Úrval - 01.08.1967, Side 16
14
ÚRVAL
líma þarf að ganga frá fóstri allra
þeirra barna, sem ekki eiga aftur-
kvæmt til móður sinnar, enda á
það yfirleitt að vera hægt, nema
alveg sérstakar og óvenjulegar að-
stæður komi til. Ætli móðirin sjálf
að annast barnið, þarf að leggja
mikla áherzlu á að hún geti tekið
það fyrir hálfs árs aldur — og oft
mun hún þarfnast aðstoðar við að
búa sér og barni sínu heimili. Drag-
ist þetta lengur, er óhjákvæmilegt
að móðirin auki verulega afskipti
sín af barninu, unz hún fær það
með öllu.
Sérstaka varúð þarf að viðhafa,
þegar um vistun 6—18 mánaða
barna ræðir. Þar má aldrei nota
barnaheimilið, nema sem algjört
neyðarúrræði, þegar engir mögu-
leikar eru á einkafóstri, sem hæfir.
Reynist hins vegar óumflýjanlegt
að leita á náðir barnaheimilis má
dvöl barnsins helzt ekki fara fram
úr tveimur mánuðum. Þeim börn-
um þarf þar að auki einatt að sinna
sérstaklega í samræmi við það, sem
að ofan greinir.
Eftir því sem nú hefur verið sagt,
ætti að liggja Ijóst fyrir, að barna-
heimili fyrir ungbörn, sem rekið er
með sjúkrahúsfyrirkomulagi, þar
sem þorri starfsfólks er lítt eða ekki
þjálfaður, þar sem vaktaskiptakerf-
inu er beitt, þar sem afskipti mæðr-
anna af börnunum eru lítil og lítið
eða ekkert reynt til að auka þau,
þar sem dvöl bamanna, margra
hverra er of löng, — heimili, sem
þannig starfar hefur ekki tekið til-
lit til þeirra endurbóta, sem nú
þykja sjálfsagðar og nauðsynlegar
og er því engin von til annars en
mörg börn, er þar dveljast hljóti
veruleg og andleg mein.
Hlutskipti lögreglunnar:
George Gobel sagði nýlega sögu af manni, sem var að aka konu
sinni á fæðingardeildina í síðasta lagi. Og storkurinn náði þeim á miðri
leið. Lögregluþjónn þar á götunni varð við hjálparbeiðni hans og tók á
móti barninu þarna í bilnum. Hann hafði síðan endaskipti á barninu á
venjulegan hátt og danglaði í afturendann á því, svo að það rak upp
heljarmikið gól til merkis um, að allt væri í lagi með öndunarfærin.
Við þessar aðfarir öskraði faðirinn að lögreglumanninum viti sínu
fjær af reiði: „Það er ekki að spyrja að grimmdinni í þessum lögreglu-
þjónum!“
Bill Kennedy
Luis Munoz Marín, fyrrverandi landsstjóri á eyjunni Puerto Rico, þar
sem offjölgunarvandamálið er efst á blaði: „Það er gamall málsháttur
á Puerto Rico, sem hljóðar svo, að maður eigi að gera þrennt á æví-
skeiði sínu, gróðursetja tré, skrifa bækur og eignast syni. Ég vildi
bara, að þeir gróðursettu meira af trjám og skrifuðu fleiri bækur."
Time