Úrval - 01.05.1965, Page 57
I'ramsýni hins vinsæla forseta hefur fært sönnur á, aff þegar vestrænt
fjármagn er notaff á skgnsamlegan hátt, þá má gera stórvirki
við uppbyggingu menningar í Afriku.
FÍLABEINSSTRONDIN
MESTA FRÆGÐARSAGA AFRIKU
Eftir David Reed.
inni í frumskóg-
um Vestur-Afríku, i
þorpi sem heitir Yam-
oussoukro, má oft sjá
§MMÍlJWg§ tiginn höfðingja. Auk
heimilis á hann þar hóp af krókó-
dílum. Krókódílarnir eru heilagir.
Á hverjum degi eru þeir fóðraðir
á lifandi kjúklingum. Ef þaS bregzt,
aS stóru skriSdýrin komi upp úr
tjörninni sinni til snæSings, verS-
ur höfðinginn dapur. Þá er óheilla-
dagur.
Endrum og eins bregður sami
höfðingi sér til Parísar, þar sem
hann hefur ibúð í tízkuhverfi i
grennd við Sigurbogann. Þar sést
hann oft í fínum bíl með hvítum
ökumanni, eða þá að honum bregð-
ur fyrir i fegurstu veizlusölum,
skrýddum stórkrossi heiðursregl-
unnar, æðsta heiðursmerki Frakk-
lands. Virðulegir Frakkar leita
ráða hjá honum i mikilsverðum
rikismálum. Jafnvel Charles de
Gaulle sýnir honum sjaldgæfa að-
dáun. „Mikill Frakki og mikill-
Afríkani,“ segir de Gaulle.
Höfðinginn frá Yamoussoukro er
Félix Houphouet 'Boigny (frb. u-
fvei bva-næi), forseti lýðveldisins
Fílabeinsstrandarinnnar, fyrrver-
andi franskrar nýlendu. Þessi
furðukarl, sem lítið er kunnur ut-
— Readers Digest —
55