hindrar fosfórun á
Akt en dibutyl cAMP, 8-bromo-cAMP og 8-bromo-
cyclic-GMP virðast liafa lítil áhrif.
Ályktun: 1) Ceramíð, 1-bútanól og IBMX virðast
hindra EGF örvaða Akt fosfórun. 2) Hugsanlegt er að
IBMX miðli hindrun á annan hátt en með aukningu á
styrk cAMP. 3) Mögulegt er að áhrif ceramíðs og 1-
bútanóls sé stýrt í gegnum diacylglyseról óháðan
PKC.
Forspárgildi Doppler blóðflæðimælinga í a.
uterine hjá konum meö meðgöngueitrun meö
tiliti til endurkomu meðgöngueitrunar í næstu
meögöngu.
Haraldur Már Guðnason", Sæmundur Guðmundsson21
"Háskóli íslands, Reykjavík, fsland, 2)Dept. of Obstetrics and
gynecology, University Hospital MAS, Malmö, Svíþjóð
Inngangur: Hár blóðþrýstingur eftir 20.viku með-
göngu ásamt próteinum í þvagi nefnist meðgöngueitr-
un. I meðgöngeitrun minnkar útslag hjartans en við-
nám æðakerfisins eykst að sama skapi, sem getur
valdið súrefnisþurfð innan líkamans. Doppler blóð-
flæðimælingar eru mikilvægar þegar kanna þarf blóð-
flæði í fylgunni, sérstaklega með tiliti til viðáms og
lífsmerki barna í móðurkviði. Markmið okkar var að
rannsaka hvort Doppler blóðflæðimælingar á a. uter-
ina hjá konum með meðgöngueitrun hefðu forspár-
gildi fyrir endurtekna meðgöngueitrun í næstu með-
göngu.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturkræf
fylgnirannsókn. Á 9 árum höfðu 513 konur með með-
göngueitrun verið skoðaðar, 139 af þeim fæddu síðar
annað barn. Niðurstöður flæðisónarmælinganna í fyrri
meðgöngunni voru bornar saman við upplýsingar um
seinni fæðinguna, s.s. fæðingarþyngd og keisaraskurð.
Skoðun var endurtekin hjá 38 konum á sömu
ílæðisónar skoðunarstofu í seinni meðgöngunni. Nið-
urstöður seinni flæðimælinganna voru bornar saman
við niðurstöður þeirra fyrri
Niðurstöður: Af 139 konum fengu 43 aftur með-
göngueitrun, þar af 10 alvarlega. Fylgni var milli þess
að konur hefðu haft óeðlilegar fyrri blóðflæðimæling-
ar og meðgöngueitrun í seinni meðgöngu. Einnig var
fylgni milli óeðlilegra mælinga í fyrri og seinni nieð-
göngu. Meiri líkur voru á léttburum ef móðir hafði
bæði meðgöngueitrun og óeðlilega fyrri blóðflæði-
mælingu. Einnig jókst fjöldi keisaraskurða við sömu
gildi.
Ályktun: Oeðlilegar blóðflæðimælingar í a. uterina í
báðum meðgöngum endurspeglar líklega þær form-
breytingar sem verða á æðunum á meðgöngu. Með
flæðimælingum mætti hugsanlega meta áhættu mæðra
í áhættuhóp á næstu meðgöngum með tiliti til með-
göngueitrunar, smávaxinna nýbura og keisaraskurða.
Nýgengi klumbufóta á íslandi og afdrif þeirra
einstaklinga sem fæddust meö klumbufót/fætur
á árunum 1985-2000.
Hjördís Sunna Skírnisdóttir", Höskuldur Baldursson og Halldór
Jónsson jr2|."Læknadeild H.Í., 21 Bæklunarskurðdeild LSH , Fossvogi.
Inngangur: Meðfæddur klumbufótur (talipes
equinovarus) er flókinn fæðingargalli á fæti/fótum
sem einkcnnist af equinus stöðu á ökkla og varus
stöðu á hæl, ásamt adduction og supination á fram-
leista. Á íslandi ættu að fæðast u.þ.b. 5 börn á ári með
klumbufót miðað við tíðnitölur annars staðar í heim-
inum, en þetta hefur aldrei verið kannað. Þar sem
slíkar upplýsingar ættu að reynast heilbrigðiskerfinu
mikilvægar svo og foreldrum barna sem fæðast með
gallann m.t.t. hugsanlegs arfgengis, var þessi rann-
sókn framkvæmd til að staðfesta tíðni sjúkdómsins og
til að meta árangur meðferða sem beitt hefur síðastlið-
in 15 ár.
Efniviður og aðferðir: Til að kanna nýgengi og
árangur meðferðar voru send spurningablöð til skjól-
stæðingaT.R. sem fengið höfðu spelkur. Vegna lélegr-
ar svörunar voru fengnar upplýsingar frá Fæðingar-
skrá Islands um fjölda einstaklinga fædda með
klumbufót/-fætur á árunum 1985-2000. Niðurstöður:
35