Úrval - 01.11.1965, Blaðsíða 33
DULDIR SJÓNGALLAR BARNA
31
Slíkar skoðanir fara yfirleitt fram
á morgnana í einhverri skólastofu,
sem hefur verið fengin að láni. I
skólastofu einni í Salt Lake City
hafa þær frú Evans og samstarfs-
konur hennar hengt ódýrt augnpróf-
unarkort á einn vegginn og gengið
úr skugga um, að birtan, sem á
það fellur, sé góð og heppileg. Á
kortinu er aðeins einn stafur, staf-
urinn E. Fætur hans snúa ýmist
upp á við, niður á við, til vinstri
eða til hægri. Og E-in verða sífellt
smærri í hverri línu, eftir því sem
neðar dregur á kortinu. Börnunum
er síðan kenndur „E-leikurinn“
þeim er síðan sagt, að þau skuh
ímynda sér, að E sé borð með 3
löppum. Leikurinn er fólginn í því
að benda í þá átt, sem lappirnar á
E-inu stefna í, á meðan ein kon-
an þekur alla stafina að einum und-
anskildum og skiptir svo um staf
í sífellu. Hengd er „sjóræningja-
augnpjatla" fyrir vinstra og hægra
augað til skiptis, svo hægt sé að
prófa hvort augað fyrir sig.
Sj álfboðaliðarnir eru sífellt að
leita að misræmi milli beggja augn-
anna. Reynist sjónin á öðru auganu
miklu lakari en á hinu, er slíkt næg
ástæða til þess að senda barnið til
augnlæknis.
Augnlæknar á hverjum stað á-
kveða hvernig slík sjálfboðaliða-
skoðun skuli fara fram. Á sumum
svæðum eru notuð ljósprófunar-
aðferð. Ljósi er haldið í vissri fjar-
lægð frá andliti barnsins. Það er
hægt að sjá spegilmynd ljóssins í
sjáaldri barnsins. Hafi samruni sjón-
mynda ekki tekizt, mun ljósið ekki
koma fram á sama stað í báðum
augum.
Önnur algeng prófunaraðferð er
fólgin í því, að breitt er yfir aug-
un til skiptis, og er barninu þá sagt
að horfa á einhvern glampandi hlut,
sem haldið er í um 18 þumlunga
fjarlægð frá því. Sé ekki um sam-
runa sjónmynda að ræða hjá barn-
inu, mun heilbrigða augað halda á-
fram að verða stöðugt, þótt breitt
sé yfir gallaða augað. En augnaráð
gallaða augans mun verða reikandi
við að reyna að framkalla skýra
sjónmynd, þegar breytt er yfir heil-
brigða augað.
Alltaf er ástæða til að senda rang-
eygð eða tileygð börn til augn-
læknis, því að slíkir gallar lagast
ekki af sjálfu sér. Og þar eð þeir
gera samruna sjónmynda ómögu-
legan, geta þeir leitt til „amblyo-
piu“, jafnvel þótt mismunurinn á
stöðu augnanna kunni að vera svo
lítill, að hann sé vart greinanlegur
Önnur einkenni augngalla koma
fram í því, er barnið teygir fram
höfuðið eða hallar því, þegar það
horfir á eitthvað, einnig ef það depl-
ar augunum ótt og títt, nuddar aug-
un mikið eða hefur stöðugt rauð-
leit augu. Sama er að segja, ef barn-
ið lokar öðru auganu er það virðir
eitthvað fyrir sér, eða kiprar augun
saman, ygglir sig eða skælir ósjálf-
rátt, um leið og það beinir augunum
að einhverju.
En bardaginn er aðeins unninn að
hálfu leyti, þegar búið er að hafa
uppi á börnum þeim, sem haldin
eru sjóngöllum. Um þetta segir
frú Beverly Evans: „Það er ömur-
leg staðreynd, að oft eftir að við