Úrval - 01.08.1967, Síða 9
ALMANAK VORT ...
7
Páskadagur er alltaf næsta sunnu-
dag eftir fyrstu tunglfyllingu eftir
vorjafndægur.
Viti maður páskadag einhvers
árs, þá er auðvelt að finna alla aðra
hreyfanlega hátíðisdaga ársins.
Föstuinngangur er sjö vikum fyrir
páska og hvítasunnudagur er sjö
vikum eftir páska. Páskarnir eru
því mitt á milli föstuinngangs og
hvítasunnu. Næsti sunnudagur fyrir
páska nefnist pálmasunnudagur.
Uppstigningardagur er næst síðasta
fimmtudag fyrir hvítasunnu.
A eftirfarandi töflu má sjá,
hvenær páskadagur verður fram
til ársins 2000, frá árinu 1967 að
telja:
Páskadagur 1968—2000
1968 14. apríl 1985 7. apríl
1969 6. apríl 1986 30 marz
1970 29. marz 1987 19. apríl
1971 11. apríl 1988 3. apríl
1972 2. apríl 1989 26. marz
1973 22. apríl 1990 15. apríl
1974 14. apríl 1991 31. marz
1975 30. marz 1992 19. apríl
1976 18. apríl 1993 11. apríl
1977 10. apríl 1994 3. apríl
1978 26. marz 1995 16. apríl
1979 15. apríl 1996 7. apríl
1980 6. apríl 1997 30. marz
1981 19. apríl 1998 12. apríl
1982 11. apríl 1999 4. apríl
1983 3. apríl 2000 23. apríl
1984 22. apríl
Áhyggjur eru ein mynd óttans, og allar myndir óttans framkalla
þreytu, maður, sem hefur lært að óttast ekki, mun finna, að það hef-
ur jafnframt dregið geysilega úr þreytu þeirri, sem daglegt líf veld-
ur honum.
B. Russéll
Engir menn eru lagtækari við að lagfæra ýmislegt, sem aflaga fer
á heimilinu, en þeir, sem eru duglegir að skrifa ávísanir.
Það er mannlegt að skjátlast. En það er ekki mannlegt að viður-
kenna það.
Húsmóöir nokkur í Belfast kom inn í heimilisdýraverzlun. Hún
benti á páfagauk, sem gaf henni illt auga, og spurði: „Talar þessi
fugl?"
Eigandinn roðnaði og honum fór augsýnilega að líða heldur illa.
„O, það vantar ekkert á, að hann tali, frú,“ svaraði hann. „En hann
vill ekki láta hafa neitt eftir sér.“
Velmegun: Það ástand, þegar fjölskylda er að borga af hálfri tylft
hluta i stað eins.