Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 24
22
ÚRVAI
þar að auki er öruggt, að við hann
mun bætast töluvert vegna tilkomu
bjarndýra, sem koma frá skógum
Norður-Rússlands, þar sem enn er
mikið um birni, að því er álitið
er. Rjörninn er aftur á móti orðinn
mjög sjaldgæfur i Noregi. Þar er
aðeins um að ræða einstaka flæk-
inga frá Finnlandi eða Svíþjóð,
sem gista hina norsku skóga, er
eitt sinn voru svo auðugir af
björnum.
Sú hugmynd hefur komið fram, að samband milli frumanna inn-
byrðis sé mögulegt vegna starfsemi, sem ber nafnið „protoplasmatisk
kontinuitet". Álitið er, að frumuhimnan milli tveggja samliggjandi
fruma myndi eins konar brú, þannig að samband sé milli frumanna,
og að rafstraumsboð geti þannig borizt á milli þeirra. Aðrir álita
hugmynd þessa ranga og halda því fram, að einstakar frumur séu
einangraðar hver frá annarri og óháðar hver annarri.
Vísindamennirnir dr. Maynard Dewey og Lloyd Barr við Michigan-
háskóla í Bandaríkjunum hafa nú eftir 5 ára tilraunir fundið rétta
skýringu á þessari ráðgátu, er hingað til hefur verið óskiljanleg. Xmka-
tilraun þeirra var þannig háttað, að þeir skáru örlitlar agnir úr lif-
andi vöðvavef sléttra vöðva og létu agnir þessar síðan á tveim næstu
tímunum ná aftur hæfileika sínum til að hafa áhrif hver á aðra. Var
þetta við hin beztu skilyrði. Við stækkun í rafeindasmásjá, er stækkaði
agnirnar um 324.000 sinnum, sýndu vefjaagnir þessar alls staðar, þar
sem tvær frumur snertust, aðeins þrjár dökkar línur, þar sem búast
hefði mátt við fjórum, þar eð himna hverrar frumu kemur fram sem
tvær dökkar linur. Skýringin hlaut samkvæmt niðurstöðu vísinda-
manna þessara að vera sú, að frumuveggirnir (himnurnar) gengju
að einhverju leyti í samband á þeim stað, er þeir snertust, og slíkan
stað kölluðu þeir „nexus“ (tengsl). Frekari tilraunir sönnuðu, að raf-
straumsboð geta borizt í gegnum þessi tengsl og örvað samræmdar
samdráttarhreyfingar vöðvanna. Þessi nýja skýring greiðir margs
konar möguleikum braut, þ. á. m. í hjartarannsóknum og kannski
einnig hvað snertir aukinn skilning á starfsemi miðtaugakerfisins.
Science Digest
Lynn Fontanne leikkona mælir á þessa leið um samband sitt við
áhorfendur: „Þegar ég er á leiksviðinu, beinast að mér Þúsund augu
og veita mér styrk. Ég finn, að það streymir eitthvað í mig frá á-
J horfendum. Þessar bylgjur veita mér aukinn styrk. Svo þegar leiknum
er lokið og augun líta af mér, finnst mér sem lokað hafi verið fyrir
A|; strauminn. Mér finnst ég vera alveg tóm hið innra.... líkt og blaðra,
5 .sem stungið hefur verið í og rænd öllu loftinu."
Maurice Zolotow