Úrval - 01.08.1967, Side 13

Úrval - 01.08.1967, Side 13
VISTHEIMILI FYRIR UNGBORN 11 andleg líðan og þroski barnanna færi lítið eftir líkamlegri umönn- un þeirra. Þeim börnum leið bezt, sem fengu móðurstaðgengil, er þau gátu tengzt sterkum böndum. Aft- ur á móti var mikil hætta á ferð- um, þegar barnið dvaldist á stofn- unum, þar sem enginn einn tók það að sér, heldur skiptu margar fóstr- ur og hjúkrunarlið með sér umsjá þess. Athyglisverður er einnig saman- burður, sem R. Spitz gerði á börn- um tveggja stofnana: fæðingarheim- ilis og upptökuheimilis. Bæði heim- ilin voru ágæt, hvað varðaði húsa- kynni, hreinlæti, mataræði og klæðnað barnanna. A fyrrnefnda heimilinu var eitthvað meira af leikföngum og börnunum var gert auðveldara fyrir að hreyfa sig. En aðalmunurinn var fólginn í því, að á upptökuheimilinu voru börnin að öllu leyti í umsjá hjúkrunar- liðs og hafði hver stúlka veg og vanda af 8 börnum. Á hinu heim- ilinu dvöldust mæðurnar ásamt börnunum og hlutverk hjúkrunar- kvennanna var að kenna þeim að annast börnin. Þrátt fyrir það, að börn upptökuheimilisins virtust andlega talsvert betur úr garði gerð, drógust þau fljótt mjög aftur úr um þroska. Frá 4—8 mánaða aldri lækkaði þroskastig þeirra úr 127 stigum í 72 stig. En á sama tíma hækkaði þroskastig hinna úr 101,5 stigum í 105 stig. Dauðsföll voru geysilega mörg á upptöku- heimilinu, en á fæðingarheimilinu voru þau hliðstæð því, sem gerist á venjulegum einkaheimilum. Þegar Spitz reyndi að finna á- stæðurnar fyrir þessum greinilega mun á börnum hinna tveggja stofn- ana, gat hann ekki ályktað öðru vísi en svo: „Það er sannfæring vor, að þau (þ. e. börn upptöku- heimilisins) þjáist af því, að í skyn- heim þeirra vantar mannlegan fé- lagsskap, af því aið einangrunin kemur í veg fyrir örvun frá móð- urstaðgengli." Ég hef haft þessar tilvitnanir svo langar til þess að ljóst verði, að um þessi mál hefur verið ritað æði ýtarlega á íslenzku og það í ritum, sem telja verður, að þeim, sem við þessi mál fást sé skylt að kynna sér. Ennfremur vildi ég, að þær fræðilegu forsendur, sem byggja þarf á, þegar hugað er að starf- rækslu vistheimila fyrir ungbörn, kæmu skýrt fram. Skal nú vikið að hinni hagnýtu hlið málsins, þ. e. hvernig reka beri slíkar stofn- anir, svo að börnin bíði sem minnst tjón af. Ég tek þó ekki nema helztu drættina, þá sem ég hygg að flest- ir geti verið sammála um, og þá sem í rauninni liggja alveg í aug- um uppi, ef menn á annað borð vilja taka niðurstöður þessara rann- sókna og annarra hliðstæðra til greina. Eins og áður getur, ber af öllum mætti að forðast, að tengsl móður og bams rofni meira en nauðsynlegt er. Það er þungamiðja alls og allar ráðstafanir stefna að því, að hamla gegn aðskilnaði eða þá að reyna að bæta barninu hann upp með öllum ráðum. Af þessum sökum er móðurinni gert að skyldu — þegar hægt er að koma því við — að heimsækja barnið á hverjum degi og annast það að einhverju
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.