Úrval - 01.11.1965, Side 69
67
Vandaöu mál þitt
Hér fara á eftir 20 orð og orðasambönd með réttri og rangri merkingu. Próf-
aðu kunnáttu þína í íslenzkri tungu og auk þú við orðaforða þinn með því að
finna rétta merkingu. Gæt þess, að stundum getur verið um fleiri en eina rétta
merkingu að ræða. Til gamans getur lesandi gefið sjálfum sér einkunn og metið
þannig getu sína, þ.e. 0.5 fyrir hvert rétt svar og tilsvarandi lægri einkunn
fyrir svarið, ef um er að ræða fleiri en eina rétta merkingu og hann hefur
aðeins tekið fram aðra eða eina þeirra.
1. prím: hégómi, nýtt tungl, fullt tungl, héla, tíðasöngur, eldunartæki, hrós,
smekklaust skraut.
2. að sáma: óhreinka, hreinsa, hæfa, sanka saman, fölna, fallast á, negla,
elda, falda.
3. að hrómlast: hreyfast, safnast saman, hrufla sig, klöngrast, ryðja burt,
gorta.
4. drútur: kauði, dóni, nirfill, fúlegg/ ólund, monthani, afturendi, hrúga.
5. dreyrugur: blóðugur, óhreinn, undirförull, röskur, Ieirstorkinn, hroka-
fullur, drykkfelldur, grobbinn.
6. að fjálgrast við e-ð: rausa um e-ð, fitla við e-ð, finna til ógeðs gagnvart
e-u, flýta sér að e-u, reiðast e-u, lifna við e-ð.
7. klápeygður: rangeygður, stóreygður, fráneygður, nærsýnn, fjarsýnn, pír-
eygður, smáeygður.
8. drella: litill böggull, stór böggull, klaufi, stór poki, hlunkur, akkerissteinn,
slytti, durgur, hetta, kúamykja.
9. að glypja: trufla, tæla, prjóna laust, prjóna fast, missa niður, blása, sóða
út, týna, glampa.
10. gneyptur: niðurlútur, hnarreistur, brattur, grafinn, röskur, glæsilegur,
geysihár, skínandi, hrakinn.
11. drjóni: ruddi, kauði, silakeppur, naut, hrútur, foli, slæpingur, stórvaxinn
maður, monthani, sóði, uxi, göltur, fjötur.
12. að hlíta við e-u: neyðast til e-s, láta sér nægja e-ð, fara eftir e-u, standa
við e-ð, standa fast á málstað sínum.
13. að munda: handfjatla, undirbúa, miða, mæla, máta, móta, skapa, sýna
blíðuatlot.
14. ben: fjármark, ör, þykkildi, sár, hreistur, teinn, band, dauði, ósk.
15. kífinn: deilugjarn, kvensamur, erfiður, örmagna, efablandinn, hæðinn,
gamansamur, stríðinn, niðurdreginn.
16. að kólkna: krókna, bólgna, kólna, ræskja sig, reiðast, hvessa, þykkna upp,
koðna niður, þorna upp. *
17. rymur: orðrómur, stórvaxinn maður, hávaði, hás, víður, blástur, hrör-
legur, þrep, fjöl.
18. að paufast með e-ð: gaufa við e-ð, staulast áfram með e-ð, fara laumu-
lega með e-ð, burðast með e-ð, fálma sig áfram með e-ð, hafa eitthvað í
eftirdragi.
19. að elna: hjaðna niður, eldast, hitna, vaxa, þæfa hnoða, kólna, hressast.
20. að gjálgra: gelta, gjamma, skvampa, gutla, svalla, smáhósta, klöngrast,
reika, fitla við.
Svör á bls. 109.