Úrval - 01.08.1967, Page 34

Úrval - 01.08.1967, Page 34
32 ÚRVAL an verSur varla miðuð við það, hversu oft er drukkið, því að sum- ir sem drekka aðeins nokkrum sinn- um á ári, gera þó ærinn skaða með því, meðan á slíku stendur. Ekki er heldur vert að fara eftir því hvenær dagsins eða vikunnar þeir drekka, því sumir vandræðamenn um áfengisnautn halda sig þó al- veg frá því um vinnutímann og drekka aðeins á kvöldin, jafnvel aðeins um helgar. Sá sem er að byrja að verða of- drykkjumaður, þarf ekki að drekka iila í hvert sinn, heldur er það þá aðeins annað veifið, sem hann „fer yfir markið" og verður ósjálf- bjarga. Það er einmitt þetta „mark“, sem miklu máli skiptir. Hinir vönu samkvæmisdrykkjumenn taka eftir því, þegar fer að svífa á þá og var- ast að halda áfram, en það er of- drykkjan eða byrjun hennar að láta þá ekki staðar numið. — Of- drykkjumaður heldur áfram, og er líkast því að vínið svipti hann þeirri aðgát sem hinir hafa. Þar sem það hendir sjaldan hina prúðu drykkju- menn að missa þannig stjórn á sér, eiga þeir erfiít með að skilja, að það sé annað en ásetningur hjá hin- um að verða útúrdrukknir. Þegar leitazt er við að lækna drykkjuskap, er byrjað á því að sjúklingurinn neitar sér algerlega um vín og allt sem áfengi er í, og ennfremur er reynt að komast að því hvort það sé einhver ástæða fyrir því hjá honum, að hann hegð- ar sér þannig. Bandaríska áfengis- varnarráðið segir að þrír fjórðu þeirra sem teknir eru til lækningar á byrjunarstigi, fái bata. Sá sem heldur, að einhver hon- um nákominn sé ofdrykkjumaður eða að verða það, ætti að leita ráða hjá fróðum mönnum. Það eru til félög sem veita upplýsingar um að- stoð, og er sjálfsagt að leita til þeirra. Það er óhyggilegt að bíða og vonast eftir, að allt lagist af sjálfu sér, því að hjálp er til reiðu, sem mörgum hefur að gagni kom- ið. Því fyrr sem tekst að telja manninn á að bæta ráð sitt, því skemur stendur hið óskemmtilega ástand hans. En til þess að takast megi að hafa áhrif á manninn, gefa ráð þeirra sem vanir eru að fást við þetta oft bezta raun. Sumt sem hinum ófróðu getur virzt snjall- ræði, eins og það að taka allt vín af sjúklingnum þegar í stað, getur haft öfug áhrif við það sem ætl- azt er til. Nú er það orðið algengt að ung- lingar undir tvítugsaldri drekki, og samfara því eru tíð bifreiðaslys sem dánarorsök unglinga. Það hefur tít- il áhrif þó haldnir séu fyrirlestrar um skaðsemi áfengis, þegar börn- in sjá drykkjuskap foreldranna fyrir sér. Enda þótt lög séu víða um það, að unglingar megi ekki drekka yngri en 18 ára eða 21 árs, þá fá flestir sína fyrstu reynslu af áfengi áður en þeir eru komnir á þann lögaldur. Yfirlæknir drykkju- sjúklingadeildar við sjúkrahús í Massachusetts hefur sagt, að hann sjái ekki önnur betri ráð til þess að unglingar læri skynsamlega með- ferð áfengis en þau, að foreldrarn- ir leiðbeini þeim í heimahúsum. En hann bætir því við, að margir for- eldrar séu of ófróðir og of sekir um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.