Úrval - 01.08.1967, Side 59

Úrval - 01.08.1967, Side 59
HVERNIG Á AÐ SEGJA GAMANSÖGU? 57 milli hláturskviðanna, að endurtaka ,,rúsínuna“, tvisvar, þrisvar sinnum eða oftar. Það er ekkert jafn — leiðinlegt og þetta fyrir hóp hlust- andi fólks og þetta er öruggt merki á viðvaningnum. 9. Vertu ekki hetjan Hektor. Ef þú vilt ná áheyrendum á þitt band fljótt og hjartanlega, þá byrj- aðu á sögu af sjálfum þér, þar sem þú skopast að sjálfum þér. Það finnst þeim gaman — og þér líka. Það er fátt sem skapar eins velvilja áheyranda til sögumanns, eins og að finna það, að hann er nógu stór til að geta gert grín að sjáifum sér og sagt frá eigin mistökum. En þú mátt aldrei undir nokkrum kringum- stæðum segja sögu, þar sem þú sjálfur ert hetjan. í sögum þínum máttu aldrei reka hina söguper- sónuna á gat eða bera hærri hlut. Það skiptir engu hversu laglega þú ferð að þessu, þú verður alltaf stimplaður sem „Jón sterki“, sem ekkert sér nema sjálfan sig. Það getur dregizt fyrir þér, að hita upp áheyrendur þína eftir þess konar faux pas. 10. Lœrðu söguna þína. Það virðist nú, sem það ætti ekki að þurfa að segja fólki svona nokk- uð, en samt er það staðreynd að þess gerist full þörf. Það eru nefni- lega margir, sem vanrækja einmitt þetta. Það er kannski ekki nauð- synlegt að muna skopsögu orði til orðs. En þú ættir að endurtaka sög- una aftur og aftur, þar til þú ert alveg viss um að þú getir sagt hana á einfaldan og eðlilegan hátt og beitt þér að því að segja hana, í stað þess að þurfa jafnframt að rembast við að rifja hana upp. I þessu efni, eins og reyndar á öllum sviðum þar sem um það er að ræða að koma fram fyrir fólk, launar góður undirbúningur sig ævinlega. Jæja, þarna hefurðu það þá, tíu einfaldar reglur fyrir byrjandann í frásögulistinni. Ef þú hagnýtir þér þekkinguna á þessum grundvallar- atriðum, þá get ég persónulega full- vissað þig um, að þér fer mikið fram við að segja sögur, hvort held- ur er í fjölmenni eða fámenni. Það er fyllilega þess vert, að leggja nokkuð á sig til að geta sagt skemmtisögu í þessum oft á tíðum dapra heimi og við höfum fulla þörf fyrir að sanna sjálfum okkur að skemmtilegheitin borgi sig. Hér er snoturt bragð, sem oft getur verið gott að grípa til, þegar þú ert að segja frá viðtali tveggja manna, sem við getum nefnt Ed og Joe, en hvorugur hefur nein sérstök persónueinkenni í sögunni. Þá er ágætt að vinda til höfðinu, sitt til hvorrar hliðar. Þegar Ed talar snýrðu höfðinu eilít- ið til annarrar hliðarinnar, og þegar svo komið er að því, að Joe tali, snýrðu höfðinu til hinnar hliðarinnar. Þetta er mjög einfalt, og það hefur á- hrif. Áheyrendurnir fara ó- sjálfrátt að tengja Ed við þessa hliðina en Joe við hina.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.