Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 54
Ef þú ert einn þeirra, sem helzt vilja vinna
í 80—90 kliikkustundir á viku, c/etur átt sér slað að þú
sért veikur. Verið getur að þii sért vinnuþræll.
Ei*t þu vinnuþræll?
Eftir Laurence Bookman.
ÍSIND AMENN hafa
komizt að raun um,
að sumir þeirra, sem
vér dáumst mest að
— læknar, kennarar,
stjórnmálamenn, iðnaðarmenn, all-
ir, sem ná miklum árangri með
þrotlausu starfi — eru álíka and-
lega truflaðir eins og þeir, sem
vér fyrirlítum mest, eins og eitur-
lyfjaneytendur og ofdrykkjumenn.
Klerkurinn, sem trúir því að vel-
ferð allra sóknarbarna sé komin
undir honum, forstjórinn, sem lield-
ur að fyrirtækið muni hrynja í rúst,
ef hann sé ekki allsstaðar nálæg-
ur — þetta er fólkið, sem við að
jafnaði dáum. Þótt vér höfum með-
aumkun með öllum öðrum tegund-
um þræla, þá lítum vér upp til
vinnuþrælanna, vér teljum þá til
virðingarmanna.
Nú telja sumir læknar öruggt,
að vinnuþrælarnir séu ekki aðeins
sjálfum sér skaðlegir heldur einn-
ig fjölskyldu sinni, samstarfsmönn-
um og undirmönnum.
Nýleg brezk könnun leiddi í ljós,
að mörg veikluð börn og eigin-
konur, sem þjást af taugaveiklun,
52
eiga föður eða eiginmann, sem
vinnur óhóflega mikið. Jafnvel sá
maður, sem eyðir hverri mínútu
af tómstundum sínum í meinlaust
tómstundaföndur að talið er, getur
valdið ættingjum sinum og vinum
allmiklum vonbrigðum. Það virð-
ist svo, sem vinna, líkt og' matur
og hvað sem er, geti verið skaðlegt
í óhófi.
En það eru ekki bara forstjórar
eða menn í háum stöðum, sem þver-
skallast gegn 40 stunda vinnuvik-
unni. Það eru líka kaupmenn, iðn-
aðarmenn og venjulegir verkamenn.
Jafnvel þær konur, sem streitast
við að standa i stöðu sinni sem
húsmóðir-eiginkona-móðir, og
stunda jafnframt starf utan heim-
ilis, mega teljast til vinnuþræla.
Hr. Quintin Hogg nefndi nýlega
á brezka ríkisþinginu tölur, sem
sýna að samfara því, að hin opin-
bera vinnuvika styttist í 40 klukku-
stundir, eykst fjöldi þess fólks, sem
stundar aukastörf. Þetta þýðir,
gagnstætt því sem vænzt var og
til var ætlazt, að tómstundirnar
verða færri en áður.
Er þá allt þetta fólk vinnuþrælar?
ÚRVAL