Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 107
HERSHÖFÐINGINN NÆSTUR GUÐI
105
en þegar að þeim kom, sneri það
baki við heiminum, tók á sig kross
Iírists, reiðubúið til að hamra á
kröfum hans í tíma og ótíma.
Norðan úr landi kom Billy Herd-
man, uppgjafa trúður, sem lífgaði
upp predikunina með töfrabrögðum
sínum, „Traj) Doors to Hell“ („Lok-
ið hliðum Heljar“). Sarah Mc
Minnies, hin Frelsaða Vínsölustúlka
í Leichester, „hóf skothríðina“ á
hinu nýja máli Hersins. Svo var
Shela Hannah, sem liætt Iiafði að
reykja; „Kjallelúja Fisksalarnir";
og „Fjörugi Elijah“, „Frelsaði Slæp-
inginn frá Rubgy“, sem hafði lært
utanað langa kafla úr biblíunni,
þó að hann gæti ekki lesið hana,
og héldi lienni oft öfugri. Allt þetta
fólk bafði helgað sig einum ófrá-
víkjanlegum tilgangi: endurlausn
mannkynsins. Og þó einhverjar
æðri sálir hentu gaman að ein-
feldni þeirra og fávizku, þá veitti
sjálfur lærdómsskorturinn, þegar
hann var blandaður djúpri alvöru,
þeim einhvern alþýðublæ, sem
fólki féll mjög vel.
Aíeð vorinu 1880 tóku fylgismenn
.Booths að bera einkennisbúninga,
forréttindi, sem þeir höfðu áunnið
sér með ströngustu þjálfun. For-
ingjaefni Hjálpræðishersins á vor-
um dögum, sem útskrifast eftir 2ja
ára námskeið í einhverjum af 42
æfingaskólum, lifa við harðan og
strangan aga, sem þó kemst ekki
í samjöfnuð við hörku þessara
bernskudaga Hersins. Það, sem
þeir lærðu, var „skúringafræði"
(,,scrubology“) — að fara á fætur
i dögun til að skúra steintröppurn-
ar á skálum þeirra, bursta skó og
fægja glugga og búa um rúmin. Það
var fyrst og síðast námskeið í hag-
sýnu starfi. í því var meðal annars
innifalið að standa andspænis nær-
göngulum spurningum og egeja-
kasti á samkomuin undir beru lofti,
og að bjóða byrginn drykkfeldum
veitingamönnum í þeirra eigin
veitingastofum. „Það mundi verða
enn þá erfiðara á- „vígvöllunum",
sagði Booth þeim til hugarhægðar.
..Ég dæmi ykkur öll í stranga erf-
iðisvinnu,“ srgði liann i gráu gamni
við einn flokkinn á námskeiðinu,
,,það sem þið eigið eftir ólifað eðli-
legu lifi.“
Væru einhverjir peningar fyrir
liendi, voru þeim greidd smávegis
laun, en á liinni sögulegu Herráð-
stefnu, sem veitti Booth æðstu völd,
lýsti liann yíir, að öll önnur út-
gjöld Hersins skyldu ganga fyrir
launagreiðslum. Þótt þetta væru
aðgangsharðar reglur, þá tryggðu
þær Bootli starfslið, sem gat sigrazt
á allri andstöðu: her ofsatrúar-
manna, sem hafði það mark og mið
að brífa fólk úr myrkri drykkju-
skapar og svalllifnaðar og láta til
sín taka. Booth þurfti á að halda
„framtakssömum ofurhugum með
guðmóði“, eins og liann nefndi
það og hann fékk þá lika.
Katrin Booth lýsti því yfir, að
„til þess að frelsa sálir, vildi ég
glöð vera fifl í augum heimsins.“
Og Hermennirnir lögðu sér þessa
yfirlýsingu á hjarta.
Theodore Kitching liðsforingi,
góðhjartaður kvekari, hafði byrj-
að sem barnakennari, en til þess
að draga að sér athygli múgsins,
reið hann glaður inn í Scarborough