Læknaneminn - 01.10.2002, Qupperneq 48
gönguna samanborið við börn 45 mæðra sem ekki
reyktigj Viðmiðin voru einnig valin með tilliti til með-
göngulengdar. I naflastrengsblóði voru mældir þættir
sem gefa til kynna nýlega súrefnisþurrð (sýrustig,
mjólkursýra, “base excess”, erythropoietin, nor-
moblastar), langvarandi súrefnisþurrð (magn blóð-
rauða), næringarástand (pre-albúmín, albúmín, kól-
esteról, tríglýseríðar, glúkósi) og vaxtarþættir (insúlín,
insúlín-líkur-vaxtarþáttur-l (IGF-I) og IGF bindi-
prótein3).
Niðurstöður: Börn reykingamæðra voru vaxtarskert
samanborið við viðmiðunarhóp (þyngd
3442g+102g/3804g+69g, p= 0,03; lengd
50,7cm+0,5cm/5l,9cm+0,25cm, p=0,02; höfuðum-
mál 34,8cm+0,3cm/35,71cm+0,2cm, p=0,004). Börn
reykingarmæðra voru með hærri þéttni blóðrauða
(166,5+8,2/153,6+2,Og/L, p<0.001), en ekki aukin
merki nýlegrar súrefnisþurrðar. Ekki var marktækur
munur á næringarástandi barnanna. IGF-I og 1GFBP3
mældist lægra hjá börnum reykingarmæðra. Munur-
inn var þó ekki tölfræðilega marktækur, en ekki er enn
búið að mæla nema þriðjung sýna.
Alyktanir: Reykingar á meðgöngu valda samhverfri
vaxtarskerðingu hjá fóstrinu. Súrefnisflutningur
skerðist nægilega til þess að fóstrið bregst við með
aukinni framleiðslu blóðrauða, sem eykur súrefnis-
flutningsgetu blóðsins. Reykingar virðast hinsvegar
ekki auka súrefnisþurrð í fæðingu. Næringarástand
barnanna skýrir ekki vaxtarskerðinguna. Bráðabirgða-
niðurstöður benda til þess að vaxtaskerðingin geti
skýrst af minnkaðri framleiðslu IGF-I og IGFBP3.
Miðeyrnabólgur í rottum
Rakel Sif Guðmundsdóttir1’, Ann Hermansson2’,
Karl G. Kristinsson3|,Anna Björk Magnúsdóttir'",
Ingileif Jónsdóttir5’, Hannes Petersen61.
"Háskóli íslands, læknadeild, 2,Háskólasjúkrahúsið í Lundi, Svfþjóð,
háls- nef- og eyrnadeild, 3)LSH Hringbraut, sýklafræðideild,
"Háskólasjúkrahúsið Lundi, Svíþjóð, háls- nef- og eyrnadeild,
5|LSH Hringbraut, ónæmisfræðideild, 6,LSH Fossvogi, háls- nef- og
eyrnadeild
Inngangur: Miðeyrnabólgur af völdum baktería eru
algengar í börnum og hafa um 70% barna fengið
a.m.k. eina slíka sýkingu við fjögurra ára aldur.
Steptococcus Pneumonia er sú baktería sem oftast
veldur miðeyrnabólgum en að auki hefur verið sýnt
fram á að sýkingar af völdum þeirrar bakteríu valda
einnig alvarlegustu fylgikvillunum. Dýramódel þykja
góð til rannsókna á miðeyrnabólgum f.o.f. af siðfræði-
legum ástæðum og einnig því að möguleiki er á
strangri stöðlun tilraunaaðstæðna. Við greiningu á
miðeyrnabólgum er mikilvægt að fá sem gleggsta
mynd af hljóðhimnu enda er huglægt mat og niður-
staða þess er greinir byggð á þeirri rnynd. Því er mik-
ilvægt að myndgreiningartækið gefi góða mynd af
þeinr þáttum sem leitast er við að skoða og þykir
eyrnasmásjáin best.
Efniviður og aðferðir: Fjörtíu karlkyns Spraque
Dewly rottur voru sýktar með Steptococcus
Pneumonia, hjúpgerð 6B þannig að í svæfingu var
framkölluð aðgerð þar sem farið var inn, kviðlægt í
miðlínu háls, á bulla temporalis sem bungar niður úr
miðeyra rottunar, á hana var gert gat og í hana spraut-
að 0,1 ml af bakteríulausn, í styrknum 1-4x106. Fjór-
um vikum fyrir sýkingu voru 22 rottanna bólusettar
með bóluefninu Prevnar. Rotturnar voru síðan skoðað-
ar á 2, 4, 6, 8 og 10 degi sýkingar með smásjá og var
útlit hljóðhimnunar stigað m.t.t. vökva og æðateiknar
sem eru helstu merki miðeyrnasýkingar. A 4. degi
sýkingar voru bólusettu rotturnar skoðaðar af þremur
aðilum, einum sérfræðingi í háls- nef- og eyrnasér-
fræðingi og tveimur 4. árs læknanemum, með þremur
mismunandi greiningartækjum, eyrnasmásjá, otoscopi
og stafrænni eyrnasjá, til að meta greiningargetu og
samræmi þeirra. Allir aðilar skoðuðu allar rotturnar
með öllum tækjunum þremur. Fjórði aðili deildi út
rottum og sá um að skrá niður stigun þannig að at-
hugendur vissu aldrei hvaða rottu þeir voru að skoða
hverju sinni.
Niðurstöður: Allar rotturnar sýktust, bólusettar og
óbólusettarl) . Af óbólusettu rottunum höfðu 87,5%
(14/16) fengið sýkingu með purulent vökva á degi 2.
A degi 10 voru 43% (6/14) lausar við sýkingu en pur-
ulent vökvi enn til staðar hjá 28%(4/14). Ein rotta
sýndi einkenni systemiskrar sýkingar og dó á 6. degi.
Mest samræmi var á milli skoðunar á hljóðhimnum,
með mismunandi greiningartækjum, hjá reyndasta að-
ilanum og í samanburði skoðunar reyndra og óreyndra
aðila var mest samræmi á milli þeirra þegar notuð var
smásjá við skoðunina.
Alyktun: Dýramódel það sem notað var í þessari
rannsókn reynist vel til framköllunar á stýrðum ntið-
eyrnabólgum í rottum þar sem markmiðið var að fjöldi
sýktra væri í hámarki og fjöldi dauðra í lágmarki. All-
ar rotturnar reyndust sýkjast og aðeins ein drapst fyrir
lok rannsóknarinnar. Samanburður myndgreiningar-
tækjanna sýndi fram á að óreyndir athugendur geta
metið hljóðhinrnubreytingar af nokkurri nákvæmni ef
nryndgæði greiningartækis eru góð. Það sýnir sig hins
46