Úrval - 01.05.1965, Blaðsíða 39
HVAÐ ER ÞAÐ, SEM GERIR DRYKKJUMANN ...?
37
Drykkjusýkin virðist vera fólgin
í afbrigðilegu (abnorm) ástandi,
sem aftur er sjúkdómseinkenni ein-
hverrar dýpri orsakar eða truflun-
ar. Og það er af þeirri ástæðu, sem
sagt hefur verið, að undirrót á-
fengissýkinnar hafi búið í fórnar-
lömbum hennar áður en þau
bragða fyrsta staupið.
Drykkjusýkin getur verið ein-
ltenni hvaða andlegs sjúkdóms sem
vera skal, og hann getur verið
annaðhvort dulinn eða augljós.
Hinn þunglyndi drekkir hugarvíli
síun með áfenginu, þráhyggjumað-
urinn fær frið fyrir áleitnum hugs-
unum sínum, og kleyfhuginn losn-
ar um stund við ógnir ofskynjana
sinna.
En sennilega er áfengissýkin til-
tölulega sjaldan einkenni um ein-
hvern greinilegan geðsjúkdóm. Að
þeim tilfellum undanskildum er oft
sagt, að áfengissýkin bendi til þess
að um djúpstæðan skapgerðargalla
sé að ræða. Þetta má vel vera
rétt. Engu að síður, þegar vér
stöndum frammi fyrir þeirri fél-
agslegu og siðferðilegu úrkynjun,
sem leiðir af langvarandi ofnautn,
er það allt annað en auðvelt að
greina á milli orsakar og afleið-
ingar.
Aðrir eru sannfærðir um, að ein-
hver líkamleg orsök hljóti að liggja
á bak við; að líkamsbygging sumra
manna sé þannig, að þeim sé á ein-
hvern hátt sérstaklega hætt við að
hneigjast til ofnautnar. Þótt þessi
kenning kunni að vera freistandi,
einkum fyrir þá, sem vilja reyna
að komast framhjá siðferðilegri á-
byrgð, skortir hana enn sem kom-
ið er allar sannanir. Enda þótt
Ijóst sé, að þeir sem drekka að stað-
aldri öðlist að jafnaði aukið þol
gegn áfengi og að til þess liggi
lífeðlisfræðilegar ástæður, hefur
samt enn ekki fundizt nein ótvíræð
röskun á efnabyggingu eða efna-
skiptum líkamans, sem gæti skýrt
það, hvers vegna sumir hneigjast
meira til ofnautnar en aðrir.
Sú hugmynd að verðandi of-
drykkjumenn eða þeir, sem þegar
eru orðnir það, hafi ,,.ofnæmi“
gegn áfengi, er mjög ofarlega á
baugi hjá A.A. félagssamtökunum
(Alcoholics Anonymus). Strangt
tekið er þetta misnotkun á orðinu.
Með ofnæmi er átt við sérstaka and-
úð á vissum eggjahvituefnum (pro-
tein substance), sem líkami fjölda
manna er lialdinn af, og sem veld-
ur ýmsum algengum sjúkdómum,
svo sem heymæði, andþrengslum
(asthma) og vissum húðsjúkdóm-
um.
En A.A.-mennirnir hafa full-
komna ástæðu til að nota þetta orð
í óeiginlegri merkingu, þegar svo
hörmulega tekst til, að fyrrverandi
ofdrykkjumaður fellur á ný ofan i
algera ofdrykkju, eins og fyrir get-
ur komið, jafnvel eftir fullkomið
bindindi í langan tima, ef hann
bragðar svo mikið sem eitt staup.
Lykillinn að skilningi á drykkju-
sýkinni virðist vera fólginn i þeim
áhrifum áfengisins að draga úr
þenslu. Áfengið er áhrifamikið til
þess að létta af kvíða og áhyggj-
um og veita lausn undan sársauka-
fullum hömlum —• af því stafar
notkun þess í svo fjölbreytilegum
félagslegum aðstæðum. „Skynsam-