Úrval - 01.08.1967, Page 18

Úrval - 01.08.1967, Page 18
16 karlar dönsuðu og döðruðu af svo miklu hispursleysi, að það var sem engar siðareglur giltu lengur, enda duldust allir bak við grímur sínar. 18 ára stúlka í snjóhvítri skikkju yfirgaf hópinn, sem hún hafði kom- ið með á dansleikinn. Hún reikaði um mannþyrpinguna og kom þá auga á ungan mann, sem var að kyssa konu eina. Konunni tókst að komast undan og flýtti hún sér hlæjandi burt. Það var eitthvað í fari þessa unga manns, sem dró ungu stúlkuna að honum, eitthvað við útlit hans og persónu alla, göfugmannlegan og glæstan limaburð hans og glaðværð, sem einkenndist þó af virðuleik. Hún var gripin æsingu vegna hinn- ar óvenjulegu ærslafengu glaðværð- ar umhverfis hana. Hún fór ekki oft á dansleiki, og það ríkti engin glaðværð á heimili hennar. Hún hafði drukkið nokkur glös af víni. Hún var næmari fyrir öllum áhrif- um en endranær og skynjaði allt á miklu sterkari hátt. Hún gekk í áttina til unga mannsins. Hann var líka gagntekinn af hrifn- ingu og gleði. Hann var að heim- sækja París í fyrsta sinni í ferð um Evrópu, og var ferð sú lokaþáttur- inn í menntun hans. Einkakennari hans var alltaf á næstu grösum, jafn- vel þarna á dansleiknum, og hafði auga með honum. En hann var samt frjáls gerða sinna. Hann hafði al- drei verið umkringdur slíkri iita- dýrð, slíku masi og skvaldri, slíkum leikandi hreyfingum, svo mörgum glæstum konum. Hann kann að hafa verið ringlaður vegna allra þessara áhrifa, en samt fannst honum hugur ÚRVAL sinn vera heiðari og tærari en hann hafði nokkru sinni verið. Hvítklæddu stúlkunni, sem kom svífandi í áltina til hans, hefur ver- ið lýst á eftirfarandi hátt af Madame Vigée Lebrun, sem var andlitsmál- ari við frönsku hirðina um þetta leyti: „Hún gengur á sérstaklega glæsi- legan hátt. Maður verður varla var við skrefin, sem hún tekur. Hún líður áfram með óviðjafnanlegum glæsileika og ber höfuðið tignar- lega.“ Og hið andríka, enska skáld, Hor- ace Walpole, mælti þessi orð um hana: „Allar þokkagyðjurnar, Hebe og Flora, Helena og þær allar saman, eru sem grófgerðar kvensur í sam- anburði við hana. Þegar hún hreyf- ir sig, er hún persónugervingur töfr- anna.“ Unga stúlkan og ungi pilturinn, sem var einnig 18 ára, fóru að tala saman. Þau hlógu. Þau ræddu um fólkið umhverfis sig og töluðu svo- lítið um sig sjálf. Uppi á svölunum stóðu tveir menn og virtu ungu hjúin fyrir sér. Þetta voru þreknir og þöglir menn, sem höfðu komið á dans- leikinn til þess að sjá, hvað þar færi fram, en ekki til þess að taka þátt í honum sjálfir. Annar þeirra var ríkiserfinginn, sem varð bráð- lega Lúðvík 18., konungur Frakk- lands, og hinn var bróðir hans, de Provence greifi. Það var erfitt að geta sér til um, hvaða hugsanir hafi verið á reiki í sljóum hugum þeirra. Vissulega hafa þeir ekki haft vel- þóknun á daðri ungu stúlkunnar,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.