Læknaneminn - 01.10.2002, Page 43
icilllin sambanda og kefalósporina valdi ónæmi fyrir
penicillinum, kefalósporínum og öðrum lyfjum. Mikil
notkun þröngvirkari lyfja virðist síður valda ónæmi.
C02 laser keiluskurður á leghálsi: afdrif næstu
þungunar á eftir og aukaverkanir.
Jón Þorkell Einarsson", Hildur Haröardóttir21, Kristján Sigurösson3’
" Læknadeild Háskóla ísland,2) Kvennadeild landsspítala Háskóla-
sjúrkrahúss,31 Leitarstöð Krabbameinsfélags íslands
Tilgangur: Að kanna hvort tíðni leghálsbilunar
og/eða fyrirburafæðinga sé aukin meðal íslenskra
kvenna sem hafa undirgegnist keiluskurð með C02
laser. Eins að kanna tíðni ákveðinna langtímavanda-
mála sem upp geta lcomið í kjölfar keiluskurðar.
Efniviður og aðferðir: Samkvæmt skrá Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags Islands fóru 957 konur, 39 ár og
yngri, í keiluskurð á árunum 1990 til og með 1993. Af
þeim voru 502 skráðar með fæðingu í Fæðingarskrá
eftir keiluskurð. Þessum konum var sent bréf og þeim
boðin þátttaka í rannsókninni, eins var þeim sendur
stuttur spurningalisti. Svarhlutfall voru tæp 50%, að-
eins þær sem fóru í C02 keiluskurð eru teknar með.
Eins eru einungis einburafæðingar notaðar í rannsókn-
inni. Tilfellin eru þannig 173 konur. Meðgöngulengd
samkvæmt ómun, fæðingarþyngd, fjöldi fyrri fæð-
inga, stærð keilu, gráða frumubreytinga, endurteknar
sýkingar, tíðaverkir og reykingar eru þeir þættir sem
fengir voru úr sjúkráskrám og spurningalista. 2 pöruð
viðmið munu valin með lilliti til aldurs og fjölda fyrri
fæðinga. 400 kvenna safnúrtak var tekið úr fæðingar-
skrá til viðmiðunar þangað til.
Niðurstöður: Af 173 tilfellum fæddu 15 konur
(8,8%) fyrir 37 viku meðgöngu. Af 400 konum í
safnúrtaki fæddu 17 konur (4.3%) fyrir 37 viku með-
göngu. Langflestar keilur voru yfir lOmm Ekki fund-
ust áhættutengsl milli hæðar keilu og meðgöngulengd-
ar. Af 168 þekktum tilfellum voru 19 (11.3%) með
CIN II, 92 (53.2%) með CIN 111 og 29 (16.8%) greind
með CIS breytingar í leghálsi. Tuttugu og ljórar
(14%) sögðust hafa aukna tíðarverki eftir keiluskurð.
14 (8,l%)sögðust hafa enduteknar leggangasýkingar
eftir keiluskurð, 17 (9,8%) fyrir og eftir keiluskurð en
7 (4,0%) höfðu enduteknar sýkingar fyrir keiluskurð.
Ályktanir: Keiluskurður með C02 tækni virðist auka
líkur á fyrirburafæðingum hjá íslenskum konum. -
Rannsókninni er ekki lokið.
Fleiðrusýni á íslandi á árunum 1990 - 1999
Jónas Geir Einarsson", Gunnar Guðmundsson21, Helgi J. ísaksson31.
" Háskóli íslands,2) Landspítali Háskólasjúkrahús Hringbraut,
31 Rannsóknastofa Háskólans í meinafræði.
Inngangur: Lokuð fleiðrusýnataka er gerð til að
finna orsök fyrir vilsu í fleiðruholi sem ekki hefur
fundist skýring á með vökvarannsókn eingöngu. Til-
gangur rannsóknarinnar var að kanna niðurstöður
fleiðrusýnatöku á íslandi og bera saman við erlendar
rannsóknir.
Efniviður og aðferðir: Hjá Rannsóknastofu Há-
skólans í meinafræði voru athuguð svör allra fleiðru-
sýna frá 1990 - 1999. Sjúkraskýrslur voru kannaðar.
Niðurstöður: Um var að ræða 130 sýni frá 120 ein-
staklingum. Karlar voru 74 og 46 konur. Látnir eru 75
(62,5%). Algengasta greiningin var bólga eða band-
vefsmyndun hjá 85 (70,8%), krabbamein hjá 15
(12,5%) og þrír (2,5%) voru með berkla en hjá 17
(14,2%) voru aðrar niðurstöður. Af þeim sem fengu
bólgugreiningu var orsökin illkynja vöxtur hjá 33,
lungnabólga hjá 10, 5 vegna áverka og hjá 8 voru aðr-
ar orsakir en hjá 25 fannst engin skýring. Með frekari
rannsóknum var hægt að sýna fram á að orsökin fyrir
vökvanum var krabbamein hjá 55 (45,8%). Af þeim
voru langflestir með lungnakrabbamein eða 24
(43,6%) því næst kom brjóstakrabbamein með 7
(12,7%) tilfelli og þá krabbamein í eggjastokkum og
eitlum með 3 (5,5%) tilfelli hvort. Þrátt fyrir frekari
rannsóknir fannst engin skýring á vökvasöfnuninni
hjá 32 (26,7%).
Ályktanir: Lokuð lleiðrusýnataka eru mikilvæg við
greiningu á orsökum fleiðruvökva en oft er þörf frek-
ari rannsókna. Næmi greiningar á illkynja orsökum er
ívið lægra en í erlendum rannsóknum eða 27% á móti
39-75%. Þá greinist bólga oftar hér en í öðrum rann-
sóknum en margir af þeim reynast hafa krabbamein
eftir frekari rannsóknir. Vökvasöfnun án skýringa er
álíka algeng hér og annarsstaðar.
41