Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 41
HVAfí ER ÞAÐ, SEM GERIR DRYKKJUMANN .. .?
3Ö
ir samfélagshættir. En tala áfeng- Og svo mætti virðast, sem þctta
issjúklinga meðal kvenna fer vax- væri ein hinna óæskilegri afleið-
andi. inga af auknu kvenfrelsi.
EGGJAHVlTUEFNADUFT
Fjölmargar tilraunir hafa verið gerðar til þess að finna hinar beztu
lausnir á vandamáli því, sem hungrið í heiminum skapar. E?in isilik
tilraun hefur reynzt lofa sérstaklega góðum árangri og er nú komin
svo langt áleiðis, að framleiðsla á eggjahvítuefnadufti er nú þegar
hafin í Englandi. Er hér um að ræða Chayen-aðferðina til þess að
breyta ýmsu grænmeti í margs konar eggjahvítuduft, sem er lyktar-
laust og bragðlaust. Verksmiðja ein í Plymouth framleiðir nú þegar
2000 tonn af dufti þessu til notkunar í Bretlandi og til útflutnings.
Við framleiðsluaðferð þessa eru notaðar hljóðbylgjur, sem sendar
eru í gegnum vatn og brjóta niður frumubyggingu margs konar efna,
sem fyrirfinnast í grænmeti, og kljúfa efnin niður í sína frumþætti.
Er þar um heila tylft ýmiss konar grænmetisefna að ræða. Þegar
„peanuts" (hnetur) eru notaðar sem hráefni, fást um 25—30 tonn af
eggjahvítudufti úr 100 tonnum af hnetum. Sé um 25—50 grömmum af
dufti þessu blandað saman við daglega fæðu manna, er slíkt álitið
vera nægilegt til þess að nægilegu lágmarki eggjahvítuefnaneyzlu sé
náð. Kostnaður á mann á viku er um 15—20 cent.
Ýmis lönd i Suður-Ameríku og Afríku hafa nú þegar farið þess á leit
við Alheimsbankann og aðra banka, að þeir veiti þeim lán til þess að
hefja framleiðslu eggjahvítuefnadufts þessa að fengnu framleiðslu-
leyfi. Alexander MacLeod
TAUGASTARFSEMI ÁN TAUGA 1 SLÉTTU VÖÐVUNUM
Almennt er vitað, að hinir svokölluðu þverrákóttu vöðvar, sem festir
eru við beinin og stjórna hreyfingum þeirra með samdrætti, eru tengd-
ir heila og mænu með taugum, en þau líffæri stjórna reyndar starf-
semi þeirra. Það er ekki eins almennt vitað, að hin tegund vöðva,
hinir sléttu vöðvar, starfa yfirleitt án fyrirskipana frá miðtaugakerf-
inu. Sléttir vöðvar mynda t. d. mikinn hluta veggjanna í meltingar-
færunum, æðunum, blöðru og öðrum 'líffærum. 1 samanburði við
þverrákóttu vöðvana eru aðeins fáir af sléttu vöðvunum tengdir taug-
um, sem geta þannig stjórnað samdrætti þeirra. Vísindamenn hafa
því lengi velt því fyrir sér, hvernig hægt sé að samræma hreyfingar
hinna taugalausu vöðva.
Bjóddu hugmyndunum inn og veittu þeim dýrlegan beina, því að
ein þeirra kann að vera konungurinn sjálfur.
Martc Van Doren