Úrval - 01.05.1965, Page 38
Evrópiistofnunin til baráttu gegn ofdrykkju og meðferðar á
ofdrykkjumönnum hefur sagt, að kokkteilsamkvæmin væru
að leysa lessamkvæmin af hólmi; að einn ofdrykkjumaður
eyddi £ 700 á uikn á næturskemmtistöðum; og að með
haustinu ætti að skipuleggja herferð í berzka iðnaðinum.
Og þá vaknar spurningin ....
r - x
HVAÐ ER ÞAÐ SEM
GERIR DRYKKJUMANNINN
AÐ DRYKKJUSJÚKLINGI?
-----------------------'
ARGAR skýrgreiningar
hafa veriö settar fram
á ofdrykkju, en eng-
in algerlega fullnægj-
andi. Eitt sinn var lit-
ið á hana aSeins frá siðferðilegu
sjónarmiSi, en í dag er réttilega
fremur litið á hana sem sjúkdóm.
Að það er svona erfitt að skýrgreina
ofdrykkjuna og aðgreina hana frá
óhóflegri félagsdrykkju (social
drinking), bendir til þess, að
drykkjuhneigðin sé ekki alger
(absolute), heldur sé hún á mis-
háu stigi. Þannig hefur það reynzt
um annarskonar mannlegt óeðli —
til dæmis kynvillu.
Að þeim undanskildum, sem
greinilega hafa ekkert vald á á-
fengishneigð sinni, eru margir,
sem drekka bæði mikið og reglu-
lega árum saman, en sem hafa þó
á sér einhvern þann hemil, sem
varnar því að þeir fari yfir þau
talcmörk, þar sem ekki verður aft-
ur snúið. Þrátt fyrir það verða þeir
liklega með réttu taldir til drykkju-
manna, að minnsta kosti að nokkru
leyti.
Annað sjónarmið er það, að
hvort drykkjumaður skuli teljast
áfengissjúklingur eða ekki, sé und-
ir þvi lcomið hvort hann hafi stjórn
á drykkju sinni eða drykkjan
stjórni honum. Þótt hann drekki
mikið, en hafi mikið þol og geti
hætt eða takmarkað drykkjuna af
frjálsum vilja, er að likindum ekki
réttmætt að telja hann til áfengis-
sjúklinga. Margir svonefndir félags-
drykkjumenn (social drinkers) eru
i þessum flokki. Aftur á móti er
hinum, sem engu síður drekka
einir en í félagi með öðrum, mik-
hættara við að verða drykkjusjúkl-
ingar. Umskiptin frá félagsdrykkju
til einmenningsdrykkju geta sem
sé orðið óðara en varir.
36
— English Digest —